Fréttatíminn - 10.06.2011, Side 64
Kastljós toppar
Úttekt Jóhannesar Kr. Kristjáns-
sonar um læknadóp og vanda
ungra sprautufíkla vakti mikla og
verðskuldaða
athygli. Áhugi
fólks á þessum
erfiða málaflokki
sést ágætlega á
áhorfstölum sjón-
varps vikuna sem
Kastljós sýndi um-
fjöllun Jóhannesar
en þá var Kast-
ljósið með 30% meðaláhorf og var
áhorfsmesti dagskrárliður þeirrar
viku en hjá RÚV minnist fólk þess
ekki að Kastljósið hafi áður toppað
áhorfslistann frá því að rafrænar
mælingar hófust. Kastljós sveiflaði
sér meðal annars upp fyrir kvöld-
fréttir Sjónvarps og hinn vinsæla
þátt Landann.
Saga bókstafsins Ð
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita
og kennslugagna, hefur úthlutað
styrkjum til 31 verkefnis en alls var
sótt um 72 starfsstyrki til ritstarfa
og nam heildarupphæðin sem
sótt var um rúmum 37 milljónum
króna. 14 milljónir voru til ráð-
stöfunar fyrir þetta ár og hlutu 16
höfundar hæsta styrk sem nemur
600 þúsundum. Þeirra á meðal eru
Anna Ingólfsdóttir fyrir verkefnið
Um makamissi, Guðjón Friðriksson
fyrir Allt um Reykjavík – alfræði og
Stefán Pálsson vegna verkefnisins
Um sögu og leturgerð bókstafsins „Г.
Caput í Hörpu
Caput-hópurinn verður með kvöld-
tónleika í Hörpu á laugardags- og
sunnudagskvöld. Flest tónskáldin
sem eiga verk
á tónleikunum
mæta og taka þátt
en þau koma frá
Portúgal, Írlandi,
Danmörku og
Svíþjóð. Caput
stendur fyrir tvennum huggulegum
kvöldtónleikum í Hörpu, laugar-
dagskvöldið 11. júní og sunnudags-
kvöldið 12. júní. Þeir fyrri eru
bassaflaututónleikar Kolbeins
Bjarnasonar í samvinnu við norður-
írska tónskáldið Simon Mawhinney
og á þeim seinni leikur Caput-band-
ið í fullri stærð.
HELGARBLAÐ Hrósið …
... Rúnar Kristinsson, þjálfari KR,
sem hefur stýrt liðinu í toppsæti
Pepsi-deildarinnar í aðdraganda
þriggja vikna hlés. KR-ingar hafa
fjögurra stiga forystu á toppnum og
eru eina taplausa lið deildarinnar.Austurströnd 3, 170 Seltjarnarnesi. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Nýtt blað komið út
Ókeypis eintak um land allt
www.goggur.is
G o G G u r ú t G á f u f é l a G
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
Royal bringur
Kjúklingabringurnar frá Holtakjúklingi eru fersk og hrein afurð sem framleidd
er af mikilli fagmennsku. Þær eru fáanlegar með tvennskonar kryddlegi -
rósmarín og hvítlauk eða Texas - og henta bæði á grillið og í ofninn.
Nú geta matgæðingar haft það ljómandi gott í sumar.