Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.06.2011, Síða 58

Fréttatíminn - 10.06.2011, Síða 58
50 menning Helgin 10.-12. júní 2011  liza Marklund Myndir fyrir bíó og sjónvarp í bígerð Framleiðslufyrirtækið Yellow Bird hefur, í samvinnu við sænsku sjónvarpsstöðina TV4 og þýsku stöðina ARD, hafið undirbúning á gerð sex kvikmynda eftir bókum Lizu Marklund um blaðakon- una Anniku Bengtzon. Kvikmynd byggð á bókinni Arfur Nóbels er sú eina sem sýnd verður í kvikmynda- húsum en hinar verða sjónvarps- myndir og sýndar samtímis á TV4 og ARD. Hópi handritshöfunda hefur verið falið að skrifa kvikmyndirnar sex. Leit stendur yfir að réttu leikur- unum í hlutverkin en Helena Bergström, sem farið hefur með hlutverk Anniku í tveimur kvik- myndum, kemur ekki til greina sem aðalpersóna nýju myndanna. Liza Marklund er í óða önn að skrifa næstu bók um Anniku Bengtzon sem kemur út í Svíþjóð í haust. Bókin kemur út í íslenskri þýðingu í byrjun næsta árs. Mark- lund hefur skrifað átta bækur um Bengtzon sem hafa selst í yfir þrettán milljónum eintaka og verið þýddar á þrjátíu tungumál. -þt Blaðakonan Annika Bengtzon á hvíta tjaldið v ið erum búin að sýna fyrir fullu húsi frá því við byrjuðum en það kom mér samt skemmti-lega á óvart, þegar ég fór að taka saman sýn- ingarnar, að við erum orðin þriðja stærsta leikhúsið á landinu,“ segir Íris Stefanía Skúladóttir hjá Norður- pólnum. „Og á mánudaginn fengum við tvær Grímutil- nefningar sem mér finnst geðveikt frábært miðað við að við erum bara búin að vera með eitt leikár. Þegar við byrjuðum vorum við með verksmiðju í niðurníðslu þannig að á einu og hálfu ári fórum við þaðan yfir í að verða þriðja stærsta leikhúsið með tvær Grímutilnefn- ingar þar sem Fjalla-Eyvindur er tilnefnd sem ein af bestu leiksýningunum og Edda Björg Eyjólfsdóttir sem ein af bestu leikkonunum.“ Á lista yfir 70 atvinnusýningum á vefsíðu Grím- unnar á leikárinu 2010-2011 á Norðurpóllinn níu; 2 af 10 barnaverkum, 5 af 20 dansverkum og 2 af 40 leik- verkum. Írisi telst því svo til að Norðurpóllinn sé með tæp 13% af öllum atvinnusýningum á leikárinu og með flestar sýningar á landinu á eftir Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Norðurpóllinn er leikhús með þremur sölum og tekur á móti öllum sem vantar rými til listsköpunar á meðan pláss leyfir. Leikhúsið leggur þó aðaláherslu á að styðja við húsnæðislausa atvinnuleik- og dans- hópa. Plastverksmiðjan Borgarplast var áður til húsa í Norðurpólnum en aðstandendur leikhússins breyttu verksmiðjunni í leikhús og unnu sjálfir á fullu við breytinguna. „Við fengum fjölskyldu og vini til að hjálpa okkur og það eru margir handlagnir í kringum okkur þannig að við gifsuðum á fullu, færðum til heilu veggina og keyptum bara vinnu í erfiðustu verkefnin.“ Sögu verksmiðjunnar sem leikhúss má rekja til þess þegar Margrét Vilhjálmsdóttir setti þar upp verkið Hnykil. „Þá var svo kalt hérna að húsið var kallað Norðurpóllinn og nafnið festist við það. Þetta hús er mjög hentugt. Hér er allt á einni hæð og stórar dyr þannig að öryggis- og brunamál eru í fínu lagi.“ toti@frettatiminn.is Lj ós m yn d/ Pe te r J ön ss on  norðurpóllinn athvarf húsnæðislausra leikhópa slær í gegn Norðurpóllinn er funheitur Íris er hæstánægð með árangur Norðurpólsins sem fyrir einu og hálfu ári var verksmiðja í niðurníðslu en er nú öflugt leikhús. Íris og Búi Bjarmar Aðal- steinsson eiga bæði sæti í stjórn Norðurpólsins. Þegar við byrjuðum vorum við með verk- smiðju í niðurníðslu. Sólstöðuhátíð víkinga í Hafnarfirði 16.- 20. júní 2011 Víkingamarkaður - Leikhópur Bardagavíkingar - Erlendir víkingar Víkingaveitingastaðir í tjöldum Kraftajötnar - Handverksvíkingar Dansleikir - Víkingasveitin Glímumenn - Eldsteikt lamb Víkingaveislur öll kvöld, o.fl.o.fl. Fimmtudagur 16. júní. 13.00 Markaður opnaður. 14.00 Bardagasýning Kynning á viðburðum næstu daga, sögumenn, götulistamaður, bogfimi, tónlist, o.s. frv. 18.00 Bardagasýning. 20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum. 21.00 Lokun markaðar. 23.00 Dansleikur Ólafur Árni Bjarnason Trúbador og víkingur. 03.00 Lokun. Föstudagur 17. júní. 13.00 Markaður opnaður. 14.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 14.30 Víkingaskóli barnanna. 15.00 Bardagasýning. 16.00 Víkingasveitin 16.30 Bogfimikeppni víkinga. 17.00 Bardagasýning. 18.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 19.00 Bardagasýning. 20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum. 20.00 Lokun markaðar. 22.30 Dansleikur í Fjörukránni. Gylfi, Rúnar Þór og Megas halda uppi gleðinni. 04.00 Lokun. Laugardagur 18. júní. 13.00 Markaður opnaður. 13.00 Kraftakeppni Magnúsar Ver 14.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 14.20 Kraftakeppni Magnúsar Ver 14.40 Víkingaskóli barnanna. 15.00 Bardagasýning. 15.30 Sagnafólk í Hellinum 16.00 Rósin okkar Þjóðleg tónlist 16.00 Kraftakeppni Magnúsar Ver 16.30 Bogfimikeppni víkinga. 17.00 Bardagasýning. 18.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 19.00 Bardagasýning. 20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum. 20.00 Lokun markaðar. 23.30 Bjartmar Guðlaugsson. 00.15 Dans á Rósum 04.00 Lokun Sunnudagur 19. júní. 13.00 Markaður opnaður. 14.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 14.30 Víkingaskóli barnanna. 15.00 Bardagasýning. 15.30 Sagnafólk í Hellinum 16.00 Rósin okkar Þjóðleg tónlist 16.30 Bogfimikeppni víkinga. 17.00 Bardagasýning. 18.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 19.00 Bardagasýning. 19.30 Loka athöfn og víkingahátíð slitið 20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum. 20.00 Lokun markaðar. 23.00 Tónlist í Fjörugarðinum að hætti víkinga. 02.00 Lokun. Dagskrá sólstöðuhátíðar 2011 Sólstöðuhátíð víkinga verður sett í fimmtánda sinn þann 16. júní og að vanda verður hún fjölbreytt. Dágóður hópur erlendra víkinga kemur til okkar, sumir í fimmtánda skiptið. Að venju eru flestir frá Norðurlöndunum og stærsti hópurinn kemur frá Færeyjum. Þá má nefna að einn besti handverksmaður Grænlands verður með okkur á hátíðinni. Sögumenn, götulistamenn, handverksmenn sem höggva í steina og tré eða berja glóandi járn, bardagamenn og bogamenn, svo eitthvað sé nefnt. Víkingahópurinn okkar Rimmugýgur og víkingahópurinn Hringhorni frá Akranesi verða að vanda með sína skemmtilegu bardaga og glímutök á hátíðinni. Fjöldinn allur af víkingum víðsvegar af landinu hefur boðað komu sína á hátíðina. Á þriðja hundrað víkingar verða á svæðinu þegar mest lætur og fjölhæfir eru þeir eins og sjá má á upptalningunni hér að framan. Dansleikir verða fastir liðir meðan á hátíðinni stendur. Þeir sem koma fram eru Gylfi, Megas og Rúnar Þór, Bjartmar Guðlaugsson og hljómsveitin Dans á Rósum og víkingurinn og trúbadorinn ÓlafurÁrni Bjarnason. Einnig mun hljómsveitin Rósin okkar koma fram en hún hefur sérhæft sig í þjóðlegri tónlist og ekki má gleyma okkar frábæru Víkingasveit. Í lokin vil ég þakka þeim sem stutt hafa þetta framtak í gegnum árin en lógóin þeirra sjást hér til hliðar. Þeir hafa ekki brugðist og eru búnir að standa með okkur í gegnum öll árin, þeim verður seint fullþakkað. Það er von mín að þessi hátíð eigi eftir að halda uppi merki víkinga og halda áfram að gleðja þá gesti sem á hátíðina koma. Gleðilega Sólstöðuhátíð Víkinga Jóhannes Viðar Bjarnason Fjölskylduhátíð HOTEL & Restaurants Nánari upplýsingar er að finna á heimsíðu okkar www.fjorukrain.is Sólstöðuhátíð víkinga er fyrir alla fjölskylduna 16. til 20. júní 2011 GARÐABÆR / ÁLFTANES LÉTTÖL SUMARHÚSIÐ & GARÐURINN H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n NÝJASTA SPENNUBÓK GARÐYRKJUMANNSINS! „Árstíðirnar í garðinum“ er fimmta bókin í bókaflokknum Við ræktum, sem Sumarhúsið og garðurinn gefur út. Höfundur er Vilmundur Kip Hansen garðyrkju- og þjóðfræðingur. Ljósmyndir Páls Jökuls Péturssonar úr íslenskum görðum prýða bókina. Fæst í öllum bókaverslunum og á www.rit.is Leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi hefur heldur betur vaxið fiskur um hrygg. Það var stofnað í janúar 2010 og einu og hálfu ári síðar er það orðið þriðja stærsta leikhús landsins með tilliti til sýningafjölda og fékk auk þess á dögunum tvær tilnefningar til Grímunnar. Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.