Fréttatíminn - 10.06.2011, Qupperneq 6
WWW.SKJARGOLF.IS
... að friðhelgi
einkalífs hans
og fjölskyldu
hans hafi
verið rofin og
að húsið hafi,
að ástæðu-
lausu, verið
kallað „lúxus-
villa“.
Umtalsverð aukning hefur orðið í
fasteignaviðskiptum undanfarið. Í
maí var 399 samningum um íbúðar-
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu
þinglýst en í sama mánuði í fyrra
voru þeir 192. Aukningin á milli ára
er 108%, að því er fram kemur í
tölum Þjóðskrár Íslands. Heildarfjöldi
þinglýstra samninga hefur ekki verið
meiri í einum mánuði síðan í lok árs
2007. Það sem af er ári hefur 1.591
samningi verið þinglýst sem er 75%
aukning frá sama tíma í fyrra. Athygli
vekur, segir Greining Íslandsbanka,
að hlutfall makaskiptasamninga af
heildarfjölda þinglýstra samninga
hefur dregist umtalsvert saman, en
makaskipti voru afar umfangsmikill
hluti íbúðamarkaðarins í hruninu.
Var hlutfall makaskiptasamninga
49% af heildarfjölda samninga í maí
2009, 26% í maí 2010 og 8% nú í
maí síðastliðnum. Mun meira er því
um að íbúðakaupin séu fjármögnuð
með peningum, en húsnæðislánveit-
ingar hafa heldur verið að glæðast
að undanförnu. Samhliða vaxandi
veltu hefur verð íbúðarhúsnæðis verið
að hækka. Í apríl mældist hækkun
íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu
2,7% og er það mesta hækkun sem
þannig hefur mælst frá fyrri hluta
árs 2008. Greiningin reiknar með því
að framhald verði á þessari þróun á
íbúðamarkaði á næstunni. -jh
Fasteignamarkaður lifnar við og verð hækkar
L ögfræðingur Stefáns Hilmars Hilmars-sonar, fjármálastjóra 365, hefur sent Frétta-tímanum bréf þar sem fram kemur að Stefán
er ósammála þeirri ákvörðun Magnúsar Sædal,
byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar, að fella úr
gildi byggingarleyfi á lóð lúxusvillu við Laufásveg
sem Stefán leigir af félaginu Vegvísi ehf. Félagið var í
eigu Stefáns í árslok 2009, samkvæmt ársreikningi,
en hann þvertekur fyrir það í bréfi lögfræðingsins að
tengjast félaginu á nokkurn hátt.
Fréttatíminn hefur birt tvær fréttir af dagsektum
sem Reykjavíkurborg hefur lagt á eiganda lúxus-
villunnar við Laufásveg en þær nema nú hátt í tíu
milljónum króna. Lögfræðingur Stefáns segir í
bréfinu að eigandinn hafi kært ákvörðunina um að
fella byggingarleyfið úr gildi til úrskurðarnefndar
skipulags- og byggingarmála í apríl 2010. Einnig
er Magnús í bréfinu sakaður um að hafa vísvitandi
farið með rangt mál í Fréttatímanum með því að
segja að ekkert hafi verið gert í málinu.
Jafnframt kvartar lögfræðingur Stefáns undan því
að friðhelgi einkalífs hans og fjölskyldu hans hafi
verið rofin og að húsið hafi, að ástæðulausu, verið
kallað „lúxusvilla“. Auk þess krefst lögfræðingurinn
leiðréttingar og afsökunarbeiðni frá Fréttatímanum
fyrir að birta viðtal við Magnús Sædal og fréttir af
Stefáni sem hafi ekkert fréttagildi, að mati lögfræð-
ingsins.
Lögfræðingur Stefáns vísar í nýsamþykkt fjöl-
miðlalög, máli sínu til stuðnings, en allar fréttirnar,
nema ein sem fjallaði um sölu Stefáns á þakíbúð í
Brautarholti, voru skrifaðar áður en lögin tóku gildi.
Fréttatíminn reyndi margítrekað að ná tali af Stef-
áni, bæði í gegnum tölvupóst og síma, í tengslum við
þær fréttir sem hafa verið fluttar af honum en hann
sá ekki ástæðu til að svara. oskar@frettatiminn.is
Ágreiningur um
dagsektir á milli
fjármálastjóra og
byggingarfulltrúa
Stefán Hilmar Hilmarsson er ósáttur við Magnús Sædal.
Helgin 10.-12. júní 2011