Fréttatíminn - 22.06.2012, Síða 2
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Uppskriftirnar eru á www.gottimatinn.is
toppaðu grillmatinn
með ferskum sósum
Þ að er búið að skrifa undir kaupsamning en það fylgja hon-um fyrirvarar. Það er verið að vinna í þeim fyrirvörum núna,“ segir Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Senu.
Sena hefur fest kaup á Miða.is og Samkeppniseftirlitið skoðar
nú kaupin. Björn telur að búast megi við niðurstöðu þess eftir
um 4-6 vikur.
Sena er stærsta afþreyingarfyrirtæki landsins og Miði.is er
stærsta fyrirtækið sem selur miða á netinu. Fréttatíminn hefur
heimildir fyrir því að Samkeppniseftirlitið hafi sett sig í sam-
band við tónleikahaldara og fleiri sem selja miða hjá Miða.is og
óskað eftir athugasemdum þeirra. Kurr er meðal þeirra enda
hefur Sena staðið fyrir tónleikahaldi og má því færa rök fyrir
að fyrirtækið verði beggja vegna borðsins gangi kaupin eftir.
Fyrirtækið hafi þannig aðgang að viðkvæmum upplýsingum
um keppinautana.
„Við gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að sann-
færa bransann um að það verði aðskilnaður við okkar fyrir-
tæki svo mönnum líði vel í viðskiptum við Miða,“ segir
Björn.
Af hverju vill Sena eignast Miða.is?
„Við sjáum mikil tækifæri í þessu skemmtilega félagi í
tengslum við það sem við erum að gera í afþreyingarbrans-
anum. Við erum sjálfir viðskiptavinir þess og hefur líkað
vel.“
Hvað kostar Miði.is?
„Það eru alltof viðkvæmar upplýsingar
til að ég geti upplýst það á þessu stigi
málsins.“
Björn Sigurðsson hjá Senu
er spenntur fyrir kaupunum á Miða.is.
Viðskipti samkeppniseftirlitið skoðar kaup senu á miða.is
Sena kaupir Miða.is
Agnes vígð á sunnudag
Sunnudaginn 24. júní næstkomandi
verður sr. Agnes M. Sigurðardóttir vígð
til embættis biskups Íslands. Herra Karl
Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígir sr.
Agnesi og meðal vígsluvotta eru ellefu
erlendir
biskupar.
Vígsluat-
höfnin
fer fram í
Hallgríms-
kirkju
klukkan
14.00 og
er öllum
opin.
RÚV mun
einnig
sjónvarpa
beint frá
athöfninni.
Þrír kórar syngja við athöfnina; Mótettukór
Hallgrímskirkju, Dómkórinn og kirkjukór
Bolungarvíkur. Dómkórinn, undir stjórn
Kára Þormars, mun einnig syngja fyrir
athöfnina eða frá 13.30.
Reynir í annað sinn að
laumast um borð
Einn mannanna fimm sem reyndu að
lauma sér um borð í skip til Ameríku
snemma í gærmorgun er í hópi þeirra
drengja sem komu fylgdarlausir hingað
til lands á árinu og sögðust vera undir
lögaldri. Þetta er í annað sinn sem hann
næst í tilraun við að komast um borð í skip
á leið til Ameríku, samkvæmt heimildum
Fréttatímans.
Að sögn Ólafs William Hand, upplýsinga-
fulltrúa Eimskips, gerist það undan-
tekningarlítið að menn reyni að lauma sér
um borð í skip félagsins á leið til Ameríku.
Af þeim sökum er mikill öryggisviðbúnaður
viðhafður þegar skip eru hér í höfn á leið
til Ameríku.
Aðspurður segir hann engann hafa tekist
að lauma sér milli landa með skipum
félagsins en einu sinni þurfti að snúa við
skipi sem komið var út fyrir Reykjanes-
skagann þegar laumufarþegi uppgötvað-
ist. „Eimskip yrði að greina milljónasekt í
Bandaríkjunum og Kanada ef í ljós kæmi að
laumufarþegi komi þar til lands með skipi
félagsins frá Íslandi,“ segir Ólafur. -sda
s em kunnugt er hefur ríkis-saksóknari fellt niður nauðg-unarkæru á hendur mér og
Guðríði unnustu minni. Ég hef
hingað til forðast að ræða þetta
mál opinberlega, ef frá eru taldar
tvær stuttar yfirlýsingar sem ég
gaf út um málið þar sem ég ítrekaði
sakleysi mitt. Nú, þegar mér hefur
borist í hendur rökstuðningur rík-
issaksóknara fyrir niðurfellingu
kærunnar finn ég mig nú knúinn
til, vegna misvísandi viðbragða sem
sjá má á internetinu, að koma eftir-
farandi á framfæri:
Í fyrri yfirlýsingum mínum hélt
ég því fram að nauðgunarkæran
væri fráleit og ekkert í málinu benti
til sektar, hvorki framburður kær-
anda eða vitna, né önnur gögn máls-
ins. Í rökstuðningi ríkissaksóknara
fyrir niðurfellingu málsins er fram-
burður minn og Guðríðar um atvik
sagður staðfastur og samræmist
öðrum gögnum málsins og ekkert
bendi til að við hefðum samræmt
framburð til að fegra hlut okkar.
Hins vegar telur ríkissaksóknari
að ekki verði framhjá því litið að í
framburði kæranda var ekki inn-
byrðis samræmi í skýrslum hennar
hjá lögreglu. Og heldur ekki sam-
ræmi í því sem haft var eftir henni
á Neyðarmóttöku strax í kjölfar
hins meinta brots og þess sem hún
skýrði frá hjá lögreglu.
Þá kemur fram í rökstuðningi rík-
issaksóknara að engin réttarlæknis-
fræðileg gögn sýni fram á að brotið
hafi verið kynferðislega á meintum
brotaþola í umrætt sinn.
Síðan eru mörg önnur atriði, sem
ríkissaksóknari tekur ekki fram í
rökstuðningi sínum fyrir niðurfell-
ingunni, sem benda ótvírætt til þess
að kæran sé ekki á rökum reist.
Hingað til hafa allar atburðalýs-
ingar í þessu ömurlega máli, sem
birst hafa í fjölmiðlum, einkum
DV, komið frá „stuðningsmönnum“
stúlkunnar sem kærði okkur.
Þessar atburðalýsingar
eru í meginatriðum
rangar og stund-
um hrei nn
uppspuni,
eins og til
dæmis sú
fullyrðing
að stúlk-
a n ha f i
þurf t að
gangast
undir
lækn-
isað-
gerð eftir samskipti mín við hana.
Ekkert slíkt kemur fram í gögnum
málsins.
Því miður hafa fjölmargir byggt
afstöðu sína á grunni þessara
röngu upplýsinga, og sumir þeyst
fram á ritvöllinn og opinberað sína
„ígrunduðu“ og „réttlátu“ nauðgun-
ardóma yfir mér.
Eins og gefur að skilja er ég mjög
ósáttur við þetta mál og allt sem því
tengist. Ég mun óska eftir því við
þar til bæra aðila að fá skýringar á
því hvað varð til þess að málið fór
jafn langt og raun ber vitni? Hvers
vegna það tók þennan óratíma að
fella það niður og hvort að eitthvað
óeðlilegt eða saknæmt hafi átt sér
stað í tengslum við kæruna? Hef
ég falið lögmanni mínum að koma
þeim óskum á framfæri með viðeig-
andi hætti.
Illgirnin og hefndarhugurinn hjá
mörgum þeirra sem tjáðu sig um
mig í tengslum við þetta mál ætti
að vera öllum íhugunarefni. Há-
skólakennarar, rithöfundar, emb-
ættismenn, stjórnmálamenn og
fjölmargir aðrir gengu miklu lengra
en eðlilegt getur tal-
ist, svo mjög að á tímabili fékk ég
það hreinlega á tilfinninguna að það
væri einlæg von nokkurra þeirra
sem dómharðastir voru, að nauðg-
un hefði átt sér stað! Þetta ömurlega
mál skyldi nýtt sem réttlæting eða
vopn í einhverskonar „hugmynda-
baráttu“, svo ósmekklega sem það
nú hljómar. Eða sem vopn í höndum
þeirra sem einhverra hluta vegna
töldu sig eiga eitthvað sökótt við
mig. Örlög og heill stúlkunnar virt-
ust aukaatriði. Eða, hvað annað er
hægt að lesa út úr ummælum Sól-
eyjar Tómasdóttur, borgarfulltrúa
Vinstri grænna, á Facebook, þegar
hún sagði: „Nú er bara að krossa
fingur“ og tengdi frétt þess efnis að
Ríkissaksóknari væri kominn með
málið á sitt borð? Krossa fingur
um hvað? Að stúlkunni hafi verið
nauðgað eða að saklaust fólk yrði
ákært?
Þetta mál hefur verið þungbært
fyrir mig, unnustu mína og okkar
nánustu. Þrátt fyrir sakleysi okkar
hefur mannorð okkar beggja beð-
ið alvarlegan skaða. Þar fyrir utan
fylgir því nær óbærileg vanlíðan að
verða fyrir ásökun um svo alvar-
legan glæp. Ofan á það bættist svo
mjög einhliða fjölmiðlafár.
Að síðustu vil ég ítreka að nauðg-
un er í mínum huga alvarlegur
glæpur. Það er einnig alvarlegt mál
að kæra fólk fyrir slíkan glæp að
ósekju og ég á engan annan kost
en að bera hönd fyrir höfuð mér.
Ég vona innilega að þetta mál verði
ekki til þess að draga úr trúverðug-
leika raunverulegra fórnarlamba
kynferðisofbeldis, eða möguleik-
um þeirra að ná fram rétti sínum
– en sú hætta er fyrir hendi þegar
rangar sakir eru bornar á fólk. Ef
svo reynist liggur ábyrgðin ekki hjá
mér heldur öðrum þeim sem hafa
viljað gera sér mat úr þessu máli.
Virðingarfyllst,
Egill Einarsson
Yfirlýsing egill einarsson um ákVörðun ríkissaksóknara
Óskar skýringa á með-
ferð nauðgunarkæru
Ríkissaksóknari hefur fellt niður nauðgunarkæru á Egil Einarsson og unnustu hans. Egill hefur
sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins sem fer hér á eftir.
Ólafur Ragnar með átta pró-
sentustiga forskot á Þóru
Ólafur Ragnar Grímsson hefur átta prósentustiga forskot á Þóru
Arnórsdóttur samkvæmt nýrri könnun Gallup á fylgi við forseta-
frambjóðendur, sem Ríkisútvarpið birti í gær. Ari Trausti Guð-
mundsson og Herdís Þorgeirsdóttir bæta við sig fylgi frá síðustu
könnun. Ólafur Ragnar Grímsson er, samkvæmt könnuninni, með
mest fylgi frambjóðendanna eða 44,8 prósent þeirra sem tóku
afstöðu. Það er um einu prósentustigi minna fylgi en í síðustu
könnun. Þóra Arnórsdóttir mælist með 37 prósenta fylgi, um
tveimur prósentustigum minna en síðast. Bilið milli þeirra hefur
því aukist um eitt prósentustig á tveimur vikum. Þá var munur-
inn sjö prósentustig en er nú átta. Ari Trausti Guðmundsson er
með 10,5 prósenta fylgi og Herdís Þorgeirsdóttir með stuðning
5,3 prósenta kjósenda. Bæði Ari Trausti og Herdís bæta lítillega
við sig fylgi frá síðustu Gallupkönnun en aðrir frambjóðendur
missa fylgi. Andrea J. Ólafsdóttir er með 1,6 prósenta fylgi og
Hannes Bjarnason með 0,8 prósent. - jh
8%
MunuR Milli
TVEGGJA
EFSTu
21. júní 2012
Gallup
Höskuldur Daði
Magnússon
hdm@frettatiminn.is
2 fréttir Helgin 22.-24. júní 2012