Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 6
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Stórmeistarar á
Skákhátíð á Ströndum
Skákhátíð á
Ströndum 2012
verður haldin um
helgina og er efnt til
fjölteflis á Hólmavík
og skákmóta í
Djúpavík, Trékyllisvík
og Norðurfirði. Von
er á stórmeisturunum Helga Ólafssyni,
Jóhanni Hjartarsyni og Þresti Þórhallssyni,
auk skákáhugamanna víða að. Þá munu
mörg af efnilegustu skákbörnum landsins
taka þátt í hátíðinni, sem er öllum opin.
Fjöldi viðurkenninga og verðlauna eru í
boði. Hátíðin hefst með fjöltefli á Hólmavík
klukkan 16 á föstudaginn, þegar Róbert
Lagerman, heiðursgestur hátíðarinnar,
teflir fjöltefli. Á föstudagskvöld klukkan 20
verður tvískákarmót í Hótel Djúpavík og
á laugardag klukkan 13 hefst Afmælismót
Róberts Lagerman í samkomuhúsinu í
Trékyllisvík. - jh
Mjólkin hækkar
Mjólkurlítrinn hækkar um næstu
mánaðarmót um 4 prósent. Verðlagsnefnd
búvara tilkynnti þetta í gær. Staðhæft er
að ástæður þessara verðbreytinga séu
launabreytingar og hækkanir á aðföngum
við búrekstur.
Í fréttatilkynningu
frá verðlagsnefndinni
segir að afurðastöðva-
verð til bænda hækki
um 2,80 krónur á lítra
mjólkur, eða um 3,6
prósent. Þá hækkaði
vinnslu- og dreifingar-
kostnaður mjólkur um
tæp 4,4 prósent.
Funda með ungu fólki
Allir frambjóðendur til embættis forseta
Íslands hafa boðað komu sína á fund með
ungu fólki í Ráðhúsi Reykjavíkur á mánu-
dagskvöld klukkan 20. Reykjavíkurráð
ungmenna, í samstarfi við Landssamband
Æskulýðsfélaga og Áttavitann, boðar til
fundarins og gefst ungu fólki þar tækifæri
til að spyrja frambjóðendurna spjörunum
úr. Fundurinn er opinn öllu ungu fólki.
É g hef ekkert á móti þessu skotprófi sem slíku, það getur vissulega verið til góðs; setur fókusinn á vopnið og það að menn
haldi sér í æfingu. En þetta er alltaf spurning um
framkvæmdina,” segir Pálmi Gestsson leikari
og skotveiðimaður sem sannarlega mátti ganga
í gegnum mjög svo taugastrekkjandi ferli áður
en hann náði því umdeilda prófi sem áskilið er að
þeir sem fara á hreindýr hafi staðist.
Þann 14. júní 2011 var samþykkt breyting á
lögum þar sem gerð var aukin krafa til hreindýra-
veiðimanna: „Enginn má stunda hreindýraveiðar
nema hafa til þess leyfi, vera í fylgd með leiðsögu-
manni og hafa staðist verklegt skotpróf,“ segir í
bréf sem barst til þeirra sem ekki hafa enn lokið
skotprófinu en fengu leyfi. Fréttatíminn hefur
fjallað um málið og meðal annars sagt frá því að
samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun,
þrjátíu prósenta fall sé á þessum prófum sem fara
fram á 22 stöðum víðsvegar um landið, próf sem
eru umdeild meðal annars vegna þess að menn
sóttu um leyfi á tilteknum forsendum en reglum
var svo breytt eftir á. Þá þykir prófið strangt.
Veiðiriffill ekki skotfimigræja
Pálmi segir að menn hafi fullyrt í sín eyru að í
þeim löndum sem við berum okkur helst saman
við sé það annað hvort þannig að
veiðimönnum beri að standast skot-
próf eða að þeim sé gert að fara til
veiða með leiðsögumönnum. Sjálfur
lenti Pálmi í nokkrum hremmingum
er varðar þetta próf eins og svo
margir aðrir veiðimenn, en tíma-
mörk er varðar að hafa staðist prófið
eru nú um mánaðarmót, annars
missa menn leyfið.
„Þetta er að strangt próf,“ segir
Pálmi sem náði prófinu í þriðju
atlögu. Fréttablaðið fékk hann til að
segja af reynslu sinni sem má heita
lýsandi fyrir það sem skotveiðimenn
landsins eru að ganga í gegnum um
þessar mundir. Pálmi kemur inn á
eitt atriða sem veiðimenn telja gagn-
rýniverð, sem er að hitta þarf fimm
skotum í 14 sm skotmark í 100 m
fjarlægð. Á veiðislóð er um að ræða
eitt skot og þá er hjörðin rokin. Sjálf-
ur er Pálmi þaulvanur veiðimaður, hefur á löngum
veiðmannsferli fellt sjö dýr.
„Það hefur aldrei klikkað skot hjá mér á
veiðum. Ég felldi einu sinni dýr á 270 metrum. Ég
er með 7 mm Remington Magnum, öflugt kaliber,
má ekki öflugra vera. Þetta er veiðiriffill en ekki
skotfimigræja.“
Við að missa hreindýrið
Pálmi fór engu að síður nokkuð viss til prófs, enda
reynslunnar smiður í þessum efnum. En, fyrsta
skotið var þremur millimetrum utan hins 14 sentí-
metra hrings. Og þar með var það búið. Hann
skaut engu að síður fjórum skotum til og voru
þau öll vel innan hrings. Hann meldaði sig í prófið
strax aftur og þá gekk allt sem í sögu nema:
„Fyrsta skotið beint í mark, annað, þriðja, fjórða
... en, fimmta var rétt utan við. Heyrðu, nú fór mér
ekki að lítast á þetta. Það getur ýmislegt spilað
inn í, vindur, andardráttur og svo framvegis, en
hvur rækallinn. Er ég einn þeirra sem var svo
heppinn að fá dýr, tarf á tvö sem eru 15 prósenta
líkur og missi svo dýrið á skotsvæðinu?“
Pálmi þurfti því að taka prófið þriðja sinni og
var það eðli málsins álag á taugakerfið, enda
lokatækifæri. Og, sem betur fer gekk þá allt eins
og í sögu. „Nú skal enginn misskilja mig, það er
jákvætt að menn og vopn séu í lagi þegar haldið er
til veiða. En, við erum að tala um að tvö skot af 15
hafi verið þrjá millímetra utan hrings. Algjörlega
við hringinn en snertu hann ekki. Þá hefði ég
sloppið – og ég slapp en það munaði mjóu.“
Kostnaður við hreindýraveiðar eru seint undir
300 þúsund krónum á mann sé litið til kostnaðar
við leyfi, ferðir, leiðsögumann, gistingu og annan
kostnað. Gjald við prófið er svo 4.500 krónur, í
hvert skipti, og þegar við bætist að riffilskot eru
dýr er hætt við að þetta togi verulega í pyngju
venjulegs íslensks veiðimanns.
Jakob Bjarnar Grétarsson
jakob@frettatiminn.is
Hreindýraveiðar Skotpróf
Taugastrekkjandi
skotpróf Pálma
Er ég einn
þeirra sem var
svo heppinn
að fá dýr, tarf á
tvö sem eru 15
prósenta líkur
og missi svo
dýrið á skot-
svæðinu?
Pálmi Gestsson leikari er kunnur skotveiðimaður og er einn þeirra þúsund af fjögur þúsund sem
fékk „hreindýr“ 2012. Hann gekk í gegnum nokkrar hremmingar áður en hann náði umdeildu
prófi sem hreindýraveiðimönnum er nú gert að undirgangast – á ákveðnu augnabliki sá Pálmi
fyrir sér að það yrðu engar hreindýraveiðar þetta árið.
Pálmi Gestsson. Þaulvön skytta en þurfti að sætta sig
við að falla tvisvar á prófi þó árangurinn hafi verið
að tvö skot af fimmtán voru 3 millímetra utan hins 14
sentímetra hrings.
Borgarráðsfulltrúar Vinstri-grænna
og Sjálfstæðisflokks óskuðu á borgar-
ráðsfundi þann 7. júní eftir áliti innri
endurskoðanda Reykjavíkurborgar
og greinargerð frá menningar- og
ferðamálasviði um boðsferð WOW
til Parísar. Einar Örn Benediktsson,
borgarfulltrúi Besta flokksins og for-
maður menningar- og ferðamálaráðs,
þáði boðsferð flugfélagsins í jómfrúar-
flugi þess til Parísar á dögunum sem
og tveir embættismenn menningar- og
ferðamálasviðs.
Í bókun minnihlutans segir meðal
annars: „Óskað er eftir áliti innri endur-
skoðanda á ferðalaginu með hliðsjón
af siðareglum og góðum starfsháttum
kjörinna fulltrúa og embættismanna á
vegum borgarinnar. Jafnframt er óskað
eftir greinargerð frá menningar- og
ferðamálasviði um ástæður og aðdrag-
anda ferðalagsins.“
Fréttatíminn skýrði frá því í síðustu
viku að Steingrímur J. Sigfússon,
ráðherra og formaður Vinstri grænna,
aðstoðarmaður hans, fulltrúar bæjar-
stjórnar Akureyrar og lykilmenn ís-
lenskrar ferðaþjónustu fóru í boði Ice-
landair til Denver í Bandaríkjunum um
miðjan maí síðastliðinn.
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi
Vinstri-grænna, var spurð hvort
ekki væri tilefni til að óska eftir
skýringum hjá formanni flokks
hennar á boðsferð hans til Den-
ver á sama hátt og óskað hefði
verið eftir skýringum á boðs-
ferð Einars Arnar til Parísar.
„Ég hef ekki gagnrýnt Einar Örn
opinberlega í tengslum við þessa
ferð heldur einungis spurt um það
hvernig ferðin samræmist siða-
reglum borgarfulltrúa,“ segir
Sóley. „Það er að sjálfsögðu alltaf
matsatriði hvenær á að þiggja
svona ferðir og líta ber til þess
hvaða hagsmunir eru í húfi,“ segir
Sóley. „Ef það er mat Steingríms
að hann hafi verið að gæta hags-
muna Íslendinga og íslensk
viðskiptalífs sem ráðherra,
líkt og fram kemur í frétt-
inni, finnst mér sú skýring
nægja,“ segir Sóley. „Ef ráða-
menn telja ástæðu til þess að
fara til útlanda af einhverjum
ástæðum finnst mér eðlilegast
að það sé greitt af ríkinu þótt
það sé að sjálfsögðu matsatriði í
hvert sinn,“ segir hún.
Stjórnmál Siðareglur og boðSferðir ráðamanna
Vilja skýringu frá andstæðingum en ekki samherjum
Áframhaldandi bati á vinnumarkaði
Vinnumarkaðurinn hefur verið að taka við sér undanfarið. Atvinnuleysi hefur
verið að minnka og fjöldi starfandi að aukast. Atvinnuleysi var 8,5% í maí í
ár samanborið við 11,0% í maí í fyrra, samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hag-
stofunnar sem birt var á miðvikudaginn og Greining Íslandsbanka vitnar til. „Í
fjölda fóru atvinnulausir úr því að vera 20.500 niður í 15.900 á tímabilinu sem
er fækkun um 4.600 manns, sem verður að teljast umtalsvert. Fjöldi starf-
andi fer þá úr 165.500 upp í 170.600 og hlutfall starfandi úr 74% upp í 76%,“
segir Greiningin. „Virðist sá hagvöxtur sem verið hefur undanfarið,“ segir
enn fremur, „nægur til þess að draga úr slakanum á vinnumarkaði. Mældist
vöxturinn 3,1% á síðastliðnu ári og er það nokkuð umfram jafnvægisvöxt hag-
kerfisins. Hagkerfið er þannig á leið upp úr þeim öldudal sem það lenti í við
hrun bankakerfisins árið 2008.“ - jh
6 fréttir Helgin 22.-24. júní 2012