Fréttatíminn - 10.06.2011, Blaðsíða 30
ÞÓR BÆRING - 7 TIL 10
ENGIN ÚTVARPSSTÖÐ HEFUR
VAXIÐ JAFN MIKIÐ Á SÍÐUSTU
365 DÖGUM HLUSTUNIN
FER UPP UM 134%
ÚR 13.4% Í 31.4%
SAMKVÆMT MMR KÖNNUN DAGANNA
9. TIL 12. MAÍ 2011
UPPSÖFNUÐ HLUSTUN Í ALDRINUM
18 TIL 49 ÁRA ALLT LANDIÐ
2 fótbolti Helgin 10.-12. júní 2011
É
g er mjög sáttur við þann stað
sem ég er á í dag. Ég hef varla
misst úr leik í eitt og hálft ár
og líður bara virkilega vel,“
segir framherjinn Kolbeinn
Sigþórsson í samtali við Fréttatímann.
Hann er einn af lykilmönnum íslenska
U-21 árs landsliðsins sem tekur þátt í
lokakeppni EM í Danmörku. Og Kolbeinn
getur verið sáttur við sig í dag. Hann lauk
nýlega frábæru tímabili með AZ Alkmaar
þar sem hann skoraði 15 mörk í 31 leik og
var markahæsti maður liðsins. Stórliðið
Ajax vill hann í sínar raðir en AZ vill fá
fimm milljónir evra, rúmlega 800 milljónir,
fyrir Kolbein sem á eitt ár eftir af samningi
sínum við félagið.
En hann hefur ekki alltaf verið jafn
sáttur við sig á stuttum knattspyrnuferli.
Kolbeinn var barnastjarna í boltanum,
sennilega sú skærasta frá upphafi, og varð
markakóngur Shell-mótsins í Vestmanna-
eyjum þrjú ár í röð með Víkingi. Enginn
hefur leikið það eftir fyrr né síðar. Sá sem
komst næst því var Andri bróðir hans sem
varð markakóngur tvívegis. Andri var
gríðarlega efnilegur en þurfti ungur að
leggja skóna á hilluna eftir stuttan feril
sem einkenndist af erfiðum ökkla- og hné-
meiðslum.
„Ég fann alveg fyrir pressunni þegar ég
var yngri. Það var ætlast til mikils af mér
en ég reyndi að hugsa sem minnst um það.
Ég held að mér hafi tekist það ágætlega.
Stefnan var alltaf sett á atvinnumennskuna,
alveg frá því ég sparkaði fyrst í bolta. Þetta
hefur samt ekki verið eintóm sæla. Ég hef
eiginlega verið afskrifaður tvisvar sem
knattspyrnumaður, sem er bara ansi gott
miðað við tuttugu og eins árs aldur,“ segir
Kolbeinn og hlær.
Í fyrra skiptið var hann í fjórða flokki
Víkings. „Ég var í lægð í tvö ár og allir
sögðu að Kolbeinn væri bara búinn – það
yrði ekkert úr honum. Þá fékk ég símtal
frá Zeljko Sankovic, sem var í HK og hafði
þjálfað fyrir Víking. Hann bauð mér að
koma yfir til þeirra og koma mér aftur af
stað. Hann kom mér aftur á réttu brautina
með þrotlausri vinnu í eitt og hálft ár,“
segir Kolbeinn. Í seinna skiptið var hann
nýkominn út til AZ Alkmaar. „Þá var ég
meiddur í næstum tvö ár. Ég hugsaði aldrei
um að ég þyrfti að hætta en það voru allir
búnir að afskrifa mig – bæði félagið og þeir
sem fylgdust með boltanum. Þetta voru
hins vegar ekki það alvarleg meiðsl að ég
náði mér að fullu og lít framtíðina björtum
augum,“ segir Kolbeinn.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Hver er verst klæddur?
Ég myndi segja að
það væri Skúli Jón
Friðgeirsson. Hann er
alltaf í Star Wars-
fatnaði. Þykist vera
brautryðjandi en það
er ekki alveg að ganga
hjá honum.
Hver hlustar á verstu
tónlistina?
Arnar Darri Pétursson.
Hann heldur að hann
sé í þungarokkshljóm-
sveit af því að hann
spilar á gítar. Bönd eins
og Killer Dimon eða
hvað það heitir. Alveg
til skammar.
Hver á flottasta bílinn?
Ég held að Gylfi Þór
taki það með Porsche-
jeppanum. Það er
engin samkeppni.
Hvaða vonda siði er
herbergisfélaginn þinn
með?
Ég er vanalega með
Jóhanni Berg í her-
bergi. Það þarf að
hugsa um hann eins
og lítinn bróður. Það
þarf að vekja hann og
passa lykilinn. Hann
er svolítið gleyminn,
karlinn.
Hver er stæltastur?
Rúrik Gíslason segist
eyða tveimur tímum í
ræktinni á dag. Ef hann
er ekki stæltastur þá er
eitthvað að.
Hver er alltaf á síðustu
stundu?
Það er fyrirliðinn Bjarni
Þór Viðarsson. Hann
notfærir
sér stöðu
sína sem
fyrirliði og
kemur alltaf
tveimur
til þremur
mínútum of
seint.
Hver eyðir
mestum tíma
fyrir framan
spegilinn?
Haraldur Björnsson
kemur sterkur inn hér.
Greiðslan heldur alveg
í 90 mínútur, sama
hvað á dynur.
Hann er með
þvílíkt gel, sem
hann vill ekki
segja frá, og
sparar heldur
ekki andlits-
kremin. Sem
skilar sér
auðvitað
því að hann
er fjall-
myndar-
legur.
Fjölskylda Kolbeins á og rekur Bakarameistarann og öll fimm eldri systkin hans hafa unnið þar í lengri eða skemmri tíma. Faðir
hans Sigþór er bakarameistari, elsta systirin Sigurbjörg hefur verið í stjórnunarstöðu þar undanfarin ár, Björg Kristín, sú sem
kemur næst, er kökumeistari og hefur unnið í bakaríinu, Sigþór Gunnar er lærður bakari og sér nú um tölvumál fyrirtækisins,
Andri er stjórnarformaður bakarísins og Sif, sem er tveimur árum eldri en Kolbeinn, hefur unnið í afgreiðslu undanfarin ár.
Kolbeinn hefur lítið komið nærri fyrirtækinu, að eigin sögn. „Ég vann í tvo tíma einhvern tíma við að skúra og setja deig í form.
Ég hætti eftir það.“ Ljósmynd/Hari
Í búningsklefanum með Alfreð Finnboga
FÓtbolti EM U-21 árs landsliða
Afskrifaður tvisvar
Kolbeinn Sigþórsson þykir vera með efnilegri framherjum Evrópu um þessar mundir og er efstur á óska-
lista stórliðsins Ajax. Miklar vonir eru bundnar við hann á Evrópumótinu sem hefst í Danmörku á morgun.
Stefnan
var alltaf
sett á
atvinnu-
mennsk-
una, alveg
frá því ég
sparkaði
fyrst í
bolta.