Fréttatíminn - 01.04.2011, Síða 54
42 matur Helgin 1.-3. apríl 2011
Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson
matur@frettatiminn.is
Stout
5,8%
335 kr. fyrir 330 ml flösku
Þessi stout er mjög
dökkur og bragðmikill
en samt mildur og ljúfur
með temmilegri beiskju
og alls ekki ágengur
eða þungur. Það er
kaffi- og jafnvel súkku-
laðikeimur og reyktur
tónn í honum. Þetta er
bjór fyrir sælkera og
hentar einstaklega vel
með mat, sérstaklega
aðeins sætum mat, og
gæti einnig verið frábær
út í sósuna. Ekki drekka
hann of kaldan.
Bolli er ekki bara bolli og rétta útlitið getur
breytt öllu. Smekkur manna er mismunandi
og bollarnir frá Kahla eru misstórir, mislitir
og fjölbreyttir í laginu svo flestir geta fundið
þann rétta fyrir sig. Spáðu í bollana hjá Kokku,
í verslun okkar eða á kokka.is
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Bollaleggingar Brögðóttur bruggmeistari
V
insælasti bjórinn
á Íslandi er Vik-
ing Gylltur frá
Viking Ölgerðinni
á Akureyri. Þar er
á ferð afbragðsgóður lagerbjór
sem fellur vel að bragðlaukum
landans. Viking Ölgerð lumar
þó á fleira góðgæti því þar eru
nú bruggaðar fjórar bjórtegund-
ir í línu sem kallast Íslenskur
Úrvals. Nýjasta viðbótin í þessa
úrvalslínu er Páska Bock sem
fylgir í kjölfar hins geysivinsæla
Jóla Bock sem sló í gegn um
síðustu jól og seldist þá upp.
Baldur Kárason, bruggmeist-
ari Viking fyrir norðan, segir
að hugmyndin að úrvalslínunni
hafi kviknað fyrir nokkrum
árum. „Það var strax hugmynd-
in að nota þessa línu til að koma
með eitthvað nýtt og öðruvísi á
íslenskan markað, eitthvað sem
hefur ekki verið reynt áður,“
segir Baldur. „Í þessari línu er
jafnan lagt meira í bjórinn. Það
er ekkert til sparað í hráefnum,
það fer meiri vinna og nostur í
gerð allra tegundanna og allar
taka þær lengri tíma í fram-
leiðslu en hefðbundinn bjór.
Þetta er góð æfing fyrir brugg-
meistarann,“ segir Baldur
einnig.
Bjórinn sem reið á vaðið
sumarið 2008 var fyrsti íslenski
Stout-bjórinn, sem var ólíkur
öllum öðrum íslenskum bjór-
tegundum sem þekktust þá á
markaðnum. Í fyrra bættist svo
við Pils Organic sem er fyrsti
íslenski bjórinn sem eingöngu
er bruggaður úr lífrænu hráefni
og samkvæmt lífrænt vottuðu
framleiðsluferli. „Þetta er huml-
aður bjór í ætt við suður-þýskan
pilsbjór enda flytjum við inn líf-
rænt ræktaða bæverska humla
í hann,“ segir Baldur brugg-
meistari.
Fyrir síðustu jól kom svo,
eins og áður segir, fyrsti ís-
lenski Bock-bjórinn á markað,
Íslenskur Úrvals Jóla Bock.
„Okkur fannst vanta karakter-
mikinn jólabjór á markaðinn
og Bock-týpan hentaði best í
það,“ segir Baldur. Velgengni
Jóla Bocksins varð svo til þess
að ráðist var í að brugga Páska
Bock núna fyrir páskana. „Við
höfðum Páska Bockinn sterkari
og karamellukenndari en Jóla
Bockinn enda er bragðmikill
bjór hluti af páskahefðinni í
bjórbruggun,“ segir Baldur
einnig.
Í framtíðinni má búast við
fleiri bjórtegundum í úrvalslínu
Viking, að sögn Baldurs, enda
hefur hann nóg af hugmyndum
að nýjum bjórtegundum sem
hann langar að kynna fyrir ís-
lenskri þjóð. „Það er klárlega
markaður fyrir svona sérstak-
ari bjórtegundir, sem og árs-
tíðabundinn bjór, og við ætlum
okkur að halda áfram að kynna
nýjungar,” segir bruggmeistar-
inn Baldur.
Pils Organic
5%
330 kr. fyrir 330 ml
flösku
Þetta er eini íslenski
bjórinn úr lífrænt
ræktuðu hráefni. Hér
er greinilega vandað
til verka. Léttur með
greinilega humla í
bragði, létta beiskju og
ferskleika. Það er vor
í honum og fágun sem
minnir á annan afbragðs
pilsner, hinn belgíska
stjörnubjór Stella Artois.
Þetta er tyllidagabjór.
Jóla Bock
6,2%
Aðeins fáanlegur
um jól.
Þessi bjór kom eins
og stormsveipur inn á
jólamarkaðinn í fyrra
og fékk bæði góða
dóma og viðtökur.
Mikil og góð lykt.
Sætur með karamellu-
keim, aðeins ristaður
með löngu möltuðu
eftirbragði. Fullur
munnur af bragði og
frábær matarbjór.
Páska Bock
6,7%
419 kr. fyrir 330 ml flösku.
Bock bjór var mikið
bruggaður á vorin í Evrópu
hér á árum áður og oftar
en ekki notuðu bæverskir
munkar bock-bjór sem
sína einustu næringu á
föstunni. Þessum bjór
svipar mjög til Jóla
Bocksins. Hann er þó ögn
kröftugri og maður finnur
meira fyrir alkóhólinu
en finnur þó sama góða
maltaða eftirbragðið.
Þessi er fullkominn með
páskalambinu. Má alls ekki
drekkast of kaldur.
Það var strax
hugmyndin að
nota þessa línu
til að koma
með eitthvað
nýtt og öðru-
vísi á íslenskan
markað, eitt-
hvað sem hefur
ekki verið reynt
áður ...
Baldur Kárason, bruggmeistari Viking „Í þessari línu er jafnan lagt meira í bjórinn. Það
er ekkert til sparað í hráefnum, það fer meiri vinna og nostur í gerð allra tegundanna
og allar taka þær lengri tíma í framleiðslu en hefðbundinn bjór. Þetta er góð æfing fyrir
bruggmeistarann.“