Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.07.2011, Page 6

Fréttatíminn - 15.07.2011, Page 6
Sigtryggur Jónsson segir skelfilegt að fólk sé sent út og suður í kerfinu þegar það sækir um dvalar- eða hjúkrunarrými. Umsóknir úreldist án þess að fólk fái vitneskju um það.  AldrAðir Umsóknir Um dvAlArrými úreldAst P rófaðu að vera áttræð og fá upplýsingar um hvar umsókn þín um dvalarrými stendur,“ segir kona sem hefur reynt að aðstoða aldraða móður sína við að komast í dvalarrými. „Ég hringdi í þjónustumiðstöð- ina sem sagði mér að hringja í vel- ferðarráðuneytið sem sagði mér að hringja í landlækni sem sagði mér að hringja í vistunarmats- nefnd sem sagði mér að hringja í heilsugæsluna sem sagði mér að hringja í dvalarrýmisnefnd sem sagði mér að umsóknin gilti bara í níu mánuði og væri útrunnin. Ég yrði að hringja í þjónustumiðstöð- ina. Þjónustumiðstöðin sagði að þá þyrfti að endurmeta hæfi hennar til að fara á elliheimili,“ segir konan en rúmlega tvö ár eru liðin síðan fyrst var sótt um dvalarrými fyrir móður hennar. „Þetta er skelfilegt og ekki eðli- leg vinnubrögð,“ segir Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjón- ustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða, og viðurkennir að biðtími eftir hjúkrunar- og dvalarrými geti verið ansi langur. „Það gerist því miður að biðtím- inn sé lengri en gildistími um- sókna en það ætti auðvitað ekki að vera. Vistunarmatsnefnd þyrfti að koma upplýsingum um gildistíma umsókna að í svarbréfi við umsókn- um en það er ekki gert í dag. Ef fólk er ekki búið að fá pláss á innan við níu mánuðum dettur það út af biðlista án þess að vera látið vita,“ segir Sigtryggur og gagnrýnir að það skuli vera í verkahring sveitar- félaga að meta þörf fyrir rými en ríkisins að úthluta þeim. „Mér fyndist að þetta ætti að vera á sömu hendi. Það var reynt að einfalda ferlið fyrir nokkru en það er enn of flókið og þarf að endurskoðast. Það er eðlilegt að við endurmetum umsóknir þétt því að fólki hrakar og aðstæður þess breytast. Við erum hins vegar að fást við fullorðið fólk sem er ekki endilega fært um að standa í svona málum.“ Sigtryggur segir það gagnrýnis- vert að fólk sé sent út og suður í ferlinu; skapa þurfi eina gátt og gera þurfi kerfið manneskjulegra. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Aldraðir detta grunlausir út af biðlistum Meðhöndlunartími umsókna um hjúkrunar- og dvalarrými fyrir aldraða er stundum lengri en gildistími umsóknanna. Fólk dettur því út af biðlistum án þess að vera látið vita. Gagnrýnis- vert samkrull milli sveitarfélags og ríkis, að mati framkvæmda- stjóra Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíðahverfis. Eign lífeyrissjóða yfir tvö þúsund milljarða mörkin Hrein eign lífeyrissjóða til greiðslu lífeyris fór í maílok yfir 2.000 milljarða króna í fyrsta sinn. Alls nam eignin þá 2.007 milljörðum króna og hafði hún aukist um tæplega 23 milljarða í maí. Mest var aukningin í maí í skuldabréfum ríkis- sjóðs, tæplega 15,2 milljarða króna vöxtur, inn- lendri hlutabréfaeign, sem óx um 9,8 milljarða króna, og erlendum hlutabréfasjóðum, þar sem aukningin nam 7,1 milljarði. Virðast sjóðirnir hafa notað handbært fé í töluverðum mæli til fjárfestinga í maí, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka, þar sem sjóður og bankainnistæður þeirra lækkuðu um nærri 16,3 milljarða króna í mánuðinum. Aukninguna á innlendum hlutabréfum í safni lífeyrissjóðanna má að mestu leyti rekja til kaupa sumra þeirra á talsvert stórum hlut í Össuri af Eyri Invest. Aukningu á erlendri verðbréfaeign sjóðanna má að hluta skýra með veikara krónugengi í maí. -jh Enn töluverð sókn í leiguhúsnæði Alls var 726 leigusamningum um íbúðar- húsnæði þinglýst hér á landi í júní. Eru þetta nokkuð færri leigusamningar en þinglýst var í júní í fyrra, en þá voru þeir 830 talsins og hefur þeim því fækkað um 12,5% milli ára. Þetta er heldur meiri samdráttur á milli ára en mælst hefur undanfarna mánuði. Sé tekið mið af fyrstu sex mánuðum ársins þá eru þeir um 4,8% færri nú í ár en í fyrra og miðað við árið 2009 hefur þeim fækkað um 7,9%. Alls hefur verið þinglýst 4.372 leigusamningum um íbúðarhúsnæði á fyrsta helmingi ársins. Framangreind þróun er, að mati Greiningar Íslandsbanka, í takt við þróunina á fasteigna- markaði þar sem þinglýstum kaupsamningum um íbúðarhúsnæði fjölgar stöðugt frá síðustu tveimur árum. „Þó er,“ segir Greiningin, „óhætt að segja að enn sé töluverð sókn í leiguhúsnæði miðað við það sem áður var.“ -jh Helgin 15.-17. júlí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.