Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.07.2011, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 15.07.2011, Blaðsíða 22
Barnaníð og Barnavernd Undanfarna viku hefur mikið borið á fréttum af kynferðisbrotum og þá sérstaklega á vettvangi kirkjunnar. Fólk er slegið óhug í hvert skipti sem gamlar sögur eru rifjaðar upp og það veltir því fyrir sér hvort hvergi séu heilög vé þar sem börnum og við- kvæmum skjólstæðingum sé óhætt. Þó ætti engan að undra að kynferðis- brot verði líka í kirkjunni. Í líkingu sinni um góða hirðinn talar Jesús líka um úlfinn sem hremmir lömbin og tvístrar þeim. Og hvergi hefur úlfurinn frjálsari hendur en þar sem hann nýtur trausts, virðingar og öruggrar þjóðfélagsstöðu. En það er ekki þar með sagt að bölið og grimmdin eigi að þrífast óáreitt. Það er enginn svo heilagur að hann ætti sjálfkrafa að vera hafinn yfir vernd barna; presturinn, kennarinn, hjúkr- unarfræðingurinn, læknirinn, æsku- lýðsfulltrúinn, foreldrið, frændfólkið og vinirnir. Barnaníð á aldrei að hafa forgang yfir barnavernd hver sem í hlut á og því er hvert og eitt okkar undir tilkynningaskyldu til barnaverndar ef okkur grunar að líf og heilsa barns sé í veði. Við þurfum sem þjóðfélag að horfast í augu við það sértæka ofbeldi sem konur og börn búa við vegna mis- réttis kvenna og karla í samfélaginu í stað þess að tala það niður. Við eigum ekki að kveinka okkur við því að heyra sögur þeirra sem þjáðst hafa vegna kynferðisofbeldis og annars ranglætis. Við eigum heldur ekki að smjatta á þeim af pornógrafískri hræsni púrítan- ans. Við eigum að leyfa strútnum að búa í dýragarðinum og taka upp aðra kærleiksríkari hætti. Við þurfum að takast á við bölið og óréttlætið sem viðgengst í okkar eigin röðum og sýna því hugrakka fólki virðingu okkar og stuðning sem stígur fram þegar rifnar ofan af kýlunum. Í því liggur auðmýkt, auðmýkt þeirra sem horfast af djörfung í augu við það að samfélagið okkar er ekki eins öruggt og gott og við vildum hafa það. Og það glittir á hvítar perlur í rifunum. Úr predikun Sigríðar í fyrrasumar sem mér fannst í lagi fram að þeim tíma var það bara ekki lengur. Og í þessu ástandi kynntist ég prest- inum í söfnuðinum, virðulegum manni milli sextugs og sjötugs, og hann var mér afskaplega góður. Við ræddum um margt sem mér fannst óréttlátt, eins og til dæmis það hvað samkynhneigðir hefðu lítinn sess í samfélaginu og hvað þeim væri illa sinnt í kirkjunni.“ Síðan á jólum er öllum söfnuð- inum boðið heim til prestsins í skemmtilegt jólaboð. Sigríður fer að líta eftir prestsfrúnni, sem sést hvergi, en svo áttar hún sig fljótlega á því að þarna er maður á svipuðum aldri og presturinn hlaupandi um með smákökur og að það er maður prestsins. Síðar kynnist hún þeim betur; þeir höfðu verið saman í yfir þrjátíu ár en gátu aldrei talað um samband sitt því annars hefði presturinn misst vinnuna. „Þannig að allur söfnuðurinn lifði í lygi. Meirihlutinn vissi að þeir voru par en það var aldrei hægt að tala um það og hinir ímynduðu sér að þeir væru miðaldra menn sem leigðu saman og hefðu gert í þrjátíu ár.“ Þessi reynsla hafði gífurleg áhrif á Sigríði og gerði það að verkum að hún fór að láta til sín taka varðandi réttindi samkynhneigðra. Vinur hennar, presturinn, fór svo loks á eftirlaun og gifti sig strax (borg- aralega). Það vakti mikla reiði með Sigríði að sjá hvernig kirkjan fór með þennan góða vin hennar, þenn- an trygga og góða þjón kirkjunnar. Trúarbrögð holdsins En hvað með sóknarbörnin, eru þau ánægð með uppreisnarprestinn sinn? „Sko, þetta er ofboðslega skemmtilegur söfnuður. Sóknin hérna er yngsta sóknin hvað stofnunarár varðar og aldur sóknar- barna. Hér er mikið af ungu fólki og því finnst ekkert endilega að presturinn þeirra eigi að vera svona heldur má hann jafnvel vera hinsegin og berjast fyrir réttindum umhverfisins, kvenna og homma og lesbía.“ Sigríði þykir annars athyglisvert að þessi tvö stóru mál sem skekið hafa kirkjuna, réttindi samkyn- hneigðra og kynferðisofbeldi, fjalla bæði um kynverundarréttindi. „Réttinn yfir eigin líkama.“ En Sig- ríður hefur mestan áhuga á þessum blindu blettum. Þetta sem ekki má tala um í kristninni, sem fjallar nú oft um holdtekju því ein höfuð- líkingin fyrir kirkjuna er líkami Krists. „Þessi holdlegu trúarbrögð eru óvenjuhrædd við líkamann,“ segir Sigríður. Af hverju erum við ekki komin lengra? „Persónulega finnst mér hlutirnir umdeild til þess að verða biskup.“ En viltu að næsti biskup verði kona? „Já, mér finnst það mikilvægt.“ Það er ekkert fararsnið á séra Karli Sigurbjörnssyni en auk hans eru tveir vígslubiskupar og þessar vikurnar standa yfir kosningar í Skálholtsbiskupsdæmi. Sigríður gæti fengið ósk sína uppfyllta um að fá konu í biskupsstól því í Skálholti eru tvær konur í framboði ásamt tveimur körlum. Tengdasonur biskups Sigríður fór í guðfræðideild Háskól- ans úr MR, alveg bandbrjáluð. Hún var tvítug og tilfinningarík. Hún grét yfir fréttum af hungursneyð í Eþíópíu og fannst eins og barnatrú- in væri að svíkja sig. Þessar myndir í sjónvarpinu sögðu henni að heimurinn væri einn stór skítur. Allt sem hún hafði lært um þennan almáttuga og góða Guð í KFUM og KFUK virtist vera hræsni. Þessi efi lét fyrst á sér kræla í menntaskóla, þar sem hún skartaði svörtu nagla- lakki og hermannajakka, og efinn hefur elt hana æ síðan. Og í guðfræðideildinni kynntist hún manninum sínum, Rögnvaldi, en hann var þar að lesa guðfræði („ég hef enn ekki komist að því hvað hann var að gera þarna,“ segir Sigríður og bætir því við að hann sé varla trúaður, maðurinn). Þau áttu svo von á dreng númer tvö þegar hún útskrifaðist og fékk presta- kall á Suðureyri við Súgandafjörð (Rögnvaldur varð þar sparisjóðs- stjóri). Þau voru 25 og 27 ára en litu út fyrir að vera fimmtán og sautján. Fjórum árum síðar gerðu þau ársstopp á Akureyri en svo var Sigríður prestur í Ólafsfirði í fimm ár. Þaðan hélt hún í doktorsnám til Bandaríkjanna (þar sem Rögn- valdur gerðist svo frægur að keyra limmósínu í New York um tíma). Þú ert í doktorsnámi í New York þegar tengdasonur Karls biskups fær starfið sem þú varst hæfari en hann til að gegna? „Já,“ svarar Sigríður en hún og séra Sigurður Arnarson sóttu bæði um starf sendiráðsprests í London 2003. Hann fékk starfið en eins og frægt er orðið kærði Sigríður ráðn- inguna og vann málið fyrir héraðs- dómi og Hæstarétti. Heldur enginn því fram að þú sért í sífellu að reyna að hefna þín á Karli biskupi? ,,Ábyggilega. Það er auðvelt að fara í skotgrafirnar og segja að Sigríður geti ekki fyrirgefið og hún sé kannski bara að hefna sín. En ef ég á að segja þér alveg eins og er þá þarf ég ekkert að hefna mín. Ég fór með mitt mál fyrir dómstóla og vann það. Þar kláraði ég þetta mál og skildi við það. Sem er gott. Það er gott að geta klárað málin og horft fram á við,“ segir Sigríður en jafnréttismálið gerði hana vissulega umdeilda en veitti henni kannski röddina sem hana fannst skorta árið 1996. Nagandi trúarefinn Sigríður hefur verið prestur í Graf- arholti síðan 2004, í miðri uppbygg- ingu hverfisins, en 2007 lauk hún doktorsprófi frá Drew University. Á skrifstofunni hennar er viðurkenn- ing frá Samtökunum ´78. Hún hefur barist fyrir réttindum homma og lesbía. Í bókahillunum sér maður Lúter við hlið Lesbian Ethics. „Soldið skemmtilegur kokteill,“ segir Sigríður og brosir. Flækist það aldrei fyrir þér að sitja uppi með þessa blessuðu Biblíu sem oft er nú ekki beint um- burðarlynd? „Jú,“ segir Sigríður því efinn hefur alltaf verið hluti af hennar lífi, „þetta er oft erfitt. Það er stundum erfitt að vera með texta á bakinu sem maður getur verið ósammála í mörgum grundvallaratriðum en hann er samt hluti af manns trúar- heimi og texti sem skiptir mann óendanlega miklu máli. Þannig er það með mig. Um leið er grátlegt að jafnvel hreyfingar sem voru mjög byltingarkenndar á sínum tíma eiga það til að festast hreinlega á ákveðnum tímapunkti. Og halda því fram að rétt túlkun á Biblíunni hafi náðst á sautjándu öld eða þriðju öld eða hvað það nú er.“ Efanum fylgir líka harmur og uppreisn sprettur ekki af sjálfu sér heldur vegna reynslu. Það hefur margt haft áhrif á Sigríði og ýmis- legt smálegt í hennar eigin innri baráttu hefur hjálpað henni að rísa upp til varnar konum og reglulega hefur trúarefinn slegið hana eins og ísköld ástarsorg. Þegar hún var nýkomin til Bandaríkjanna, og búin að skrá sig í lúterska söfnuðinn sem var næst háskólanum, kynntist hún presti sem hafði mikil áhrif á hennar líf. Trú hennar hafði hrunið við komuna út (eins og svo oft áður) og hún sat á kirkjubekknum hágrátandi og hugsaði með sér að hún gæti aldrei trúað á Guð aftur. „Ég var að lesa mikið bæði í fem- ínismanum og heimspeki (frum- speki) og þá uppgötvar maður allt í einu nýja gagnrýni. Ýmislegt hafa breyst mjög mikið á stuttum tíma. Veröldin hefur breyst á þessum fimm- tán árum, frá 1996 til dagsins í dag. Ég er ekkert viss um að allir í yfirstjórn kirkjunnar fatti það en almenningur hefur breyst. Við erum allt önnur þjóð en við vorum fyrir fimmtán árum.“ Séra Sigríður er líka allt önnur kona en hún var fyrir fimmtán árum. Hún mun aldrei aftur verða raggeit og sjá eftir því að hafa ekki gert nóg. Kannski mun hún halda áfram að missa trúna reglulega en trú hennar hefur breyst og stækkað. „Þessi trú sem hrundi hefur oft verið til merkis um að ég hafi verið byrjuð að tilbiðja pínulítinn Guð sem var að springa í höndunum á mér.“ Ertu sátt við að hafa hafið þessa göngu uppreisnar, fyrst 1996 og svo þegar þú kærðir ráðningu tengdason- arins? „Já. Það eru liðin átta ár og ég er mjög sátt við það sem ég gerði á sínum tíma. Mér finnst að það hafi verið rétt og ég er mjög stolt af því að hafa unnið málið. Ég tel að það hafi skipt miklu máli, bæði til að bæta stjórnsýslu kirkj- unnar og haft áhrif út í samfélagið. Þetta mál hafði ákveðið fordæmisgildi; var óvenjulegt mál. Jafnréttisvinkillinn sem ég vann málið á gleður mig. Ég er ánægð með að hafa upplifað órétt- læti og barist gegn því,“ segir Sigríður að lokum og útskýrir að málið hafi elt hana. Þó ekki eins og fólk gæti haldið heldur þannig að það breytti henni og gerði hana óhræddari við að segja sína meiningu og treysta á eigin samvisku. Séra Sigríður Guðmarsdóttir hefur fundið sína eigin rödd og er óhrædd við að beita henni. Mikael Torfason ritstjorn@frettatiminn.is Presturinn í Grafarholti Sigríður er nútímalegur prestur, femínisti og baráttukona. Hún er á Facebook og nýjasti statusinn hljómar svona: „Fór í göngutúr kringum Reynisvatnið og samdi predikun í huganum. Það er svo fallegt við vatnið og gott að sitja inni í skógarlundinum. Mikil lífsgæði fólgin í því að vera með útivistarparadís í bakgarðinum hjá sér.“ 22 viðtal Helgin 15.-17. júlí 2011

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.