Fréttatíminn - 10.06.2011, Blaðsíða 62
Lagið Vanguardian af plötunni Heart II He-
art með hljómsveitinni Steed Lord hljómaði í
þættinum So You Think You Can Dance sem
sjónvarpað var í Bandaríkjunum á fimmtu-
dagskvöld. „Fjórir keppendur dönsuðu við
lagið og freistuðu þess að komast áfram í
tuttugu manna hópinn sem heldur áfram
í þáttunum,“ segir Svala Björgvinsdóttir
sem skipar Steed Lord ásamt bræðrunum
Einari og Eðvarð Egilssonum.
Það var hin magnaða Sonya Tayeh,
gestadómari og danshöfundur við þættina,
sem ákvað að nota lagið í atriðinu. „Sonya
mun einnig nota tvö önnur lög í þáttunum
sem verða tekin seinna í sumar. Þetta er
alveg frábært tækifæri fyrir okkur. Hún er
frábær danshöfundur og vann meðal annars
að myndbandinu okkar 123 og að öðru
myndbandi sem kemur út núna í júlí.“
Steed Lord hefur haldið til í Los Angeles
síðastliðin tvö ár og náð góðri fótfestu þar.
„Lögin okkar hafa verið mikið í bandarísku
sjónvarpi síðastliðin tvö ár en það er ein-
hvern veginn öðruvísi og skemmtilegra að
fá lag í So You Think You Can Dance þar
sem keppendur tjá sig í gegnum tónlistina
okkar,“ segir Svala og nefnir sjónvarps-
stöðvar á borð við E Channel, Bravo, MTV
og V-H1 sem hafa spilað lög með hljóm-
sveitinni.
so You Think You Can DanCe Dansað við sTeeD LorD
samsTöðuganga DrusLuLegur kLæðnaður æskiLegur
Drusluganga gegn
hugsanavillu
m aría Lilja Þrastardóttir er ein af forystukonum göngunnar. Hún segir að tilgangurinn sé að færa
ábyrgð kynferðisofbeldis frá þolendum
yfir á gerendur. „Okkur langar til að
vekja umræðu og uppræta fordóma
sem felast í þeirri ofuráherslu sem
lögð er á klæðaburð, ástand og
atferli kvenna í umræðunni um
kynferðisofbeldi.“
Hún útskýrir tilkomu yfirskriftar-
innar Drusluganga: „Lauslátar konur
sem sagðar eru kalla yfir sig nauðgan-
ir eru oftar en ekki kallaðar druslur. Við viljum
beina athygli að þessari orðanotkun.“
Slutwalk eða drusluganga var fyrst farin í To-
rontó í Kanada í apríl byrjun. Viðburðurinn vakti
svo mikla athygli að hann var endurtekinn í Banda-
ríkjunum, Ástralíu, Mið-Austurlöndum og víða um
Evrópu. Í druslugöngum er því viðhorfi mótmælt
að léttklæddar konur „biðji um að láta nauðga sér“.
Í Kanada voru mótmælin viðbragð við þeim orðum
sem lögregluforinginn Michael Sanguinetti, hjá
lögreglunni í Toronto, lét falla á málþingi hjá York-há-
skóla, að konur ættu að forðast að klæða sig eins og
druslur svo að ekki yrði ráðist á þær.
Eruð þið að bregðast við einhverjum sérstökum
orðum?
„Við ætlum ekki að persónugera atburðinn en auðvitað
hefur margt verið sagt síðasta árið sem stingur. Við ætlum
frekar að biðja fólk að hugsa um fordómana í sjálfu sér. Við
erum öll hluti af vandanum og eigum það til að hugsa „hún
hefði ekki átt að vera svona drukkin“ eða „hún hefði átt að
passa sig betur“. Okkur langar til að skömmin verði ekki
fórnarlambanna lengur.“
Druslugangan hefst á Skólavörðuholtinu kl. 14 laugardag-
inn 23. júlí. „Það er laugardagurinn helgina fyrir verslunar-
mannahelgi, sem er líka táknræn tímasetning. Við viljum
benda á að fólki er frjálst að vera eins og það vill og enginn
hefur rétt á að nauðga.“ Marserað verður af Skólavörðuholtinu
niður í bæ þar sem haldnir verða tónleikar.
thora@frettatiminn.is
Öðruvísi en skemmtilegt tækifæri
Til að mótmæla þeim
hugsunarhætti að létt-
klæddar konur bjóði hætt-
unni heim verður skipulögð
drusluganga í Reykjavík í
sumar. Skorað er á fólk að
mæta í „óábyrgum“ fatnaði.
Menningar-
brúðkaup
Breki Logason, sá vaski
og glaðbeitti fréttamaður
á Stöð 2, gengur að eiga
sína heittelskuðu, Védísi
Sigurðardóttur, í lok
sumars. Hjónaleysin völdu
sér sérstaklega skemmti-
legan dag til að ganga í það
heilaga en það ætla þau
að gera laugardaginn 20.
ágúst, á Menningarnótt,
þegar gleðin svífur yfir
Reykjavíkurborg, öllu er
tjaldað til og boðið er upp á
magnaða flugeldasýningu
þegar kvölda fer.
Betra líf án Baugs?
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra,
kom sterkur inn á bókamarkaðinn með
bók sinni Rosabaugur yfir Íslandi ekki
alls fyrir löngu. Í bókinni fer Björn yfir
hið flókna og, að margra mati, leiðinlega
Baugsmál eins og honum einum er lagið.
Bókin er í 2. sæti á metsölulista bóka
vikuna 22. maí til 4. júní en þar hefur
Björn tyllt sér á milli bókarinnar 10 árum
yngri á 10 vikum eftir Þorbjörgu Haf-
steinsdóttur í 1. sætinu og
Léttara og betra líf eftir
Lene Hanson sem er í 3.
sæti. Skemmtileg tilviljun
þar sem vel má velta fyrir
sér hvort fólk verði ekki
10 árum eldra á einni
kvöldstund eða svo við að
plægja sig í gegnum upprifjun
á Baugsmálum. Og sjálfsagt er
fáum blöðum um það að
fletta að líf Björns er
léttara og betra eftir
að hann hefur létt
Baugsfarginu af sér.
Danshöfundurinn Sonya
Tayeh mun notast við þrjú
lög Steed Lord í dönsum
í þáttunum en hún hefur
áður unnið með hljómsveit-
inni með góðum árangri.
Tónlist Steed Lord
fær góða kynningu í
So You Think You Can
Dance í sumar.
NOVA laumar sér á Símakrána
Mikið hefur verið rýnt í
kápu Símaskrárinnar sem
Gillzenegger tók að sér
að hanna. Mestur áhugi
hefur verið á maga-
vöðvum og brjóstkassa
Gillzeneggers sem grunur
leikur á að hafi verið efldir
og lagfærðir í fótósjoppi.
Einhverjir hafa þó hnotið
um að jafnvægisslá sem fim-
leikastúlkur úr Gerplu stilla sér
upp við að baki vöðvatröllsins er
vandlega merktur NOVA. Sam-
særiskenningar hafa sprottið
upp um að símafyrirtækið
NOVA hafi þarna laumið
inn dulinni auglýsingu á
Símaskrána. Rétt er þó
að halda því til haga að
NOVA er þekkt vörumerki í
fimleikaheiminum og þykir
með því allra besta sem völ
er á. Hins vegar hefði ekki
átt að vera tiltökumál að þurrka
þessa óheppilegu tilviljun út af
kápunni hafi fólk á annað borð
verið að fínpússa myndina.
Fjölmennt var á undirbúningsfundi Druslu-
göngunnar á Prikinu á dögunum.
Við viljum
beina athygli
að þessari
orðanotkun.“
María Lilja
Þrastardóttir
er ein af
skipuleggj-
endum
Druslugöng-
unnar. Hún
hvetur fólk
til að mæta
druslulega til
fara.
Bonito ehf. Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opnunartími:
mánud. - föstud. kl. 11:00 - 18:00 laugard.11:00 - 14:00
ÚTSALA
MIKIÐ ÚRVAL AF FALLEGUM
TÍSKUFATNAÐI Á ÚTSÖLU
54 dægurmál Helgin 10.-12. júní 2011