Fréttatíminn - 10.06.2011, Síða 50
42 dýrin okkar Helgin 10.-12. júní 2011
N ú er sumarið loks gengið í garð og margir farnir að huga að ferða-lögum í sumarfríinu. Gæludýraeig-
endur standa þá frammi fyrir því að ákveða
hvort dýrið geti komið með í ferðalagið eða
hvort það komist í pössun. Kettir eru yfir-
leitt frekar sjálfstæðir og þola ágætlega að
vera einir í svolítinn tíma, svo lengi sem
einhver kemur daglega að gefa þeim að
borða og sinna þeim örlítið. Það sama á í
raun við um nagdýr og páfagauka, en öll
þessi dýr þurfa að sjálfsögðu félagsskap
og verða einmana ef þau eru skilin eftir í
lengri tíma. Enn betri lausn er því auðvitað
að fá ættingja eða vin til að hafa gæludýrið
í pössun hjá sér. Ef köttur fer í pössun á
annað heimili verður þó að hafa í huga
að hann mun líklega leita að útgönguleið
og reyna að komast aftur til síns heima.
Fjölmargir kettir hafa týnst á þennan
hátt og það er jú sorglegur endir á annars
skemmtilegu sumarfríi.
Því miður eru ekki allir sem eiga þess
kost að hafa dýrin í pössun hjá vinum eða
ættingjum, en þá eru nokkrar aðrar lausnir
í boði. Kettir geta farið í pössun í Katt-
holt (kattholt.is) og það eru að minnsta
kosti tvö hundahótel á Íslandi, á Leirum
á Kjalarnesi (hundahotel.is) og á Arnar-
stöðum (simnet.is/hundahotel). Það er
einstaklingsbundið hversu vel dýrin þola
slíka vist; sum eru hæstánægð en önnur
verða vansæl í þessu nýja umhverfi sem er
þó nokkuð ólíkt heimili þeirra. Hundar eru
mjög háðir fólki og geta ekki verið einir
heima yfir helgi líkt og kettir. Ef þeir verða
stressaðir á hundahóteli getur heima-
pössun hentað betur og hægt er að borga
öðru hundaáhugafólki fyrir slíka pössun.
Á vefsíðunni hundahanna.is er miðlun
fyrir hundapössun sem eflaust getur nýst
mörgum vel.
Ef ferðast er innanlands velja margir
að taka hundinn eða hundana með og er
það oft besti kosturinn en þó ekki alltaf.
Hundurinn er þá nálægt eiganda sínum
sem veitir honum ánægju og öryggi, en
ferðalög geta reyndar valdið hundum
mikilli streitu. Sumum hundum líður illa í
bíl og verða stressaðir í löngum bílferðum.
Þegar á áfangastað er komið er umhverfið
nýtt og framandi og það getur verið erfitt
fyrir suma hunda, en alls ekki alla.
Það eru ekki mörg hótel á Íslandi sem
leyfa hunda en það eru samt sem áður
nokkrir gististaðir. Á vefsíðu Hundarækt-
arfélags Íslands (hrfi.is), undir flipanum
„hundarnir“ og „hótel&gisting“, er listi yfir
nokkra gististaði sem leyfa hunda. Flest
tjaldsvæði leyfa hundahald að því gefnu að
hundarnir séu alltaf í taumi, en það er ým-
islegt áreiti á tjaldsvæði sem getur truflað
marga hunda og valdið þeim hugarangri.
Það má því ekki koma hundaeigendum á
óvart ef hundurinn hagar sér öðruvísi en
venjulega meðan á ferðalagi stendur, geltir
ef til vill meira, á erfitt með að róa sig
niður og fleira í þeim dúr. Hundar sem að
jafnaði eru gæðablóð og rólegir heima við
geta jafnvel átt það til að glefsa á ferðalagi,
og því er mikilvægt að eigendur sjái til
þess að börn eða ókunnugir séu ekki að
skottast í kringum hundinn án eftirlits og
huga að því að hundinum líði sem best á
meðan á ferðalaginu stendur.
Að lokum er vert að minna hundaeig-
endur á að þó að við búum á kalda Íslandi
getur orðið lífshættulega heitt í bílum á
sumrin. Ef hundurinn er skilinn eftir úti
í bíl verður að leggja bílnum í skugga,
skrúfa rúðurnar örlítið niður og hafa helst
vatnsskál hjá hundinum.
Freyja og dýriN
Bestu vinir mannsins HuNdar og kettir
Freyja
Kristinsdóttir
freyja@frettatiminn.is
Það má
því ekki
koma
hunda-
eigendum
á óvart ef
hundurinn
hagar sér
öðruvísi en
venjulega
meðan á
ferðalagi
stendur ...
Hundum getur þótt gríðarlega gaman að koma með í tjaldútileguna en ferðir á ókunnar slóðir geta líka valdið þeim streitu.
Ljósmyndir/Nordicphotos
É g hef mjög gaman af að fylgjast með því hvernig hundar hegða sér. Hver einasta litla hreyfing hefur þýðingu, hvort sem
það eru eyru sem sperrast, tunga sem sleikist
hratt yfir nefið, skott sem dillast eða höfuð-
hreyfing upp, niður eða til hliðar. Hundar tala
saman með líkamstjáningu. Gelt, urr, væl og
spangól er aðeins notað til að undirstrika það
sem þeir hafa þegar sagt með líkamstján-
ingunni, eða við aðstæður þar sem líkams-
tjáningin dugar ekki til. Svo eru líka margir
hundar sem hafa uppgötvað það að flest fólk
skilur engan veginn þetta líkamstjáningar-
form hunda, og hafa því gripið til þess ráðs
að gelta, urra og væla meira því mannfólkið
virðist bregðast mun betur við því.
Margir eigendur skilja ekki hundana sína,
ég sé það oft í mínu starfi. Það getur verið
mjög sorglegt því atferlisvandamál hunda
verða oftar en ekki til vegna misskilnings
milli hunds og eiganda. Hundsbit geta einnig
verið byggð á þessum sama misskilningi, og
þá oft þar sem hundurinn er bundinn fastur
eða króaður af. Við aðstæður þar sem hundur
getur ekki flúið, getur hann orðið óöruggur
þegar ókunnug manneskja eða barn nálgast
til að klappa honum. Hundurinn sýnir þá ýmis
merki sem þýða í raun „mér finnst þú frekar
ógnandi, vinsamlega komdu ekki nær“
og þessi merki geta til dæmis verið
lækkuð höfuðstaða, gjóa augunum til
hliðar, sleikja út um, geispa eða vera
grafkyrr. Ef manneskjan skilur ekki
þessi merki og færir sig nær hund-
inum þarf hundurinn að grípa til ör-
þrifaráða. Ef við lentum í svipuðum
aðstæðum væri líklegt að við myndum
reyna að hrinda viðkomandi frá okk-
ur, en hundar eru ekki með hendur og það er
þeim ekki eðlislægt að ýta frá sér með fram-
fótunum. Þeir geta hins vegar urrað eða gelt
með tilætluðum árangri og við mannfólkið
hörfum nánast alltaf. Ef hundur hef-
ur aftur á móti oft verið skammaður
fyrir að gelta eða urra, getur verið að
hann fari beint yfir í glefsið. Og það
eru þessi tilvik sem síðar er lýst sem
„hundurinn glefsaði algjörlega upp
úr þurru!“, en í raun var hundurinn
búinn að gefa ýmis merki sem mann-
eskjan hunsaði.
Það er því mikilvægt að skilja lík-
amstjáningu hunda áður en maður klappar
þeim. En besta reglan, sú sem við eigum að
kenna börnunum okkar, er að sjálfsögðu að
klappa aldrei ókunnugum hundum.
Klöppum aldrei ókunnugum hundum
Til umhugsunar í fríinu
Mismunandi möguleikar í boði fyrir ferfætlingana.
Freyja
Kristinsdóttir
freyja
@frettatiminn.is
BS nám í
náttúrufræði
og skógfræði/
landgræðslu
Ákveðið hefur verið að
framlengja umsóknarfrest
um BS nám í náttúrufræði
annars vegar og skógfræði/
landgræðslu hins vegar.
Nánari upplýsingar um námið
er að finna á heimasíðu
Landbúnaðarháskóla Íslands.
www.lbhi.is
Umsóknarfrestur er til 15. júní
Getur þú verið heimilisvinur
Abigale?
www.soleyogfelagar.is