Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 68
Plötudómar dr. gunna
Early Birds
múm
Dúndur sprell!
Hér er safnað saman
á rúmlega klukkutíma
langan disk 15 lögum sem
múm bjó til á árunum
1998-2000 og komu út á
ýmsum smáútgáfum áður
en sveitin sló í gegn með
plötunni Yesterday was
dramatic, today is OK. Á
þessum sokkabandsárum
voru Gunnar og Örvar
að fínstilla stefnuna og
uppfullir af gáska og
leikgleði. Platan er því
ægihress og skemmtileg,
tilraunapopptónlistin
fersk og lifandi, jafnvel
hrottalega æðisleg þegar
Bústaðavegurinn er fáviti.
Nokkrar grámyglulegar
langlokur í enda plötunnar
skyggja á litríkt sprellið,
en svona í heildina litið
er þetta frábær safnplata
sem iðar af ákefð, grósku
og stuði.
State of mind
Arnar Ástráðsson
Derrick
á dansgólfinu
Heila- og taugaskurðlæknir-
inn Arnar lætur hér gamlan
draum rætast og kýlir á
plötugerð. Hann hefur ekki
verið áberandi í tónlistar-
lífinu, en átti þó lag sem Erna
Hrönn Ólafsdóttir söng í
Söngvakeppninni í fyrra.
Arnar býður upp á tölvut-
rommuknúið syntapopp sem
hljómar eins og það sé 1989
í Mið-Evrópu. Hið drífandi
ósungna lag One Day og hið
angurværa Farwell myndu
smellpassa í Derrick þátt.
Við fáum tvær útgáfur af
þremur lögum, meðal annars
af besta lagi plötunnar, hinu
grípandi My One and Only
sem Erna Hrönn syngur.
Í lögum Arnars má finna
ágætar melódíur en lögin líða
fyrir bitlausar útsetningarnar
og heldur þunnt sánd.
Sólheimar
BistroBoy
Dottað í
pottinum
Enn heldur Möller útgáfan
áfram að færa nýsprottna
raftónlistarmenn fram í
sviðsljósið. Bistro Boy heitir
í raun Frosti Jónsson. Þótt
hann hafi verið að gera tón-
list í mörg ár er þessi 6 laga
plata hans fyrsta útgefna
verk. Bistróinn er svakalega
lágstemmdur. Lögin eru
fljótandi, hlý og mjúk, dálítið
úr fókus og tilvalin í bak-
grunni – næstum því nógu
tíðindalítil til að ganga sem
svefnmeðal. Annað veifið
brestur á með barnsröddum
svo það er eins og að dotta
í heita pottinum að hlusta á
plötuna. Frosti gerir þetta
vel og dregur oft upp fagrar
hljóðmyndir, til að mynda
í lokalaginu Afrika, þar
sem örlar fyrir ákafa undir
syntamottunum.
athafnamaður roBBi ChroniC oPnar útiBú Búllunnar í london
Borðaði 24 hamborgara á tveimur dögum
Þ að var hérna kaffihús sem var kallað The Greasy Spo-on og við þurftum að skafa
fitulag af veggjunum sem var frá
tíunda áratugnum. En þegar við
vorum búnir að ná burtu þykku
lagi af veggfóðri komu flottir stein-
veggir í ljós og nú er þetta farið að
taka á sig góða mynd,“ segir Róbert
Aron Magnússon, athafnamaður í
London.
Róbert, eða Robbi eins og hann er
alltaf kallaður, opnar útibú frá Ham-
borgarabúllu Tómasar í London á
næstu dögum. Búllan mun kallast
Tommi’s Burger Joint og er til húsa
á Marlybone Lane, örskammt frá
Oxfordstræti. Auk Robba standa að
staðnum þeir Hallur Dan Johansen
og Valgarð Sörensen, sem reka The
Laundromat Café og Úrillu górill-
una í Reykjavík. „Svo erum við auð-
vitað í nánu samstarfi við Tomma
sem hefur séð til þess að við erum
með alvöru hráefni í borgurunum
og staðurinn sé eins og aðrar búllur
hans, enda þekkir enginn hamborg-
ara eins og Tommi sem býr að 40
ára reynslu á því sviði.“
Nýr skyndibiti í
skyndibitaborg
Robbi segir að hugmyndin að opn-
un Búllunnar í London hafi kviknað
fyrir um ári og síðan hafi verið unn-
ið hörðum höndum að því að klára
dæmið. Undanfarnar vikur hefur
verið stanslaus straumur af íslensk-
um iðnaðarmönnum sem hafa lagt
hönd á plóg við verkið. Robbi mun
stýra Búllunni en við hlið hans verð-
ur kokkurinn Sigurður Gunnlaugs-
son sem hefur verið í þjálfun hjá
Tomma núna síðustu tvo mánuði.
Er ekki heilmikið mál að opna
veitingastað í London?
„Já og nei. Maður þarf svolítið
að skilja Bretana til að þetta gangi.
Ef maður skilur tempóið sem þeir
vinna á þá er þetta hægt en það
verður að viðurkennast að kerfið
getur verið dálítið stíft. Íslendingar
halda alltaf að hægt sé að fá allt gert
á morgun og ég hef svolítið þurft að
útskýra þetta fyrir strákunum.“
Er ekki nóg af hamborgarastöð-
um og öðru slíku í London, skyndi-
bitastöðum? Eru einhverjir aumir
Íslendingar að fara að leggja eitt-
hvað til í þeim efnum?
„Við gerum okkur alveg grein
fyrir því að við erum ekki að finna
upp hjólið. Við teljum samt að við
séum að búa til eitthvað nýtt. Hér
úti er fólk mikið á ferðinni, hvort
sem það er í hádeginu eða yfir dag-
inn, og hjá okkur getur fólk gengið
upp að borðinu, pantað og labbað
með matinn út ef það vill. Það er
ekki algengt hér að fólk geti labbað
upp að afgreiðsluborðinu og ráðið
því hvort það sest eða tekur með sér
nema það sé á McDonalds eða öðr-
um svipuðum skyndibitastöðum.
Ég held að þetta konsept eigi eftir
að ganga nokkuð vel,“ segir Robbi
sem segir að þeir félagar hafi kynnt
sér samkeppnina í hverfinu í fyrra-
sumar. „Við borðuðum 24 hamborg-
ara á tveimur dögum. Manni leið
svolítið eins og gaurnum í Supersize
Me eftir það. En niðurstaðan var að
það eru kannski 1-2 staðir þarna af
svipuðu kalíberi og okkar.“
Tónleikahald skiptir
meira máli nú en var
Robbi var áberandi í skemmtana-
lífinu hér á landi á
árum áður, bæði
sem útvarpsmaður
og plötusnúður.
Hann var einn af
helstu boðberum
rapptónlistar og
var gjarnan kall-
aður Robbi rapp
eða Robbi Chro-
nic ef t ir sam-
nefndum útvarps-
þæt t i s í num.
Meðfram tónlist-
inni vann Robbi
hjá Varnarliðinu.
Hann flutti svo út
til London, lauk
meistaraprófi í
Music Business
Managemet frá
University Of
Westminster og
hefur nú búið
þar ytra í um sjö ár. Auk Búllunnar
hefur Robbi ýmis önnur járn í eld-
Þú grípur einfaldlega pakka af uppáhalds
Maryland kexinu þínu og gætir um leið eignast
glæsilegt grill.
ER
VINN
INGS
SKÍFA
Í PAK
KANU
M
ÞÍNU
M?
VINNUR ÞÚ GLÆSILEGT
WEBER GRILL?
2 x Weber E310
kr. 132.990
28 x Weber Smokey Joe
kr. 16.950
Róbert Aron Magnússon hefur í nógu að snúast í London. Hann opnar útibú Búllunnar á næstu
dögum en eyðir tímanum þess utan í að leita að hljómsveitum fyrir Airwaves og útvega fólki
miða á tónleika og fótboltaleiki þar í borg.
inum. Hann er
einn af þeim
sem kemur að
framkvæmd
snjóbrettahátíð-
arinnar AK Extreme á Akureyri,
hefur verið duglegur í tónleika-
haldi hér á landi sem og í London
auk þess sem hann stofnaði á dög-
unum þjónustusíðuna 2 do in Lond-
on í samstarfi við Heiðar Hauks-
son. Hugmyndin með henni er að
aðstoða fólk við að verða sér úti um
miða á tónleika, fótboltaleiki og
fleira í London. Þá er ónefnt starf
sem Robbi hefur innt af hendi fyrir
tónlistarhátíðina Iceland Airwaves.
„Ég sé um flestar erlendu bókan-
irnar fyrir Airwaves. Þetta er svona
20 prósenta starf yfir allt árið og það
er nóg að gera við að skoða böndin
og hitta umboðsmenn,“ segir Robbi.
Hann segir tónlistarbransann hafa
breyst mikið á síðustu árum. „Plötu-
salan hefur minnkað svo gríðarlega
þannig að tónleikahald skiptir enn
meira máli en áður. Þar af leiðandi
eru umboðsmenn tónlistarmanna
mikið til við stjórnvölinn og þá er
best að hafa þá góða. Það að maður
sé kominn í persónuleg sambönd
við þessa náunga hefur líka komið
sér mjög vel. Við fáum alltaf ábend-
ingar um flott bönd og listamenn
áður en þau verða stór og gestir
Airwaves hafa fengið að sjá margar
stjörnur áður en þær springa út.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Róbert Aron Magnússon
Ljósmynd/Katrín Lilja Ólafsdóttir
60 dægurmál Helgin 22.-24. júní 2012