Fréttatíminn - 10.06.2011, Blaðsíða 54
46 tíska Helgin 10.-12. júní 2011
Útrýmum
fordómum
Ég býst stórlega við því að öll höfum við
staðið okkur að því að dæma fólk áður en
við þekkjum það. Ég veit ekki skýringuna á
þessu háttalagi en einkennilegt er það þó.
Við tölum um manneskjur sem við þekkjum
ekki, dæmum þær og myndum okkur nei-
kvæðar skoðanir. Nú, eða jákvæðar, sem er
þó ekki ríkjandi.
Ég hef oft verið bæði gerandi og þolandi
í þessum efnum. Það veit ég vel. Góðar
vinkonur mínar í dag töldu mig vera allt
aðra en ég er í raun og veru. Og það sama
hélt ég um þær. Kannski er það
klæðnaður, háttalag og tjáningin
sem skipta mestu máli. Ómeð-
vitað flokkum við einstakling-
inn eftir klæðaburði og stimplum hann
sem ákveðna stereótýpu. Höldum honum
jafnvel í ákveðinni fjarlægð því hann á ekki
við okkar persónuleika – tilheyrir hinum
hópnum.
Hinn hópurinn er einfaldlega eitthvað verri
en það sem við erum vön. Stundum er gott
fyrir okkur að kíkja aðeins út fyrir kassann
og kanna ótroðnar slóðir. Vera svolítið líbó
og kynnast fólki sem kemur úr gjörólíkum
menningarhópi. Halda okkur ekki við ein-
hverja ákveðna týpu og sleppa öllum for-
dómum. Því fordómar er hugtak sem
þarf að útrýma. Það leiðir ekkert gott af
sér, býr til leiðindi, vesen og drama.
María Lilja Þrastardóttir er 25 ára. Hún segist
ætla að vinna með geðfötluðum í sumar og læra
svo kvikmyndafræði í Háskólanum frá og með
haustinu.
„Tískuinnblástur má sækja víða og það er alltaf jafn
gaman að fylgjast með því hve íslenskar konur eru
óhræddar við að fylgja eigin sannfæringu þegar
kemur að klæðaburði. Sjálf klæði ég mig eftir skapi
og líðan hverju sinni og minn stíll er mjög breyti-
legur,“ segir María. „Í sumar er ég að skipuleggja
svokallað Slut-Walk í Reykjavík. Þetta er alheims-
hreyfing fólks sem hafnar alfarið klámvæðingu og
hlutgervingu kvenna og þeirri hugmynd að konur
klæddar á einn
eða annan hátt
séu að þóknast
fyrirfram mótuðum
hugmyndum karla um
kynþokka. Vegna þessara hug-
mynda ber því miður á því að konur
sem beittar eru kynferðisofbeldi séu gerðar
ábyrgar fyrir gjörðum gerandans á þeim forsendum
að þær hafi boðið upp á þetta með klæðnaði og
fasi. Því legg ég áherslu á frelsi kvenna til að klæða
sig eins og þær vilja og vekja jafnframt fólk til um-
hugsunar um stöðu fórnarlamba kynferðisglæpa.“
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Ekki fótó-
sjoppuð í
auglýsinga-
herferð
Sænska ofurmódelið Caro-
line Forsling, sem er 35
ára, hefur lagt fram kæru
á hendur snyrtifyrirtækinu
Estée Lauder fyrir að fótó-
sjoppa sig ekki í auglýsingu
fyrir hrukkukrem. Hún segir
að fyrirtækið hafi ekki valið
þá mynd sem rætt var um,
heldur aðra sem geri hana
eldri en hún er í raun og
veru. Caroline heldur því
fram að þessi auglýsingaherferð
hafi eyðilagt feril hennar og fer
því fram á 288 milljónir króna í
skaðabætur.
Innblásturinn kemur úr skugganum
Það fer varla fram hjá nokkrum manni að vorið og sumarið einkennast af
skærum og áberandi litum. En svo virðist litavalið ætla að taka skyndi-
legum stökkbreytingum í haust og hafa helstu tískufyrirtæki heims
sýnt fram á það. Snyrtivörur haust- og vetrarlínu tískurisans Chanel,
Illusions d’Ombre de Chanel, sannar fyrir okkur þessa kenningu því hún
einkennist af málmkenndri áferð og dökkum, drungalegum litum. Hönn-
uður línunnar, Peter Philips, segir innblásturinn koma úr skugganum þar
sem hvergi sést til sólar og þessi lýsing á svo sannarlega við um vörurnar.
Bloggarar hanna
Mac-snyrtivörur
Fyrir nokkrum vikum auglýsti
snyrtivörufyrirtækið Mac eftir
bloggurum sem vildu hanna
sínar eigin Mac-snyrtivörur.
Umsækjendurnir voru margir
en aðeins tíu stelpur voru
valdar og flogið með þær til
Toronto þar sem verksmiðja
Mac er til húsa. Bloggararnir
fengu svo frjálsarar hendur og
hönnuðu sína eigin augnskugga
og gloss. Snyrtisérfræðingar frá
Mac völdu síðan fimm flottustu
glossin og fjóra augnskugga
sem skáru sig úr og verða til
sölu í verslunum Mac í lok júní.
Þriðjudagur
Skór: Fatamarkaður
Buxur: Anderson & Lauth
Undirkjóll: Nostalgía
Ermar: Nostalgía
Hálsmen: Spúútnik
Hattur: Nostalgía
Mánudagur
Skór: Fatamarkaður
Buxur: Spúútnik
Bolur: Kiosk
Belti: Spúútnik
Miðvikudagur
Skór: Fatamarkaður
Sokkar: Nostalgía
Sokkabuxur: Kroll
Kjóll: Spúútnik
Vesti: Lóla
Skart: Spúútnik
Fimmtudagur
Hárskraut: Spúútnik
Samfestingur: Nostalgía
Jakki: Nostalgía
Sokkabuxur: Oroblu
Skór: Gyllti kötturinn
Föstudagur
Skór: Gyllti kötturinn
Pils: Spúútnik
Belti: Spúútnik
Jakki: H&M
Brjóstahaldari: La Senza
Armband: Spúútnik
Sólgleraugu: eBay
Berst fyrir meira frelsi í klæðaburði
5
dagar
dress
FASHIONSHOP.IS
Ný vefsíða með það nýjasta frá
Los Angeles „Borg Englana!“
Við erum líka
á facebook