Bókbindarinn - 01.04.1973, Page 5
BÓKBINDARINN
5
Guðgeir Jónsson og Stefán Jóh. Stefánsson fv. for-
sætisráðherra í kröfugöngu verkalýðsins 1. maí sl.
GUÐGEIR
ÁTTRÆÐUR
Guðgeir Jónsson varð áttræður
25. apríl s. 1. A afmælisdaginn
tók hann á móti gestum í Domus
medica og var þar saman kom-
inn mikill fjöldi fólks. Svanur
Jóhannesson form. B.F.I. ávarp-
aði afmælisbarnið með stuttri
ræðu og afhenti honum skraut-
ritað skjal og var efni þess eft-
irfarandi:
Kæri Guðgeir,
Bókbindarafélag íslands flyt-
ur þér kærar kveðjur og bestu
árnaðaróskir á áttræðisafmæl-
inu.
Af þessu tilefni, og sem lítinn
þakklætis- og virðingarvott fyr-
ir störf þín í þágu félagsins og
verkalýðshreyfingarinnar i
heild hefur það ákveðið að láta
gera af þér brjóstmynd og
fengið til þess listamanninn Sig-
urjón Ólafsson.
Það er ósk félagsins að mynd-
in verði varðveitt á Listasafni
Alþýðusambands íslands.
Lifðu heill
F. h. Bókbindarafélags íslands
Svanur Jóhannesson
formaður.
Ákvörðun þessi hafði áður ver-
ið samþykkt einróma í trúnað-
armannaráði félagsins. Ragnar
Einarsson, bókbindari, skraut-
ritaði skjalið.
Sigurjón Ólafsson hefur nú
lokið við myndina og verður
hún afhent Listasafni A.S'.Í.
þegar hún hefur verið steypt í
eir.