Fréttatíminn - 10.06.2011, Blaðsíða 59
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
1
-1
3
3
5
Frestur til að sækja um
110% aðlögun húsnæðislána
er til 1. júlí
Hefur þú kynnt þér breytt skilyrði?
Nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum okkar eða á www.islandsbanki.is
Fimmtudaga til laugardaga
opið allan sólarhringinn
Sunnudaga til miðvikudaga
opið frá kl. 11-23
T rommuleikararnir Einar Valur Scheving og Halldór
Lárusson standa fyrir Beat-Camp
fyrir trommuleikara í Skálholts-
skóla helgina 17.-19. júní. Um er
að ræða þriggja daga námskeið
í trommuleik þar sem blandað
er saman kennslu, áköfum og
markvissum æfingum, fróðleik,
skemmtun og alvöru tromm-
unördaskap frá morgni fram á
kvöld.
„Við gerðum þetta í fyrsta skipti
í fyrra og það myndaðist gríðarleg
stemning í hópnum og allir voru
mjög sáttir,“ segir Einar Valur.
„Þarna erum við bara að tromma
frá morgni til kvölds með einhverj-
um matarhléum og svo er nördast
eitthvað á milli en að sögn Einars
gengur trommunördaskapur út á
að tala um græjur, aðra trommara
og horfa á trommumyndbönd. „Við
viljum helst að fólk komi með ein-
hvern bakgrunn og sé ekki algerir
byrjendur en ef getustigið er mjög
breitt þá skiptum við fólki í hópa.
Þetta er opið öllum eldri en 16 ára
og fólk getur í raun verið á hvaða
stigi sem er. Við vorum með mjög
blandaðan hóp í fyrra; einhverja
undir tvítugu og ætli sá elsti hafi
ekki verið um fimmtugt,“ segir
Einar og bætir við að ekki sé til
neitt kynslóðabil þegar trommarar
koma saman.
„Aðstaðan í Skálholti er fyrsta
flokks. Allur aðbúnaður er góður
og dýrindis máltíðir eru reiddar
fram þannig að það fer voða vel
um alla. Skálholt er svo þétt setið
þannig að þetta var eina helgin
sem var laus og við ákváðum bara
að kýla á þetta enda er það nú
vonandi komið til að vera,“ segir
Einar sem efast ekki um að ákafir
trommarar geti vel hugsað sér að
verja þjóðhátíðardeginum við að
berja húðir í Skálholti.
Allar nánari upplýsingar um
námskeiðið er að finna á tromm-
ari.is.
skálholT æfingabúðir fyrir Trommara
Trommað frá morgni til kvölds
Einar
Valur verður
í miklum ham
í Skálholti
seinna í
mánuðinum
þegar þeir
Halldór
Lárusson
halda Beat-
Camp annað
árið í röð.