Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 4
FERÐAGRILL
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
44.900
Er frá Þýskalandi
8.900
19.900
4 Litir
Solveig Lára vígslubiskup á Hólum
OYSTER PERPETUAL DATEJUST
Michelsen_255x50_C_0612.indd 1 01.06.12 07:21
Nýtt greiðslu
þátttökukerfi lyfja
Velferðarráðuneytið undirbýr nú innleiðingu
á nýju greiðsluþátttökukerfi sem hefur það
meginmarkmið að verja sjúklinga fyrir háum
lyfjakostnaði. Alþingi samþykkti 1. júní
breytingar á lögum um sjúkratryggingar og
einnig lyfjamál sem kveða á um fyrirkomu
lag nýja greiðsluþátttökukerfisins. Helstu
breytingar sem lögin kveða á um eru, að því
er fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins,
nýtt greiðsluþátttökukerfi lyfja sem ver
sjúklinga fyrir háum lyfjakostnaði þar sem
sett er þak á hámarksgreiðslur og að allir
sem nota lyf fái rafrænan aðgang að lyfja
sögu sinni í Lyfjagagnagrunni landlæknis.
Læknar fá sama aðgang að upplýsingum um
lyfjanotkun sjúklinga sinna. Einfaldara fyrir
komulag verður á umsýslu S-merktra lyfja
sem tryggir sama greiðslufyrirkomulag fyrir
lyfin hvort sem einstaklingur sem þarfnast
þeirra dvelur á sjúkrahúsi, í heimahúsi eða á
hjúkrunarheimili. - jh
Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur á Möðruvöll
um, tekur við sem vígslubiskup á Hólum. Atkvæði voru talin
í síðari umferð kosningar til embættisins á miðvikudag. Tvö
voru í kjöri í síðari umferð, Kristján Björnsson, sóknar
prestur í Vestmannaeyjum, og Solveig Lára. Atkvæði féllu
þannig Solveig Lára fékk 96 atkvæði að en Kristján 70.
Alls var 181 á kjörskrá, 174 greiddu atkvæði eða 96 %. Þrjú
atkvæði voru auð og fimm ógild. Solveig Lára verður vígð
í embætti á Hólahátíð í ágúst. Hún tekur við embættinu af
Jóni Aðalsteini Baldvinssyni. - jh/Ljósmynd Biskupsstofa
Íbúðaverð hækkar
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði
um 0,3% í maí, samkvæmt vísitölu íbúða
verðs á höfuðborgarsvæðinu að því er
fram kemur hjá Þjóðskrá Íslands. Vísitalan
undanfarna 12 mánuði hefur hækkað um
5,3% að nafnverði en staðið í stað að raun
virði. Umtalsverður munur var í verðþróun
á sérbýli annars vegar og fjölbýli hins vegar
í maí. Verð íbúða í fjölbýli hækkaði um
1,3% í maí en íbúðir í sérbýli lækkuðu um
2,2% frá mánuðinum á undan. Undanfarið
ár hafa íbúðir í fjölbýli hækkað um 5,8%
en íbúðir í sérbýli hafa hækkað um 3,8%.
Mjög mikil velta var á íbúðamarkaði í maí.
Alls voru gerðir 492 kaupsamningar á
höfuðborgarsvæðinu. Það er mesti fjöldi
samninga í einum mánuði síðan í desember
2007. Heildarveltan nam 15 milljörðum
króna og er meðalupphæð á hvern kaup
samning 30,5 milljónir króna. Þetta er mikil
aukning frá fyrri mánuði þegar veltan var
rúmlega 10 milljarðar króna. - jh
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Léttir tiL um nær aLLt Land og
HLýnandi veður.
HöfuðborgarSvæðið: LéTTSKýJAð ÞEGAr
LÍðUr á dAGinn
LéttSkýjað víðaSt Hvar og Hægur
vindur eða HafgoLa.
HöfuðborgarSvæðið: A-GoLA oG SóLrÍKT.
FrEMUr HLýTT
Smá rigning Hér og þar norðan- og
auStantiL. annarS Skýjað með köfLum.
Skúrir SíðdegiS SunnanLandS.
HöfuðborgarSvæðið: HAFGoLA, SóL AnnAð
SLAGið, En ÞUrrT.
gott útlit á laugardag
Aftur er að hlýna í háloftunum og þá minnka
líkur á skúrum og sólin nær að skína í
öllu sínu veldi. Jafnframt hlýnar í lofti. á
morgun laugardag er spáð blíðuveðri um
land allt, en á sunnudag verður meira skýjað
á landinu og líklega lítilsháttar
væta norðan- og austantil og
aftur líkur á síðdegisskúrum
á Suður- og Suðausturlandi.
Engar verulegar breytingar
er að sjá á stóru myndinni
eftir helgi. áfram því blítt
og fremur stillt veður á
landinu.
13
12 14
16
14 15
10 15 16
15
12
10 9
9
11
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
KárahnjúKavirKjun teKist á um greiðslu Fyrir vatnsréttindi
Hæstiréttur verður
skipaður 7 dómurum
Aðalkrafa Landsvirkjunar er að niðurstaða héraðsdóms um 1,6 milljarða króna greiðslu til land
eigenda verði staðfest en aðalkrafa þeirra er að greiða beri 25 milljarða króna.
h æstiréttur verðar skipaður 7 dóm-urum í máli er varða greiðslu til eigenda jarða fyrir heildarvatnsrétt-
indi Kárahnjúkavirkjunar en vatnsréttinda-
málin verða á dagskrá réttarins 5. október
næstkomandi. Þá fer fram málflutningur um
kröfur og röksemdir aðila fyrir réttinum.
Aðalkrafa Landsvirkjunar fyrir Hæsta-
rétti er að dómur Héraðsdóms Austur-
lands verði staðfestur. Hann byggði á því að
verðmat meirihluta sérstakrar matsnefndar
frá ágúst 2007 var staðfest, að greiða ætti
1,6 milljarða króna fyrir heildarvatnsréttindi
virkjunarinnar. Landeigendur sættu sig ekki
við niðurstöðuna og áfrýjuðu til Hæstaréttar.
Efnislegar kröfur þeirra í málinu fela í sér að
héraðsdómi verði hnekkt og að Landsvirkjun
greiði tilteknar fjárhæðir vegna vatnsréttinda
hverrar jarðar, ásamt vöxtum.
Aðalkrafa landeigenda fyrir Hæstarétti
miðar við verðmat byggt á 10 prósent prósent
af brúttótekjum virkjunar, en það er hæsta
prósenta sem komið hefur fram í þekktum
leigusamningum um vatnsréttindi á Íslandi.
Miðað við forsendur úr matsgerðum um raf-
orkuverð, vexti til núvirðingar leigutekna og
fleira miðar aðalkrafa við hlutdeild hverrar
jarðar af heildarvatnsréttindum að fjárhæð
sem nemur um 25 milljörðum króna. Vara-
krafa miðar við 5 prósent af brúttótekjum, í
samræmi við niðurstöðu matsgerðar Ragn-
ars Árnasonar og Birgis Runólfssonar, eða
12,5 milljarða króna.
Fyrir liggja varakröfur, byggðar á sömu
matsgerð, um verðmat á vatnsréttindum,
um 6 til 8 milljarðar króna eftir því við hvaða
tíma er miðað. Lægsta varakrafa byggist á
matsgerð Björns Þorra og Dan Wium en þeir
skiluðu verðmati um vatnsréttindin að fjár-
hæð um 4 milljarða króna.
Ákvörðun Hæstaréttar um 7 dómara bygg-
ir jafnan á tilliti til þess að um mikla hags-
muni sé að tefla í málum og/eða að mál geti
haft almenna þýðingu um réttarframkvæmd
á tilteknu sviði. Að mati hæstaréttarlög-
mannanna Hilmars Guðlaugssonar og Jóns
Jónssonar hjá Sókn lögmannsstofu, sem fer
með mál landeigenda, má ætla að ákvörðun
Hæstaréttar um fjölda dómara taki nokkuð
mið af því að rétturinn er í fyrsta skipti að
fjalla um beitingu eignarnámsreglna vegna
vatnsréttinda í tengslum við virkjunarfram-
kvæmdir.
jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Má ætla að
ákvörðun
Hæstaréttar
um fjölda
dómara taki
nokkuð mið af
því að réttur-
inn er í fyrsta
skipti að fjalla
um beitingu
eignarnáms-
reglna vegna
vatnsréttinda
í tengslum við
virkjunarfram-
kvæmdir.
Kárahjúkavirkjun. Tekist er á um greiðslu fyrir vatnsréttindi virkjunarinnar. Ljósmynd/Landsvirkjun
4 fréttir Helgin 22.-24. júní 2012