Fréttatíminn - 01.04.2011, Blaðsíða 66
54 dægurmál Helgin 1.-3. apríl 2011
R uslóperan um Strýhærða Pétur er heljarinnar sirkus fyrir öll skynfærin. Þar er
tekið á sígildum og fjölþjóðlegum
vanda fullorðins fólks – óþekkt
barnanna
okkar. Inn-
blásturinn
að verkinu
er fenginn
frá þýska
lækninum
Hoffmann
sem samdi nokkuð hrottafengnar
en afar skemmtilegar vísur í for-
varnarskyni fyrir sitt eigið barn og
gaf út árið 1844.
Og maður minn, nú er gaman.
Þetta er með afbrigðum hressandi
og frumleg sýning á Litla sviðinu.
Leikhúsgestir standa upp á endann
og snúast í hringi – því í hverju
horni og skúmaskoti er eitthvað að
sjá. Leikmyndin og umgjörðin sjálf
og öll tæknin sem þar að baki býr
Hópurinn
baksviðs
er vonandi
á ásætt-
anlegum
launum.
Strýhærði Pétur
Leikstjóri: Jón Páll
Eyjólfsson
Borgarleikhúsið
leikdómuR StRýhæRði PétuR
Á misjöfnu þrífast börnin best
Halldór Gylfason og
Hallur Ingólfsson í
léttri sveiflu.
Ágúst Ólafsson
Gissur Páll Gissurarson
Hulda Björk Garðarsdóttir
Valgerður Guðnadóttir
Antonía Hevesi, píanó
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Leikmynd: Guðrún Öyahals
Búningar: Katrín Þorvaldsdóttir
Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson
PERLUPORTIÐ
FRUMSÝNING 8. APRÍL 2011
SPRELLFJÖRUG ÓPERUSKEMMTUN!
Þóra Einarsdóttir sópran • Ágúst Ólafsson bassi/Pílatus
Andri Björn Róbertsson bassi/Jesús • Sigríður Ósk Kristjánsdóttir alt
Benedikt Kristjánsson tenór/guðspjallamaður
Mótettukór Hallgrímskirkju
Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag
Stjórnandi Hörður Áskelsson
J.S.Bach BWV 245
Listvinafélag Hallgrímskirkju - 29. starfsár
Miðasala í Hallgrímskirkju • Sími: 510 1000 • Miðaverð: 4.900 kr./3.900 kr.
Miðasala Hofi Akureyri • Sími: 450 1000 • Miðaverð: 3.900 kr.
www.menningarhus.is www.listvinafelag.is
Sunnudaginn 3. apríl 2011 kl. 17
Minningartónleikar um Áskel Jónsson
söngstjóra f. 5. apríl 1911.
Hallgrímskirkja
Reykjavík
Menningarhúsið Hof
Akureyri
Laugardaginn 2. apríl 2011 kl. 17
Föstudaginn 1. apríl 2011 kl. 20
Jóhannesarpassía er undraverð. Ég tek ofan hattinn fyrir Höllu Gunn-
arsdóttur fyrir að púsla leikmynd og búningum svo
haganlega saman og held að Björn Bergsteinn
Guðmundsson ljósameistari sé galdrakarl. Það
er sannkallað þrekvirki að skipuleggja sýningu
sem þessa; öll smáatriðin og nostrið við útfærslu á
ótal brellum hennar kalla á þolgæði og afar snarpan
viðbragðstíma. Hópurinn baksviðs er vonandi á
ásættanlegum launum.
Verkið sjálft er ekki mikill bógur en hugmyndin
er flott og textinn, í mæltu og mátulega rímuðu máli,
er snöfurmannlega þýddur af Halli Ingólfssyni sem
einnig stýrir húsbandinu. Tónlistin, sem knýr áfram
þetta karnival, er alveg frábær og þar sýnir hinn
fjölhæfi leikhópur líka á sér skemmtilegar hliðar.
Og það hallar ekki á neinn, hópurinn er samstiga og
flottur í leik og söng – allir fá að leika lausum hala og
gera það með bravúr.
Ádeilan er ávallt til staðar, henni er helst miðlað
gegnum siðameistarann (Hilmir Snær Guðnason)
sem þó hefði getað tekið sér meira rými og gengist
upp í sinni valdamiklu rullu. Hann minnti reyndar
fullmikið á ákveðinn sjóræningja á köflum. Þórir
Sæmundsson var hreint dásamlegur í hlutverki
málhalta föðurins sem hallar sér að flöskunni. Frú
hans, leikin af Halldóru Geirharðsdóttur, var níst-
andi fyndin og stílfærður samleikur þeirra skemmti-
legur. Ég komst við yfir túlkun Hallgríms Ólafs-
sonar sem á svo auðvelt með að birta áhorfendum
sakleysi barnsins mitt í meinfýsinni – hvort sem
hann er að dragast upp úr hor eða fjúka út í bláinn.
Kristín Þóra Haraldsdóttir er kameljón frá toppi
oní tær, hún fór á kostum og það gerði einnig Hall-
dór Gylfason. Óþekktin fer honum afskaplega vel
og það er eitthvað við leik hans sem kemur manni
í óendanlega gott skap. Leikstjórinn Jón Páll Eyj-
ólfsson bætir hér enn einni fjöðrinni í sinn marglita
leikstjórahatt.
Mér þykir della að banna krökkum að sjá þessa
sýningu. Hún er fyrirtaks skemmtun fyrir fólk á
öllum aldri. Óhlýðni er enda alls ekkert bundin við
börn. Fyrir mér er boðskapur hennar sá að fólk eigi
einfaldlega að haga sér – sérstaklega foreldrar.
Niðurstaða: Frumleg og afskaplega flott sýning.
Kristrún Heiða Hauksdóttir
Lifandi
sviðsmynd
Alþjóðlega brúðuhátíð-
in stendur yfir í Brúðu-
heimum í Borgarnesi
um helgina. Þar kynna
fremstu brúðu-
listamenn Norður-
landanna verk sín. Í
dag, föstudag, sýnir
franski látbragðs- og
brúðuleikarinn Nicolas
Goussef verk sitt,
Dormir. Gousseff hefur
þróað stíl sem byggist
á að nota líkamann
sem lifandi skúlptúr
eða sviðsmynd
fyrir brúðurnar sem
hann stjórnar. Hann
hefur undanfarna
daga haldið námskeið í
látbragði og brúðuleik
fyrir gesti hátíðarinnar
og tekur einnig þátt í
málþingi um brúðulist
sem haldið verður á
laugardag. Nicolas Gousseff notar líkamann sem sviðsmynd fyrir
brúðurnar sem hann stjórnar. Hann sýnir verk sitt,
Dormir, í Brúðuheimum í dag, föstudag.