Fréttatíminn - 01.04.2011, Blaðsíða 8
„Að geta heyrt tónlistina sína aftur eins
og hún á að hljóma er lítið kraftaverk
- ég heyri aftur söng fuglanna“
©
20
10
O
tic
on
In
c.
A
ll
Ri
gh
ts
R
es
er
ve
d.
Pantaðu tíma í
heyrnarmælingu í síma
568 6880
og prófaðu Agil
með framúrskarandi heyrnartækjum frá Oticon
Upplifðu frelsi
Áttu í erfiðleikum með að heyra í fjölmenni eða klið? Finnst þér aðrir tala lágt eða óskýrt?
Tekur þú sjaldnar þátt í hópumræðum en áður? Allt þetta getur verið merki þess að heyrn þín
sé farin að versna.
Agil eru byltingarkennd ný heyrnartæki sem hjálpa þér að heyra betur með minni áreynslu.
Tölvuörflagan í Agil er helmingi öflugri en áður hefur þekkst en tækin eru samt um helmingi
minni en hefðbundin heyrnartæki og búa þar að auki yfir þráðlausri tækni.
Ekki láta heyrnarskerðingu halda aftur af þér og verða til þess að þú missir úr í samskiptum
við aðra. Njóttu þess að heyra áreynslulaust með Agil heyrnartækjum.
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s
Bubbi Morthens
Opið Alla daga frá 12:00 til 18:00
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Arnaldur vill stækka lúxusvillu
Metsölurithöfundurinn Arnaldur Indr-
iðason og eiginkona hans hafa lagt inn
umsókn til skipulagsyfirvalda á Seltjarn-
arnesi þar sem þau óska eftir að fá að
stækka jarðhæð lúxusvillu sem þau festu
kaup á ekki alls fyrir löngu. Afgreiðslu
umsóknarinnar var frestað og óskað eftir
leiðréttum teikningum. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir við húsið
á undanförnum vikum og hefur meðal annars sést til vörubíla keyra burt
frá húsinu, hlaðnir innréttingum og öðru trévirki.
„Hann var að óska eftir endurupptöku á
dómsmáli sem var stefna þrotabús Fons
á hendur Römlu ehf. sem er í hans eigu.
Enginn mætti við þingfestingu málsins á
sínum tíma af hálfu Römlu og það var því
dómtekið og fallist á kröfu þrotabúsins
um riftun á tveimur greiðslum frá Fons
til félagsins. Því var gert að endurgreiða
þrotabúinu þessar fjárhæðir auk vaxta
og málskostnaðar,“ segir Óskar Sigurðs-
son, skiptastjóri þrotabús Fons, um mál
Almars Arnar Hilmarssonar gegn þrota-
búinu sem var dómtekið í síðustu viku.
Óskar sagði að verið væri að yfirfara
beiðni hans um endurupptöku á málinu.
Þrotabúið ákvað að fara fram á riftun
á greiðslunum tveimur til Römlu ehf.,
sem voru annars vegar rúmlega 1,9
milljóna króna greiðsla hinn 16. janúar
2009 vegna þriggja vikna sérfræðiþjón-
ustu og hins vegar rétt tæplega fimm-
tán milljóna króna greiðsla 23. febrúar
vegna starfsloka samkvæmt samkomu-
lagi og nam um tveimur milljónum króna
á mánuði um sex mánaða skeið án virðis-
aukaskatts. Óskar segir að Ramla ehf.
hafi ekki verið í vinnuréttarsambandi
við Fons, enda einkahlutafélag, og enga
samninga hafi verið að finna í bókhaldi
Fons um verktakavinnu Römlu. Krafan
um riftun hafi byggst á því að um gjafa-
gerninga væri að ræða.
Almar Örn Hilmarsson var forstjóri
danska flugfélagsins Sterling í tvígang,
á meðan félagið var í eigu bæði FL Gro-
up og Fons, og var forstjóri þegar það
varð gjaldþrota seint á árinu 2008. Hann
er jafnframt mágur Pálma Haralds-
sonar, aðaleiganda Fons.
Dómsmál GjafaGerninGur
Fyrrverandi forstjóri Sterling vill endurupptöku
Deilt um sautján milljóna króna greiðslu frá Fons til félags í eigu Almars Arnar Hilmarssonar.
Almar Örn
Hilmarsson,
fyrrverandi
forstjóri
Sterling.
Hús Orku-
veitunnar á
Bæjarhálsi.
Orkuveitan ábyrGðarGjalD til eiGenDa
OR greiddi Reykjavíkurborg
670 milljónir á síðasta ári
ESA leggur svokallað ábyrgðargjald á Orkuveituna af samkeppnisástæðum.
Þetta
er gjald
sem við
verðum
að borga
sam-
kvæmt
úrskurði. Í ársreikningi Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2010 kemur fram að meðal gjalda fyrirtækisins er svokallað ábyrgðargjald sem greitt er til eig-
endanna, Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og
Borgarbyggðar, í hlutfalli við eign
hvers þeirra. Alls greiddi Orku-
veitan 716 milljónir til eigendanna
þriggja. Reykjavíkurborg fékk um
670 milljónir í sinn hlut, Akranes
um 39 milljónir og Borgarbyggð sjö
milljónir.
Í samræmi við ákvörðun ESA,
Eftirlitsstofnunar EFTA, sam-
þykkti aðalfundur Orkuveitunnar
árið 2005 að greiða ábyrgðargjald
til eigenda vegna ábyrgða sem
þeir hafa veitt á skuldum sam-
stæðunnar. Það gjald var fyrst
0,25 prósent af skuldunum en var
hækkað í 0,375 prósent í ársbyrjun
2010. Ástæða gjaldsins er sú að
rekstrarform fyrirtækja í opinberri
eigu á samkeppnismarkaði, eins og
raforkumarkaðurinn er, á ekki að
skekkja stöðu þeirra á markaðnum.
Ávinningur Orkuveitunnar í formi
betri lánskjara vegna opinberrar
ábyrgðar þótti skekkja samkeppn-
ina.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Orkuveitunnar, segir í sam-
tali við Fréttatímann að þetta gjald
sé væntanlega komið til að vera
og það verði ekki umflúið. „Það
er skylda okkar að hlíta ákvörðun
ESA og við greiðum þetta gjald,
sem er raunar breytilegt og ræðst
af mismuninum á vöxtum á mark-
aði og raunvöxtum fyrirtækisins.
Það er ekkert sem við getum gert
nema að borga,“ segir Eiríkur.
Spurður hvort einhverjar undan-
þágur séu mögulegar í ljósi erfiðrar
fjárhagsstöðu fyrirtækisins segir
Eiríkur svo ekki vera. „Þetta er
gjald sem við borgum samkvæmt
ákvörðun til þess bærra yfirvalda.“
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@ frettatiminn.is
8 fréttir Helgin 1.-3. apríl 2011