Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 68

Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 68
 Plötudómar dr. gunna Early Birds  múm Dúndur sprell! Hér er safnað saman á rúmlega klukkutíma langan disk 15 lögum sem múm bjó til á árunum 1998-2000 og komu út á ýmsum smáútgáfum áður en sveitin sló í gegn með plötunni Yesterday was dramatic, today is OK. Á þessum sokkabandsárum voru Gunnar og Örvar að fínstilla stefnuna og uppfullir af gáska og leikgleði. Platan er því ægihress og skemmtileg, tilraunapopptónlistin fersk og lifandi, jafnvel hrottalega æðisleg þegar Bústaðavegurinn er fáviti. Nokkrar grámyglulegar langlokur í enda plötunnar skyggja á litríkt sprellið, en svona í heildina litið er þetta frábær safnplata sem iðar af ákefð, grósku og stuði. State of mind  Arnar Ástráðsson Derrick á dansgólfinu Heila- og taugaskurðlæknir- inn Arnar lætur hér gamlan draum rætast og kýlir á plötugerð. Hann hefur ekki verið áberandi í tónlistar- lífinu, en átti þó lag sem Erna Hrönn Ólafsdóttir söng í Söngvakeppninni í fyrra. Arnar býður upp á tölvut- rommuknúið syntapopp sem hljómar eins og það sé 1989 í Mið-Evrópu. Hið drífandi ósungna lag One Day og hið angurværa Farwell myndu smellpassa í Derrick þátt. Við fáum tvær útgáfur af þremur lögum, meðal annars af besta lagi plötunnar, hinu grípandi My One and Only sem Erna Hrönn syngur. Í lögum Arnars má finna ágætar melódíur en lögin líða fyrir bitlausar útsetningarnar og heldur þunnt sánd. Sólheimar  BistroBoy Dottað í pottinum Enn heldur Möller útgáfan áfram að færa nýsprottna raftónlistarmenn fram í sviðsljósið. Bistro Boy heitir í raun Frosti Jónsson. Þótt hann hafi verið að gera tón- list í mörg ár er þessi 6 laga plata hans fyrsta útgefna verk. Bistróinn er svakalega lágstemmdur. Lögin eru fljótandi, hlý og mjúk, dálítið úr fókus og tilvalin í bak- grunni – næstum því nógu tíðindalítil til að ganga sem svefnmeðal. Annað veifið brestur á með barnsröddum svo það er eins og að dotta í heita pottinum að hlusta á plötuna. Frosti gerir þetta vel og dregur oft upp fagrar hljóðmyndir, til að mynda í lokalaginu Afrika, þar sem örlar fyrir ákafa undir syntamottunum.  athafnamaður roBBi ChroniC oPnar útiBú Búllunnar í london Borðaði 24 hamborgara á tveimur dögum Þ að var hérna kaffihús sem var kallað The Greasy Spo-on og við þurftum að skafa fitulag af veggjunum sem var frá tíunda áratugnum. En þegar við vorum búnir að ná burtu þykku lagi af veggfóðri komu flottir stein- veggir í ljós og nú er þetta farið að taka á sig góða mynd,“ segir Róbert Aron Magnússon, athafnamaður í London. Róbert, eða Robbi eins og hann er alltaf kallaður, opnar útibú frá Ham- borgarabúllu Tómasar í London á næstu dögum. Búllan mun kallast Tommi’s Burger Joint og er til húsa á Marlybone Lane, örskammt frá Oxfordstræti. Auk Robba standa að staðnum þeir Hallur Dan Johansen og Valgarð Sörensen, sem reka The Laundromat Café og Úrillu górill- una í Reykjavík. „Svo erum við auð- vitað í nánu samstarfi við Tomma sem hefur séð til þess að við erum með alvöru hráefni í borgurunum og staðurinn sé eins og aðrar búllur hans, enda þekkir enginn hamborg- ara eins og Tommi sem býr að 40 ára reynslu á því sviði.“ Nýr skyndibiti í skyndibitaborg Robbi segir að hugmyndin að opn- un Búllunnar í London hafi kviknað fyrir um ári og síðan hafi verið unn- ið hörðum höndum að því að klára dæmið. Undanfarnar vikur hefur verið stanslaus straumur af íslensk- um iðnaðarmönnum sem hafa lagt hönd á plóg við verkið. Robbi mun stýra Búllunni en við hlið hans verð- ur kokkurinn Sigurður Gunnlaugs- son sem hefur verið í þjálfun hjá Tomma núna síðustu tvo mánuði. Er ekki heilmikið mál að opna veitingastað í London? „Já og nei. Maður þarf svolítið að skilja Bretana til að þetta gangi. Ef maður skilur tempóið sem þeir vinna á þá er þetta hægt en það verður að viðurkennast að kerfið getur verið dálítið stíft. Íslendingar halda alltaf að hægt sé að fá allt gert á morgun og ég hef svolítið þurft að útskýra þetta fyrir strákunum.“ Er ekki nóg af hamborgarastöð- um og öðru slíku í London, skyndi- bitastöðum? Eru einhverjir aumir Íslendingar að fara að leggja eitt- hvað til í þeim efnum? „Við gerum okkur alveg grein fyrir því að við erum ekki að finna upp hjólið. Við teljum samt að við séum að búa til eitthvað nýtt. Hér úti er fólk mikið á ferðinni, hvort sem það er í hádeginu eða yfir dag- inn, og hjá okkur getur fólk gengið upp að borðinu, pantað og labbað með matinn út ef það vill. Það er ekki algengt hér að fólk geti labbað upp að afgreiðsluborðinu og ráðið því hvort það sest eða tekur með sér nema það sé á McDonalds eða öðr- um svipuðum skyndibitastöðum. Ég held að þetta konsept eigi eftir að ganga nokkuð vel,“ segir Robbi sem segir að þeir félagar hafi kynnt sér samkeppnina í hverfinu í fyrra- sumar. „Við borðuðum 24 hamborg- ara á tveimur dögum. Manni leið svolítið eins og gaurnum í Supersize Me eftir það. En niðurstaðan var að það eru kannski 1-2 staðir þarna af svipuðu kalíberi og okkar.“ Tónleikahald skiptir meira máli nú en var Robbi var áberandi í skemmtana- lífinu hér á landi á árum áður, bæði sem útvarpsmaður og plötusnúður. Hann var einn af helstu boðberum rapptónlistar og var gjarnan kall- aður Robbi rapp eða Robbi Chro- nic ef t ir sam- nefndum útvarps- þæt t i s í num. Meðfram tónlist- inni vann Robbi hjá Varnarliðinu. Hann flutti svo út til London, lauk meistaraprófi í Music Business Managemet frá University Of Westminster og hefur nú búið þar ytra í um sjö ár. Auk Búllunnar hefur Robbi ýmis önnur járn í eld- Þú grípur einfaldlega pakka af uppáhalds Maryland kexinu þínu og gætir um leið eignast glæsilegt grill. ER VINN INGS SKÍFA Í PAK KANU M ÞÍNU M? VINNUR ÞÚ GLÆSILEGT WEBER GRILL? 2 x Weber E310 kr. 132.990 28 x Weber Smokey Joe kr. 16.950 Róbert Aron Magnússon hefur í nógu að snúast í London. Hann opnar útibú Búllunnar á næstu dögum en eyðir tímanum þess utan í að leita að hljómsveitum fyrir Airwaves og útvega fólki miða á tónleika og fótboltaleiki þar í borg. inum. Hann er einn af þeim sem kemur að framkvæmd snjóbrettahátíð- arinnar AK Extreme á Akureyri, hefur verið duglegur í tónleika- haldi hér á landi sem og í London auk þess sem hann stofnaði á dög- unum þjónustusíðuna 2 do in Lond- on í samstarfi við Heiðar Hauks- son. Hugmyndin með henni er að aðstoða fólk við að verða sér úti um miða á tónleika, fótboltaleiki og fleira í London. Þá er ónefnt starf sem Robbi hefur innt af hendi fyrir tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. „Ég sé um flestar erlendu bókan- irnar fyrir Airwaves. Þetta er svona 20 prósenta starf yfir allt árið og það er nóg að gera við að skoða böndin og hitta umboðsmenn,“ segir Robbi. Hann segir tónlistarbransann hafa breyst mikið á síðustu árum. „Plötu- salan hefur minnkað svo gríðarlega þannig að tónleikahald skiptir enn meira máli en áður. Þar af leiðandi eru umboðsmenn tónlistarmanna mikið til við stjórnvölinn og þá er best að hafa þá góða. Það að maður sé kominn í persónuleg sambönd við þessa náunga hefur líka komið sér mjög vel. Við fáum alltaf ábend- ingar um flott bönd og listamenn áður en þau verða stór og gestir Airwaves hafa fengið að sjá margar stjörnur áður en þær springa út.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Róbert Aron Magnússon Ljósmynd/Katrín Lilja Ólafsdóttir 60 dægurmál Helgin 22.-24. júní 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.