Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.07.2011, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 15.07.2011, Blaðsíða 48
Listasmiðja á Eiðum Sigríður Jóna Þórisdóttir, sérkenn- ari og eiginkona Sigurjóns Sighvats- sonar, hefur undanfarin ár staðið fyrir listanám- skeiði fyrir börn og ung- linga á Eiðum. Er börnum af Austurlandi gefið færi á að spreyta sig undir leiðsögn starfandi lista- manna. Sonur þeirra hjóna, kvik- myndaframleiðandinn Þórir Snær Sigurjónsson, og fjöllistakonan og fyrrverandi Kastlýsingurinn Elsa María Jakobsdóttir eru meðal leiðbeinenda ásamt Ottó Geir Borg handritshöfundi, Árna Má Erlings- syni myndlistarmanni og Daníel Björnssyni myndlistarmanni. Ulrich í dómnefnd RIFF Danski stórleikarinn Ulrich Thom- sen verður í alþjóðlegri dómnefnd á RIFF, Reykjavik International Film Festival, þetta árið. Thomsen er í hópi þekktustu leikara Dan- merkur en hann sló í gegn í Festen og hefur leikið bæði í dönskum myndum á borð við Blinkende Lyg- ter og Brødre og stórmyndum á borð við Kingdom of Heaven eftir Ridley Scott. Thomsen hlakkar, að eigin sögn, mikið til að koma til lands- ins og taka þátt í Alþjóðlegri kvik- myndahátíð í Reykjavík sem stendur dagana 22. september til 2. október. Neyðarkall frá Afríku Neyðarástand ríkir í Austur-Afr- íku þar sem á þriðju milljón barna standa berskjölduð gagnvart hungri og sjúkdómum. Mestu þurrkar á svæðinu í yfir hálfa öld ógna lífi og heilsu barna sem þjást af vannæringu og sjúkdómum í Sómalíu, Eþíópíu, Djibouti og Keníu. Barnahjálp Sam- einuðu þjóðanna, UNICEF, á Íslandi óskar eftir stuðningi almennings vegna neyðaraðgerða samtakanna í þessum löndum. Um 500 þúsund þessara barna eru nú þegar talin lífshættulega vannærð. Hægt er að styrkja neyðarstarf UNICEF með því að hringja í söfnunarsímanúm- erin: 908-1000 (1.000 krónur), 908-3000 (3.000 krónur) og 908- 5000 (5.000 krónur). Einnig er hægt að styrkja neyðar- starfið í gegnum heimasíðu UNI- CEF á Íslandi (unicef.is) eða með því að leggja inn á neyðarreikning samtakanna: 515-26-102040 (kt. 481203-2950). HELGARBLAÐ Hrósið … ... fá Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fyrirliði og liðs- félagar hennar í meistaraflokki Stjörnunnar fyrir að hleypa lífi í toppbaráttu Íslandsmeistaramótsins í fótbolta. Stjörnustúlkur komust á topp deildarinn- ar í vikunni með stórsigri á Breiðabliki og eru þær nú marka- og stigahæstar eftir níu leiki á mótinu.Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is Fréttir og fréttaskýringar Áskriftarsími: 445 9000 www.goggur.is Útvegsblaðið G o G G u r ú t G á f u f é l a G Nýtt blað komið út Ókeypis eintak um land allt H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 SÆNGURFATA ÚTSALA! SÆNGURFÖT Á 40-50% AFSLÆTTI MIKIÐ ÚRVAL AF HÁGÆÐA SÆNGURFATNAÐI FRÁ 3.540 KR. 50% AFSLÁTTUR AF HANDKLÆÐUM 50% AFSLÁTTUR AF RÚMTEPPUM A R G H !! ! 1 5 0 7 11 ÓTRÚLEGT TILBOÐ! AC Pacific ÞRÝSTIJÖFNUNARHEILSURÚM Queen Size (153x203 cm.) Fullt verð 227.130 kr. NÚ 149.000 kr. 34% AFSLÁTTUR! AC PACIFIC • Lagar sig að líkamanum • Veitir fullkomna slökun • Engin hreyfing milli svefn- svæða • Hefur óviðjafnanlega þyngdardreyfingu • Kemur líkamanum í rétta stellingu til hvíldar • Þarf ekki að snúa • 10 ára ábyrgð ATH! AÐEINS Í NOKKRA DAGA!

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.