Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 26
en hann var fimm mínútum áður, þá verður maður oft undrandi á slíkri hegðun. Fólki finnst ekkert óeðlilegt við að sjá spyrla í mjög óeðlilegu ástandi; ofurhressa og ýkta. Það þyk- ir mjög eðlilegt. Kannski það hafi róandi áhrif á mann og veki upp viðbrögð að sjá manneskju umbreytast í einhverja teiknimyndakaraktera og fara spyrja spurninga sem eru grunnar og hálf tilgangslausar, búnar til á staðnum af því þáttarstjórnandinn nennti ekki að vinna fyrir kaupinu sínu. Það er mjög algengt að spyrlar skipti um karakter og það er enginn að spá í það,“ segir hann. „Ég er bara ekki þessi hressa týpa og það þurfa ekki allir að vera eins þó svo að það virð- ist henta þjóðfélaginu best. Ef ég væri í grunn- skóla í dag veit ég ekki hvaða lyfjum væri búið að dæla í mig til að lækna sköpunarhæfileik- ana.“ Býr hjá vinum í Frakklandi En úti í Frakklandi? Eru fjölmiðlar að velta karakter þínum fyrir sér þar? „Nei, ekkert. Þar eru menn öllu vanir. Svo mæta þeir undir- búnir í 90 prósent tilfella. Einu sinni gekk samt blaðamaður frá Le Monde út úr viðtali við Lady & Bird. Við vorum búin að skrifa nákvæmar og flóknar reglur fyrir blaðamenn sem þeir áttu að virða áður en viðtalið færi fram. Þessi hafði ekki lesið reglurnar þannig að hann fékk svör sem hann botnaði lítið sem ekkert í. Svo mætti hann aftur nokkrum dögum síðar eftir að hafa kynnt sér reglurnar og kláraði viðtalið.“ Á þessu sífellda ferðalagi milli Íslands og Frakklands hefur Barði lært að tala frönsku við þá sem enskan pirrar mest – þjóna og leigubíl- stjóra. „Öfugt við flest önnur lönd: Ef þú ferð á veitingastað í Frakklandi máttu þakka fyrir að þjónninn vilji afgreiða þig. Þú átt að vera þakk- látur fyrir að fá að sitja þarna inni og borga mjög mikið fyrir kaffið og að hann vilji afgreiða þig. En það eru helst leigubílstjórar og þjónar sem eru með stæla. Allir hinir eru voða næs,“ segir hann þegar hann talar um tíma sinn ytra. „Og yngri kynslóðin talar ensku, í það minnsta reynir það.“ Barði virðist lifa nokkuð sérstöku lífi í Frakk- landi. Hann á enga íbúð þar og sjaldnast gistir hann á hótelum. „Ég á bara fullt af vinum. Einu sinni las ég um það í Séð og Heyrt að ég ætti íbúð í París. Ég hringdi og spurði hvaðan þeir hefðu þær heimildir og fékk þau svör að þar sem ég væri svo mikið þarna héldu þeir að ég ætti þarna íbúð. Það þótti nóg,“ segir hann og bætir við. „Ég væri líklega farinn á hausinn ef ég fengi ekki að gista hjá vinum. Þar sem ég á unga dóttur á Íslandi reyni ég allt sem ég get til að koma heim og vera með henni. Stundum er því miður ekki „budget“ fyrir flugi heim á 10 daga fresti.“ Engar fastar áætlanir Hann segir einnig að oft geti reynt á að plana ferðirnar á milli fram í tímann. „Það ræðst af því hvað ég er að gera. Síðan kannski fer maður á fund sem kallar á annan fund, eftir einhvern tíma, sem kallar á eitthvað annað og síðan vinnur maður að einhverju sem gengur hægt eða hratt. Þetta er svo abstrakt vinna. Ég hef ekki hugmynd um hvað það tekur mig langan tíma að gera eitthvað á meðan flestir geta farið í vinnuna og séð svona sirka hvert stefnir.“ Af hverju ræðst það? „Ég veit ekki hvort ég þarf að endursemja sama lagið tíu sinnum af því að það er ekki nógu gott eða hvort það kemur á tveimur tímum? Maður skilar ekki einhverju sem manni finnst lélegt, það eru aðrir og nógu margir í þeim bransa. Ég get byrjað á einhverju á mánudegi og klárað um kvöldið eða ég get verið búin með það viku síðar. Síðan er ég búin að plana restina á vikunni og er þá í fimm daga mínus, sem ég þarf þá að taka af svefni.“ En gengur honum vel? „Gengur þér vel þeg- ar þú selur mikið? Eða þegar þú ert ánægður með það sem þú ert búinn að gera? Er það vel- gengni að selja margar plötur en finnast inni- hald þeirra lélegt? Eða þegar þér finnst þú gera gott en selur lítið? Tuttugu til þrjátíu þúsund getur verið mikið fyrir einn en lítið fyrir annan. Þetta er allt afstætt. Ég er sáttur við þá tónlist sem ég hef unnið að hingað til “ Hvaða markmið setur þú þér? „Að gera eitt- hvað sem mér finnst skemmtilegt og fólk vill hlusta á. Það sem ég er ánægður með, það besta sem ég get gert hverju sinni. Yfirleitt þegar maður setur allt undir eru fleiri sammála því að útkoman sé góð.“ Bransinn þekkir Barða En er kippt í þig úti á götu í Frakklandi? „Nei, það hefur gerst tvisvar, þrisvar. Ég er ekkert frægur þar, þótt bransinn viti hver ég er, en það er alltaf fullt á tónleikunum,“ segir hann. „Þetta er svo stórt land. Í Frakklandi seljast fimm prósent tónlistar í heiminum. Þýskalandi fimm prósent og sex í Bretlandi. Þannig að þetta er stórt. Fólk fattar ekki; bæði almenn- ingur og bransinn sjálfur, að Bretland er að- eins einu prósentustigi stærra en Frakkland. Munurinn er ekki mikill. En það eru meiri læti í Bretunum. Það er algengt að Frakki, sem enginn veit um, selji yfir milljón plötur, sem er meira en margar þekktari hljómsveitir gera.“ Barði hefur ekki verið mikið fyrir „óþarfa tónleikahald“ eins og hann kallar það og vill velja vel á hvaða tónleikum hann kemur fram á. Hann segir að hann hafi ekki verið mikið fyrir að vera á sviði í byrjun ferilsins, en það hafi breyst enda hefur sjálfstraustið líka stigið upp á við með árunum. Mér leið ömurlega á sviði til að byrja með. Mér fannst svona fyrstu árin þegar ég stóð uppi á sviði að ég gæti nú gert miklu betur en þetta. Mér fannst óþarfi að bæta fleiru lélegu við. Mér fannst alveg nóg af því fyrir. En núna finnst mér þetta farið að verða skemmtilegra og frammistaðan betri. Ég hef alltaf verið hepp- inn með þá sem eru í bandinu með mér og allt- af fundist þeir miklu betri en ég.“ Barði er nú kominn til að vera mestan part sumarsins hér á landi „Mér finnst gott að vera á Íslandi og reyni að koma með eins mörg verk- efni hingað heim og ég get.“ Sérðu fyrir þér að þú verðir alltaf í tónlist? „Ég veit ekki hvort mér endist ævin í að læra lögfræði og eitthvað annað áhugavert. Mig langar að gera svo ótrúlega margt, en ég á líka eftir að klára svo margt og svo er svo margt sem mig langar að gera í músík. Ég held hrein- lega að það sé of seint að skipta núna. Svo hefur ekki gefist mikill tími í að sinna púkanum í sér upp á síðkastið, ég held að hann þarfnist aðhlynningar fljótlega!“ Þegar ég fór fyrst til London, sagði maður við mig: Heldur þú að þú getir farið til útlanda og bókað fundi hjá útgáfu- fyrirtækjum og fengið samning? Hann sagði þetta í hæðnistóni, en það var nákvæmlega það sem ég gerði. Fjölmargir franskir listamenn hafa unnið með Barða og ekkert lát er á því. Barði stefnir til Frakklands með haustinu, en er þó sjaldnast lengur en í þrjár vikur þar ytra í einu. Mynd/Jeaneen Lund 26 viðtal Helgin 22.-24. júní 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.