Fréttatíminn - 10.06.2011, Page 4
Handhægar
umbúðir
með tappa
Barnsins stoð og stytta
Nánari upplýsingar um
Stoðmjólk á www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Öll ungmenni fá vinnu í Garðabæ
Afleitt vor með miklum kuldum hefur skaðað arnarvarp í vor. Ljósmynd/Finnur Logi Jóhannsson
Haförn Kuldinn í vor segir til sín
Ú tlit með arnarvarp er ekki gott á þessu ári. Færri pör hafa verpt en undanfarin ár og fleiri hreiður
hafa misfarist það sem af er ári en mörg
undanfarin ár, að því er heimildir Frétta-
tímans herma. Þetta stafar af afleitu tíðar-
fari en vorið hefur verið afar kalt á helstu
varpstöðvum arnarins við Breiðafjörð,
eins og raunar um land allt. Tveir þriðju
hlutar arnarstofnsins verpa við Breiða-
fjörð.
Sérfræðingar fylgjast grannt með varpi
arnarins, enda stofninn fáliðaður. Spár
um árangur arnarvarpsins liggja ekki
fyrir en staðan verður metin á ný eftir um
mánuð. Þá kemur í ljós hvernig til hefur
tekist. Viðkvæmasti tíminn er tvær fyrstu
vikurnar eftir að unginn kemur úr eggi.
Hið slæma vor nú kemur í kjölfar
tveggja góðra, 2009 og 2010. Arnarvarp
heppnaðist mjög vel í fyrra. Metár var
í fjölda unga sem komust á legg, annað
árið í röð. Verpt var í 49 hreiður í fyrra.
Fjöldi unga sem komst á legg var 38 úr 27
hreiðrum en árið 2009 komust 36 ungar
á flug. Það var mesti fjöldi unga frá árinu
2004 en þá lifðu 34 ungar.
Haförninn er mjög fáliðaður varpfugl
en talið er að um 65 varppör séu í stofnin-
um. Alls telur stofninn um 300 fugla með
ungum en ernir verða kynþroska fjögurra
til sex ára. Örnum hefur fjölgað nokkuð á
undanförnum áratugum en þeir voru nær
útdauðir skömmu eftir miðja síðustu öld
vegna eiturútburðar og ofsókna. Fyrsta
árið er örnum erfitt en ungir ernir halda
til á heimasvæði foreldra sinna fram eftir
hausti og jafnvel fram á útmánuði en eru
þá reknir burt og þurfa að sjá sér far-
borða.
Íslenski haförninn er á válista en þrátt
fyrir það sýna rannsóknir Náttúrufræði-
stofnunar Íslands, á hræjum sem fundist
hafa á undanförnum árum, að meira en
fimmti hver örn sem fundist hefur dauður
hefur verið skotinn. Örninn hefur verið
friðaður hér á landi í nær öld, frá árinu
1914.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Afleitt tíðarfar veldur
skaða á arnarvarpi
Færri arnarpör verptu en undanfarin ár og fleiri hreiður misfórust.
„Það er heilbrigt og gott
að vakna á morgnana og
fara að gera eitthvað,“
segir Gunnar Einarsson,
bæjarstjóri í Garðabæ,
en öllum ungmennum
sem sóttu um sumar-
starf hjá kaupstaðnum
hefur verið boðin vinna í
sumar eins og undanfarin
ár. Í leiðara Fréttatímans
síðastliðinn föstudag
voru stóru sveitarfélögin
á höfuðborgarsvæðinu,
Reykjavík, Kópavogur og
Hafnarfjörður, gagn-
rýnd fyrir forgangsröðun
verkefna en þau vísuðu frá
þúsundum ungmenna sem
sóttu um sumarvinnu. Sá
hópur ungmenna, á við-
kvæmasta aldrei, mælir
því göturnar. „Við horfum
á þetta sem forvarnir og
uppeldismál og síðan er
það gott fyrir ungmennin
að vinna sér inn peninga,“
segir Gunnar. Alls eru
yfir 560 ungmenni, fædd
1994 og eldri, í vinnu
hjá Garðabæ í sumar og
talan fer yfir 700 þegar
Vinnuskóli Garðabæjar
bætist við. -jh
Viðkvæm-
asti tíminn
er tvær
fyrstu vik-
urnar eftir
að unginn
kemur úr
eggi.
Gasbyssa fjarlægð úr arnarhólma
Flestir virða varp hafarnarins og algera
friðun þessa mikilfenglega fugls,
konungs fuglanna, eins og hann hefur
verið kallaður. Þó eru þeir til sem hafa
horn í síðu hans. Í rannsóknum Náttúru-
fræðistofnunar Íslands hefur komið í ljós
að högl eru í um fimmtungi arnarhræja
sem finnast. Þekkt er að varp fuglsins
hefur verið truflað. Þar hefur verið
gripið til ýmissa ráða, eins og fram kom í
fréttum fyrir sex árum. Þá var gasbyssu
stillt upp við arnarhreiður í hólma á
Breiðafirði. Hún var þannig stillt að hún
sendi frá sér hvelli með reglubundnu
millibili. Hvellir gasbyssunnar fældu
ernina frá varpi í hólmanum. Vitað var
hver stóð að gerningnum. Málið var kært
og búnaðurinn fjarlægður. - jh
CINTAMANI
WWW.CINTAMANI.IS
Peysuveður
Líttu vel út án
þess að sjúga stöðugt
upp í nefið.
Hlýnandi, sérstaklEGa norðaustan- oG
austanlands. skúrir sunnanlands
síðdEGis, En annars úrkomulaust oG víða
sólríkt.
HÖfuðborGarsvæðið: FReMuR HæGuR ViNduR
oG SólRÍKt. SKýjAð oG SKúRiR uM KVöldið.
strEkkinGsvindur, sérstaklEGa vEstan
oG suðvEstanlands. Þar frEmur milt.
svalara mEð norðaustur- oG aust-
ustrÖndinni, En almEnnt frEkar sólríkt.
HÖfuðborGarsvæðið: HAGStæð A-átt oG
lÍKuR á Mildu oG ÞuRRu VeðRi Með Sól.
na-átt oG fEr að riGna ÞEGar líður
á daGinn um landið norðan- oG
austanvErt. léttskýJað sunnan- oG
suðvEstantil.
HÖfuðborGarsvæðið: HæGuR
ViNduR oG Að MeStu BjARt VeðuR.
Hlýnar talsvert
um hvítasunnuhelgina
Nú virðist sjá fyrir endann á ótíðinni, þó
ekki sé enn verið að spá neinum alvöru
sumardögum á næstunni. En um helgina
er ekki annað að sjá en fyrirtaksveður
verði víða um land. Reyndar talsverður
strekkingur, einkum vestantil á
laugardag, en sólin ætti mjög víða
að ná að skína og hitinn þá yfir 10
stigunum að deginum. Sennilega
fer að rigna norðantil seinni-
partinn á hvítasunnudag og
fram á mánudag.
8
5 10 7
8
12
8 9
10
11
12
7 7
6
13
Einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Föstudagur laugardagur sunnudagurveður
Grillflötur 450x600 mm
3 brennarar, ryðfrítt stál
GasGrill EllinGsEn
– FUllT HÚs ÆVinTÝra
REYKJAVÍK • AKUREYRI
ellingsen.is
grillum
í sumar
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 111362
4 fréttir Helgin 10.-12. júní 2011