Fréttatíminn - 22.06.2012, Page 33
Þ
að er okkur Hvergerðingum
sérstök ánægja að bjóða gesti
velkomna á Garðyrkju- og blóma-
sýninguna „Blóm í bæ“ sem nú er
haldin í fjórða sinn í Hveragerði.
Tugþúsundir gesta hafa sótt hátíðina og notið
fjölbreyttrar sýningar á öllu því sem tilheyrir
græna geiranum auk þess sem skreytingar
blómaskreyta í bæjarfélaginu hafa vakið
mikla athygli fyrir frumleika og fegurð.
Þema sýningarinnar í ár er „sirkus“ og
munu skreytingar á sýningunni taka mið af
því. Alls konar kynjaverur sirkusins lifna við
í blómum og myndum og litagleðin tekur öll
völd. Í beðum og kerjum má sjá marglit blóm
af ýmsum gerðum sem öll minna okkur á fjöl-
breytileika náttúrunnar og gæði íslenskrar
framleiðslu. Aldrei hefur jafn mikið magn
af afurðum græna geirans verið til sýnis
á einum stað. Í íþróttahúsi bæjarins hefur
glæsileg sýning afskorinna blóma og potta-
blóma verið sett upp og þar gefst gestum
tækifæri til að sjá hið besta frá íslenskum
blómaframleiðendum. Á útisvæði er vegleg
sýning á garðplöntum þar sem virða má fyrir
sér sumarblóm, berjarunna, matjurtir og
fjölæringa. Allar skreytingar í bæjarfélaginu
eru í höndum atvinnu- og áhugamanna um
blómaskreytingar sem leggja nótt við dag
fyrir sýninguna svo skreytingarnar verði sem
bestar.
Hvergi gefst betra tækifæri til að kynna sér
það helsta sem í boði er í garðyrkju en á Blóm
í bæ í Hveragerði. Ýmislegt verður síðan til
afþreyingar, blóma-bingó verður með reglu-
legu millibili hátíðardagana, örfyrirlestrar,
fræðslugöngur, garðaskoðun, ljóðablóma-
staurar, plöntupúl og garðasúpa í görðum
bæjarbúa er meðal þess fjölmarga sem á dag-
skrá verður þessa helgi. Á laugardeginum
fagnar Norræna félagið í Hveragerði Jóns-
messu og reisir miðsumarstöng með tilheyr-
andi gleðskap í Lystigarðinum. Auk þessa alls
verða leiktæki og uppákomur fyrir yngstu
kynslóðina og sýningar og markaðir út um
allan bæ þannig að engum ætti að leiðast.
Sýningin hefst næstkomandi föstudag
klukkan 12 en henni lýkur á sunnudeginum
klukkan 18. Setningarathöfn verður á föstu-
dag klukkan 14 og mun ráðherra landbún-
aðar og sjávarútvegs setja sýninguna.
Um leið og Hvergerðingar og fagfélög
græna geirans bjóða alla landsmenn vel-
komna til að njóta þess besta sem íslensk
garðyrkja býður uppá bendum við á að nánari
upplýsingar er að
finna á heimasíðunni
www.blomibae.is
Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri Hveragerðis.
Garðar
Unnið í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands Helgin 22.-24. júní 2012
Hjartnæm Garðablóm
Hjartablóm hafa verið í ræktun hér-
lendis um áratuga skeið og aldrei
hefur neinn heyrst hallmæla þessum
plöntum enda forkunnarfagrar.
bls. 2
bls. 2
Vökvið mikið í
kjölfar vorhrets
og þurrka
Ýmsar reynitegundir og
rósayrki fóru illa í vor.
HveraGerði SýninG Um HelGina
Hluti af svæði sem félagar í GÍ skreyttu árið 2010.
Hlíðasmára 1 | 201 Kópavogur | Sími: 554-6969 | www.lur.is
Betri gæði á góðu verði
Rúm, dýnur, hægindasófar, svefnsófar, gjafavörur og fleira
Velkomin á Blóm í bæ!
bls. 6
Garðagöng-
urnar eru
sívinsælar
Ýmist gengið á millli einka-
garða eða opinberir garðar
skoðaðir.
bls. 5
Viltu skipta á
plöntu?
Það má býtta á plöntum
ekki síður en frímerkjum og
servéttum.