Fréttatíminn - 01.04.2011, Qupperneq 49
Sparnaður í verki
„Borgarfulltrúum verði fjölgað“
Ríkisstjórnin samþykkti að leggja fram
frumvarp um breytingar á lögum um
sveitarfélög, en það felur m.a. í sér að
borgarfulltrúar í Reykjavík verði 23 að
lágmarki en 31 að hámarki. Í dag eru
15 borgarfulltrúar í Reykjavík.
Fá börnin og barnabörnin þá
ekki að borga neitt?
„53% af Icesave greiðist í ár og á
næsta ári“
Meira en helmingur af Icesave-skuld-
inni verður greiddur á þessu og næsta
ári. Þetta sagði Tryggvi Þór Herberts-
son, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins,
á Alþingi.
Fuglafræði
„Tvær grundvallarreglur friðarsinna“
Þráinn [Bertelsson, þing-
maður VG] sagði enga
ástæðu fyrir„haukana
í Sjálfstæðis-
flokknum“ að skjóta
á „friðardúfurnar í
VG“ vegna afstöðu
flokksins til loftárása
í Líbíu.
Þá þarf okkur ekki að leiðast
„Icesave-vefur opnaður“
Kynningarvefur Lagastofnunar vegna
þjóðaratkvæðagreiðslunnar 9. apríl
hefur verið opnaður á vefslóðinni
thjodaratkvaedi.is.
Úr öskunni í eldinn
„Eldur í farmi sorpbíls“
Eldur blossaði upp í sorpbíl Gáma-
þjónustu Norðurlands á Akureyri.
Verður Alfreð sjálfur ekki að
hringja?
„Vilja ekki lána Orkuveitunni“
Norræni fjárfestingarbankinn telur
ekki koma til greina að veita Orkuveitu
Reykjavíkur lán miðað við núverandi
lánshæfismatseinkunn fyrirtækisins.
Vinsamlega spennið beltin
„Lendingar er vænst í vikunni“
„Viðræðurnar eru í ágætum farvegi
og ég vænti þess að við náum lendingu
núna í vikunni,“ segir Vilhjámur
Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins.
Er hann ekki dáinn?
„Skrifuðu Jóni forseta bréf“
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, afhenti
viðurkenningar í ritgerðasamkeppninni
Kæri Jón ... í Þjóðmenningarhúsinu.
Tólf nemendur í 8. bekk grunnskóla
unnu til verðlauna. Samkeppnin var
samstarfsverkefni afmælisnefndar Jóns
Sigurðssonar og mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytisins og nemendur
skrifuðu Jóni bréf.
Vikan sem Var
world class.is
Súperform
Peak Pilates
Hot Rope Yoga
Mömmutímar
Fitnessbox
TRX Combó
Zumba Fitness
CrossFit
SpinningFit
Ketilbjöllur
Herþjálfun
Lífstíll 20+ SKRÁÐU ÞIG NÚNAá worldclass.is og í síma 55 30000
B
es
tu
n
B
irt
in
ga
hú
s
NÝ NÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST
Þyngdarstjórnun – orka – úthald – árangur
Metasys er fáanlegt í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum flestra stórmarkaða
100%náttúrulegt
www.metasys.is
Metasys breytti lífi mínu!
„Fyrir 5 árum byrjaði ég að taka inn Metasys vegna þess að
Metasys hafði hjálpað vinkonu minni mikið sem er með liðagigt.“
Alltaf þreytt
„Í langan tíma hafði ég verið rosalega þreytt, þurfti að
leggja mig daglega og hafði alls ekki þann lífskraft
sem ég vildi hafa. Þetta breyttist á aðeins þrem
dögum eftir að ég byrjaði að taka Metasys.
Metasys er andoxunarefni sem lagar húð, hár
og lífskraftinn. Það líta allir út eins og ung-
lingar sem taka Metasys, sjáið bara mig!
Öll fjölskylda mín tekur Metasys og ég
segi við fólk sem vill breyta lífi sínu
strax, Þá er þetta auðvelda leiðin.“
Kraftaverk
„Sl. vor var ég í miklum rannsóknum
vegna sykursýki og í framhaldinu leitaði
ég til Happ um ráðleggingar með mataræði.
Ég fékk hjálp frá þeirra sérfræðingum og fóru
þeir í gegnum allt hjá mér. Þeir hentu út m.a.
öllum vítamínbirgðunum en eftir stóð Metasys
og lífrænn matur. Ég er allt önnur í dag og
sykursýkin sefur vært. Ég hef upplifað mörg
kraftaverk á lífsleiðinni og Metasys er eitt
þeirra. Það er svo auðvelt að bæta líf
sitt svo um munar með Metasys.“
hefur þetta að segja
um Metasys
Sigríður Klingenberg
Innflutningsaðili: Gengur vel ehf.
P
R
E
N
T
U
N
.IS