Fréttatíminn - 10.06.2011, Síða 10
Íslenska landsliðið
metið á milljarða
Átta síðna
EM-blað
Átta síðna blað um íslenska U-21
árs landsliðið, sem tekur þátt í loka-
keppni Evrópumótsins í Danmörku,
fylgir með Fréttatímanum í dag. Í
blaðinu eru viðtöl við sóknarmann-
inn Kolbein Sigþórsson og varnar-
manninn Jón Guðna Fjóluson,
nýjasta atvinnumann Íslendinga.
Framherjinn Alfreð Finnbogason
segir frá félögum sínum í landsliðinu
í búningsklefanum og Gylfi Þór
Sigurðsson greinir frá erfiðustu
andstæðingum sínum á stuttum en
viðburðaríkum ferli. -óhþ
Sjá miðju blaðsins
EM 2011 Kolbeinn SigþórSBarnastjarna í boltan-um sem var afskrifaður tvisvar fyrir tvítugt bls. 2
bls. 4
Óslípaður demantur
Jón Guðni heldur í víking í höfuðvígi demantanna í Antwerpen
Jón Guðni Fjóluson er nýjasti atvinnumaður Íslands í
fótbolta. Hann leikur lykilhlutverk í vörn íslenska U-21
árs landsliðsins sem tekur þátt í lokamóti EM í Danmörku.
bls. 2
Skúli Jón
Elskar Star Wars-föt
bls. 6
Gylfi Þór
Gerrard er grjótharður
U-21 landsliðið á eM 2011 Helgin 10.-12. júní 2011
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Haraldur Björnsson Val 10 milljónir
Skúli Jón Friðgeirsson KR 20 milljónir
Hólmar Örn Eyjólfsson án félags 50 milljónir
Jón Guðni Fjóluson Fram 50 milljónir
Hjörtur Logi Valgarðsson IFK Gautaborg 35 milljónir
Eggert Gunnþór Jónsson Hearts 75 milljónir
Aron Einar Gunnarsson Coventry 500 milljónir
Bjarni Þór Viðarsson Mechelen 65 milljónir
Rúrik Gíslason OB Odense 250 milljónir
Jóhann Berg Guðmundsson AZ Alkmaar 125 milljónir
Kolbeinn Sigþórsson AZ Alkmaar 800 milljónir
Gylfi Þór Sigurðsson Hoffenheim 1,5 milljarður
Birkir Bjarnason Viking 150 milljónir
Alfreð Finnbogason Lokeren 100 milljónir
Óskar Pétursson Grindavík 5 milljónir
Arnar Darri Pétursson SønderjyskE 20 milljónir
Þórarinn Ingi Valdimarsson ÍBV 20 milljónir
Almarr Ormarsson Fram 7,5 milljónir
Andrés Már Jóhannesson Fylki 15 milljónir
Arnór Smárason Esbjerg 75 milljónir
Elfar Freyr Helgason Breiðablik 30 milljónir
Guðmundur Kristjánsson Breiðablik 30 milljónir
Björn Bergmann Sigurðsson Lilleström 80 milljónir
Kolbeinn Sigþórsson, Gylfi Þór Sigurðs-
son og Aron Einar Gunnarsson eru
langverðmætustu leikmenn U-21 árs
landsliðsins og eru samanlagt metnir á
tæpa þrjá milljarða. Ljósmyndir/Hari
fótbolti Íslenski landsliðshópurinn verðlagður
Leikmenn íslenska U-21 árs
landsliðsins kosta saman
meira en glerhjúpurinn
utan á Hörpuna.
Í
slensk knattspyrna hefur sjálf-
sagt aldrei átt jafnmarga góða
unga leikmenn og í dag.
Leikmenn íslenska U-21
árs landsliðsins eru margir
hverjir með þeim efnileg-
ustu í Evrópu og stórliðin bíða
eftir að krækja í þá. Leikmanna-
markaðurinn í knattspyrnunni
helgast eins og aðrir markaðir af
framboði og eftirspurn og því er
verðmiðinn á bestu leikmönnum
íslenska liðsins ansi hár. Sam-
kvæmt úttekt Fréttatímans er
samanlagt verðmæti leikmanna-
hópsins hjá íslenska liðinu rétt rúmlega fjórir
milljarðar, 800 millj-
ónum meira en hinn
umdeildi glerhjúpur
utan um Hörpu kost-
aði. Verðmæti manna í
hópnum er misjafnlega
mikið. Langverðmætasti
leikmaðurinn er Gylfi Þór
Sigurðsson, sem var seldur
frá Reading til Hoffenheim
fyrir 1,2 milljarða síðastliðið
haust. Eftir fína frammistöðu
með Hoffenheim, þrátt fyrir
fá tækifæri í byrjunarliðinu,
hefur Gylfi hækkað í verði
enda sannað sig í einni
bestu deild Evrópu.
Hollenska félagið AZ
Alkmaar metur fram-
herjann Kolbein
Sigþórsson á rúmar
átta hundruð milljónir og gefur
það út að hann verði ekki seldur
fyrir lægri uppphæð. Ljóst er að
Gylfi Þór og Kolbeinn eru með
verðmætustu leikmönnum í sögu
íslenskrar knattspyrnu. Miðju-
maðurinn Aron Einar Gunn-
arsson er með lausan samning
við Coventry en óhætt er að full-
yrða að verðmiðinn á honum yrði
ekki undir hálfum milljarði ef lið
þyrftu að kaupa hann. Þessir þrír
eru í nokkrum sérflokki hvað
varðar verðmæti. Sá sem kemst
næst þeim er Rúrik Gíslason.
Hann var seldur frá Viborg til
OB fyrir 180 milljónir árið 2009.
Góð frammistaða með OB hefur
hækkað verðmiðann á honum
þannig að ólíklegt er að OB myndi
láta hann af hendi fyrir minna en
250 milljónir. Eins og fram kemur
á síðunni hér á undan eru lands-
liðsmennirnir eftirsóttir og spila
í stærsta sýningarglugga ársins
í evrópskum knattspyrnuheimi.
oskar@frettatiminn.is
Sjá einnig aukablað um
EM í miðju blaðsins
Leikmannamark-
aðurinn í knatt-
spyrnunni helgast
eins og aðrir
markaðir af fram-
boði og eftirspurn
og því er verðmið-
inn á bestu leik-
mönnum íslenska
liðsins ansi hár.
Þarft þú heyrnartæki?
Pantaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
Að láta mæla heyrnina er einföld leið til að
ganga úr skugga um hvort kominn sé tími til
að nota heyrnartæki.
Erum með mikið úrval vandaðra
heyrnartækja sem eru búin fullkomnustu
tækni sem völ er á. Einföld og þægileg í
notkun og nánast ósýnileg bak við eyra.
Í tilefni af 10 ára starfsafmæli Heyrnartækni þá
ætlum við að styrkja KRAFT í sumar með ákveðinni
upphæð af hverju seldu heyrnartæki. KRAFTUR er
stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendur þeirra.
Á þetta eru þeir metnir
4
10 fréttir Helgin 10.-12. júní 2011