Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.07.2011, Side 17

Fréttatíminn - 15.07.2011, Side 17
Noomi Rapace og Sigourney Weaver Scott hefur smalað saman mjög öflugum hópi leikara í Prometheus. Hluti þeirra verður við tök- urnar á Íslandi og óhætt er að segja að það fólk sé ekki af verri endanum. Michael Fass- bender, Char- lize Theron, Idris Elba og Noomi Rapace eru í hópnum sem kemur til Íslands en Ben Foster og Guy Pierce láta sig að öllum líkindum vanta. Fassbender hefur gert það gott í myndum eins og Ingloriuous Basterds og X-Men: Origins, Elba lék lögguna Luther í samnefndum sjónvarpsþáttum og Heimdall í Thor. Noomi Rapace er svo flestum kunn fyrir frábæra frammistöðu sína í Millennium- þríleiknum sem gerður var eftir bókum Stiegs Larsson. Sterkar og ákveðnar konur hafa löngum verið Scott hugleiknar. Ellen Ripley, sem Sigourney Wea- ver lék í Alien-myndunum fjórum, er einhver grjótharðasta kven- persóna kvikmyndasögunnar og þá var heldur betur töggur í þeim Thelmu og Louise og herkonunni Jane sem Demi Moore lék í G.I. Jane. Aðspurður segir Scott að að einhverju leyti megi líta á persónu Noomi sem staðgengil Ripley þótt Weaver sé ansi hávaxin og Noomi frekar lág í loftinu en ef eitthvað er sé krafturinn og ástríðan í Rapace meiri. „Ég sá hana í Karlar sem hata konur fyrir einu ári eða svo og hugsaði með mér: „Vá! Hver er þetta?“ Og var strax ákveðinn í því að ég yrði að fá hana í þessa mynd. Ég hitti hana síðan í Los Angeles og komst að því, mér til nokkurrar furðu, að hún er ofboðslega fáguð manneskja og ekki mikill pönkari. Og þá vissi ég að hún var alvöru leikkona. Mjög góð.“ Scott segir Charlize Theron vissulega vel þekkta og það auki lífslíkur hennar í myndinni til muna. Hinir leikararnir séu hins vegar á uppleið þótt nöfn þeirra séu ekki jafn þekkt. „Leikararnir í fyrstu myndinni voru ekki stjörn- ur og ég er ekki frá því að það sé betra að vera með minna þekkt fólk í hópnum þegar maður er með sögu þar sem flestir munu deyja.“ Ég sá hana í Karlar sem hata kon- ur fyrir einu ári eða svo og hugsaði með mér: „Vá! Hver er þetta?“ Bröns alla laugardaga og sunnudaga Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is Verð aðeins 1.895 með kaffi eða te J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA 15. júlí J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Sæktu um skuldalækkun strax í dag Skuldalækkun Landsbankans er í boði til 15. júlí. Sæktu strax um að lækka skuldir þínar áður en frestur rennur út. Skilmála og nánari upplýsingar um skuldalækkun Landsbankans má fi nna á heima síðu okkar, landsbankinn.is, eða í næsta útibúi. Lækkun annarra skulda Þú sækir um í netbankanum

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.