Fréttatíminn - 01.04.2011, Side 6
ferðalög HandHafar forsetavalds
Hæstaréttar-
forseti fylgdi
forseta fjórtán
sinnum
Ingibjörg Benediktsdóttir fór Reykjanesbrautina fjórtán sinnum á
síðasta ári vegna ferða forseta Íslands til útlanda.
H versu oft fylgdir þú, sem handhafi forsetavalds, forseta Íslands til og frá
Keflavíkurflugvelli á síðasta ári?
Þessari einföldu spurningu gat
Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir, forseti Alþingis, ekki svarað
né heldur Ingibjörg Benedikts-
dóttir, forseti Hæstaréttar. Svarið
kom frá forsetaembættinu þar sem
Örnólfur Thorsson forsetaritari
varð fyrir svörum. Í svarinu kemur
fram að Ingibjörg fór fjórtán
sinnum sem fylgdarkona forseta
á síðasta ári og Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir einu sinni. Þó ber
að slá þann varnagla að embætti
forseta Íslands varðveitir ekki sér-
staklega gögn sem veita upplýsing-
ar um fylgd handhafa eða móttöku
í einstökum ferðum og þær tölur
sem hér fara á eftir eru því ekki
tæmandi, að því er fram kemur í
svari embættisins. Á árinu 2009
fór Árni Kolbeinsson, þáverandi
forseti Hæstaréttar, níu ferðir með
forseta annað hvort til eða frá
flugvellinum, Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir fór fimm ferðir og
Ingibjörg Benendiktsdóttir, þá-
verandi varaforseti Hæstaréttar,
fór eina ferð – upphitunarferð fyrir
maraþonið árið eftir þegar hún
bar hitann og þungann af fylgd
forsetans.
Fréttatíminn hefur undanfarnar
vikur skoðað hlutverk handhafa
forsetavalds og reynt að komast
að því hversu yfirgripsmikið starf
þeirra er. Handhafarnir þrír og
varamenn þeirra skrifuðu undir 31
lög á árunum 2009 og 2010 eða rétt
um 12% af öllum þeim lögum sem
samþykkt voru á þessum tveimur
árum.
oskar@frettatiminn.is
Jóhanna aldrei fylgd-
arkona forsetans
Forsætisráðuneytið staðfestir að forsætisráð-
herra fylgi ekki forsetanum til og frá flugvelli.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur aldrei
fylgt Ólafi Ragnari Grímssyni forseta til og frá flug-
velli í hlutverki sínu sem handhafi forsetavalds. Ágúst
Geir Ágústsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, stað-
festir í samtali við Fréttatímann að fylgdin hafi undan-
farin ár verið í höndum forseta Hæstaréttar og forseta
Alþingis. Eftir því sem næst verður komist lagðist það af
í forsætisráðherratíð Davíðs Oddssonar að forsætis-
ráðherra fylgdi forsetanum til og frá flugvelli. Ágúst
Geir sagði jafnframt að handhafar forsetavalds fylgdu
forsetanum eingöngu í opinberar ferðir en ekki einka-
ferðir. -óhþ
Leiðrétting Í frétt um fylgdarkonur forseta Íslands í síðasta blaði var rangt haft
eftir Ágústi Geir Ágústssyni, skrifstofustjóra forsætisráðuneytisins, varðandi hver hand-
hafa forsetavalds fylgdi forseta Íslands til og frá flugvelli. Er beðist velvirðingar á því. -óhþ
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráð-
herra.
Ólafur Ragnar Grímsson fékk fylgd Ingi-
bjargar Benediktsdóttur, forseta Hæsta-
réttar, fjórtán sinnum árið 2010.
Ljósmynd/Teitur
GOLF
KORT
IÐ VEI
TIR
40% A
FSLÁT
T
AF GO
LFVÖ
LLUM
UMHV
ERFIS
ÍSLAN
D
AUK A
NNAR
RA GL
ÆSILE
GRA F
RÍÐIN
DA
GOLF
KORT
IÐ FY
LGIR M
EÐ ÁR
SÁSK
RIFT
TRYG
GÐU Þ
ÉR ÁS
KRIFT
Í SÍM
A 595
6000
EÐA Á
SKJA
RGOL
F.IS
FÖSTUDAG KL. 19:00 – 22:00
LAUGARDAG KL. 17:00 – 22:00
SUNNUDAG KL. 17:00 – 22:00
SHELL HOUSTON OPEN
Í BEINNI UM HELGINA:
KEMST LEE WESTWOOD
AFTUR Á TOPP
HEIMSLISTANS?
Helgin 1.-3. apríl 2011