Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.06.2011, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 10.06.2011, Blaðsíða 16
og veita þeim mikla athygli?“ Steinar B. Aðalbjörnsson sagði barnaverndaryfirvöld skorta úrræði til að skoða offituvandamál barna eins og þau skoða vanrækslu. „Offita ein og sér er ekki barna- verndarmál, hefur aldrei verið og mun trúlega aldrei verða. Offita get- ur hins vegar verið hluti af stærri vanda sem getur verið barnavernd- armál. Offita krefst margþættra lausna og mikils stuðnings við þau börn og fjölskyldur sem við vand- ann eiga að etja. Við ættum að horfa á það í stað þess að reyna að finna sökudólga.“ Þrúði blöskruðu orð Steinars um að ekki séu allir foreldrar tilbúnir að breyta mataræði sínu. „Mér finnst ljótt að segja svona. Hvaða foreldrar vilja ekki hjálpa börnun- um sínum? Það má líkja þessu við lestrarvandamál. Á að taka lesblind börn af foreldrum? Lestrarvandi er í fjölskyldum og á sumum heimilum er hann mjög algengur. Kannski eru foreldrar báðir með lestrarvanda og hafa hvorugt klárað meira en grunnskólanám. Kannski einmitt vegna þess að það var sjálft með lesvanda. Foreldrarnir eru þá ekk- ert sérlega vel í stakk búnir til að hjálpa barninu sínu að lesa. Gerir það þau að vondum foreldrum? Á að taka börnin af foreldrunum jafnvel þótt það geti verið mjög alvarlegt að börnin læri ekki að lesa?“ Er algengt að börn verði matarfíklar? „Börnin sem koma til mín eru oft matargöt. Þeim þykir rosalega gott að borða, þau borða mikið og eru mjög upptekin af mat. Ég vil hins vegar ekki meina að tíu ára börn, eða yngri, eigi við matarfíkn að stríða. Kannski getum við talað um matarfíkn hjá stálpuðum ungling- um. Algengt er að foreldrar spyrji mig hvernig þeir eigi að hjálpa börn- unum sínum til að borða aðeins minna. Sumir foreldrar vanda sig mjög mikið og kaupa bara lífrænan og mjög hollan mat. Þeir geta samt ekki alltaf haft stjórn á matarinn- taki barnanna sinna. Börnin fara í afmælisveislur og eru í skólanum stóran hluta dagsins. Það er erfitt að hafa stjórn á fæðuvali barnsins þegar það er ekki heima hjá sér.“ Öllum feitum börnum líður ekki illa Þrúður segir að of feit börn, eins og hver annar hópur af börnum, samanstandi af fjölbreyttum ein- staklingum. „Innan þess hóps geta verið börn með ýmiss konar vanda en innan hópsins eru að sama skapi börn sem eru full sjálfstrausts og eiga ekki við annars konar vanda að etja. Þó er það svo að of feit börn eru líklegri til að eiga við annan vanda að etja en önnur börn. Það þýðir alls ekki að þeim líði öllum illa. Í okkar rannsókn á meðferð fyrir of feit börn á aldrinum 8-12 ára á Barnaspítalanum, var yfir helmingur barnanna sem tóku þátt yfir viðmiði um annað hvort hegð- unar- eða tilfinningavanda eða hvort tveggja. Að meðaltali sagðist tæp- lega þriðjungur barnanna hafa orðið fyrir stríðni og félagslegri höfnun. Tæplega helmingur barnanna hafði þá skoðun að þau væru ekki vinsæl meðal jafningja af sama kyni.“ Í rannsókninni kom fram að foreldrar töldu jafningjavanda barnanna jafnvel enn meiri. Yfir 90% foreldra merktu við að börn þeirra ættu við slíkan vanda að etja. „Námsvandi þessa hóps var ekki meiri en annarra barna á sama aldri. Við greiningu á gögnunum kom í ljós að upplifun barnanna á stríðni og félagslegri höfnun skýrði bæði líðan barnanna og námsgetu þeirra þegar aðrir þættir voru tekn- ir til greina.“ Heilsan skiptir meira máli en þyngdin Þrúður segir mikla fordóma í sam- félaginu gagnvart offitu og of feit- um. Slíkir fordómar séu líklegir til að ýta undir stríðni og félagslega höfnun sem geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir líðan og jafnvel námsárangur of feitra barna. „Of- fitan sjálf hefur sjaldan mikil áhrif á lífsgæði barna á þessum aldri, ef ekki væri um að ræða viðhorfin og fordómana í samfélaginu sem hafa svo æ meiri áhrif eftir því sem barn eldist. Ef við viljum berjast gegn of- fitu verðum við líka að berjast gegn sleggjudómum, sem eru ein birting- armynd fordóma, og temja okkur meira umburðarlyndi gagnvart fjöl- breytileikanum meðal okkar. Á end- anum snýst þetta um heilsuna um- fram holdafar og við megum ekki gleyma því að mataræði grannra er oft slæmt og grannir hreyfa sig ekki alltaf reglulega. Að sama skapi er hægt að vera of þungur, jafnvel of feitur, en borða að öllu jöfnu heilsu- samlega og stunda reglulega hreyf- ingu. Í slíkum tilvikum er heilsa einstaklings sem er feitur ekki endilega verri en heilsa þess sem er grannur.“ Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Nýtt! Hvað ætlar þú að hafa í matinn? Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Nú eru allar ryksugur frá Siemens og Bosch á tilboðsverði. Líttu inn og gerðu góð kaup! Umboðsmenn um land allt. Þ rúður er sálfræðingur á Barnaspítala Hringsins og var að ljúka við dokt- orsritgerð sína um með- ferð við offitu barna. Hún hefur stundað rannsóknir á of- fitu barna síðan 2005 og segist hissa á viðhorfi Steinars B. Aðalbjörns- sonar til foreldra of feitra barna. „Ég fæ alltaf sömu spurningarnar þegar ég held fyrirlestra og er að tala um offitu barna. Fyrsta spurn- ingin er hvort of feit börn eigi ekki bara vonda foreldra. Það angrar mig að fólk skuli spyrja svona og mér finnst það vera merki um fordóma. Fólk er duglegt að alhæfa. Erum við hin alltaf fullkomnir foreldrar? Eru einhverjir foreldrar sem aldrei gefa börnunum sínum franskar eða ís eða kökur?“ Þrúður bendir á að fólk sé með mismunandi líkamsbyggingu og sumum hætti frekar til að fitna en öðrum. „Það er margt sem veldur því. Við vitum að um það bil 70 pró- sent af breytileikanum á því hversu mikið við getum fitnað, ræðst af genum. Ef mjög grannur einstak- lingur er settur á ofurfeitt mataræði í viku fitnar hann kannski um svo- lítið. Feitlaginn einstaklingur gæti bætt á sig mun meira á sama mat- aræði. Fólk er með mismunandi brennslu. Sum börn borða pínulítið og svo eru þau södd. Þau segja bara stopp og borða ekki meira. Önnur eru ekki þannig og taka endalaust við. Nýjar rannsóknir sýna fram á að við erum misnæm fyrir merkjum um hungur og seddu. Það gleymist oft í umræðunni.“ Bábyljan um slæmu foreldrana Þrúður kemur að meðferðum Land- spítalans fyrir börn sem glíma við offitu og foreldra þeirra. Hún segir skjólstæðinga sína vera alla vega fólk sem erfitt sé að alhæfa um. Hún segir það hins vegar alrangt að um slæma foreldra sé að ræða. „Til okkar leitar alls konar fólk, menntað og ómenntað. Það er ekki satt að bara illa upplýstir foreldrar eigi of feit börn. Þessir foreldrar koma til okkar með börnin sín jafn- vel tvisvar í viku í marga mánuði. Auk þess eru alls konar heimaverk- efni sem þarf að sinna og þau taka þátt í. Eru það vondir foreldrar sem standa í svona? Foreldrarnir eru ekki bara að koma með börnin til okkar, þau koma með þeim og taka sjálf þátt í meðferðinni. Í raun má líkja þessu við foreldra sem fara með börnin sín í Suzuki-tónlistar- nám. Eru það ekki einmitt foreldrar sem fylgja börnum sínum vel eftir Offita er ekki barnaverndarmál Þrúður Gunnarsdóttir segir það rangt sem Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur Matís, fullyrti í Fréttatímanum í síðustu viku, að hættulegra sé að ofala börn en vannæra þau. Hún furðar sig á hugmyndum hans um að barnaverndaryfirvöld fái að beita því neyðarúrræði að taka of feit börn af foreldrum sínum. Þóra Tómasdóttir ræddi við hana. Þrúður segir mikilvægt skref í baráttunni við offitu vera að kveða niður fordóma og fáfræði. Algengt sé að foreldrar feitra barna séu stimplaðir sem slæmir foreldrar. 16 viðtal Helgin 10.-12. júní 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.