Fréttatíminn - 15.07.2011, Qupperneq 28
HEIMSENDING
á höfuðborgarsvæðinu
alla daga frá kl. 15–19
eða á smellugas.is
Hafðu samband í síma
515 1115
Vinur við veginnSmellugas
Smellugas
smellugas.is
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
11
71
2
Hrunið
Kallar skerfur Breta til íslenska hrunsins á skaðabætur?
Í rúm tvö og hálft ár frá hruninu hafa sumir Íslendingar haldið augunum galopnum varðandi
sök Íslands á orsökum þess en
lokað þeim fyrir ytri þáttum sem
áttu engu minni hlutdeild. Sem er
óskiljanlegt. Sumir virðast ekki
vilja kannast við utanaðkomandi
áhrifavalda íslenska hrunsins, sér-
staklega þann síðasta:
· Alþjóðalánsfjárkreppuna.
· Ákvörðun ríkisstjórnar Georges
Bush um að bjarga ekki stór-
bankanum Lehman Brothers frá
gjaldþroti, sem skapaði alþjóðlegt
hrun.
· Alþjóðlega óvini Íslands úr hópi
banka og vogunarsjóða.
· Kaldrifjuð efnahagshryðjuverk
fyrrverandi ríkisstjórnar Bret-
lands gagnvart Íslandi.
Ofsalegt fjárhagstjón
Spyrja má: Hvernig gat
ríkisstjórn Gordons
Brown misnotað hryðju-
verkalög á íslenska hags-
muni í Bretlandi? Hvers
vegna lýsti Brown Ísland
gjaldþrota í beinni út-
sendingu? Hvers vegna
setti ríkisstjórn hans
Landsbankann, Seðla-
bankann og fjármála-
ráðuneytið á lista yfir
hryðjuverkasamtök við
hlið Al Qaeda á vefsíðu
breska utanríkisráðuneytisins?
Aldrei hafa fengist skýr svör við
þessum brennandi spurningum.
Þau þurfa Íslendingar að fá. Svörin
snúast um siðleysi. Ólöglega mis-
beitingu valds. Ofsalegt fjárhags-
tjón. Og skaðabætur Bret-
lands til Íslands.
Spyrja má: Hverjar
hefðu afleiðingarnar
orðið ef Ísland hefði
verið Sviss? Lúxem-
borg? Belgía? Þýska-
land? Írland? Portúgal?
Grikkland? Einnig má
spyrja: Hvað hefði gerst
í Bretlandi við bjargbrún
alþjóðahrunsins ef Banda-
ríkin hefðu notað hryðju-
verkalög gegn Bretlandi?
Ef Bush bandaríkjafor-
seti hefði í beinni útsendingu lýst
Bretland gjaldþrota? Ef bandaríska
utanríkisráðuneytið hefði líkt
Lloyds Bank, breska seðlabank-
anum og breska fjármálaráðuneyt-
inu við hryðjuverkasamtök og ritað
þessi nöfn á vefsíðu sína við hlið
Al Qaeda? Þetta voru nákvæmlega
aðgerðir bresku ríkisstjórnarinnar
gegn Íslendingum. Svarið við tit-
ilspurningunni virðist því vera: Já.
Ísland og Al-Qaeda
Að morgni miðvikudagsins 8. októ-
ber 2008 stóð þáverandi ríkisstjórn
Bretlands fyrir tilræði gegn Ís-
landi. Án gildrar ástæðu misnotuðu
Alistair Darling fjármálaráðherra
og Gordon Brown forsætisráðherra
lög, sem breska þingið kom á í kjöl-
far árásarinnar á Tvíburaturnana í
New York 11. september 2001, sem
tæki í fjárhagslegri hryðjuverkaá-
rás á Ísland. Fyrst felldu þeir Kaup-
þing og Landsbankann og misnot-
uðu til þess hryðjuverkalög gegn
íslenskum hagsmunum í Bretlandi.
Og áður en þeir brettu upp erm-
arnar til að beita íslensku þjóðina
fjárkúgun lýsti Gordon Brown yfir
gjaldþroti Íslands í beinni útsend-
ingu. Því næst útmáluðu þeir Ísland
sem hryðjuverkaland í augum um-
heimsins og brennimerktu Lands-
banka Íslands, Seðlabanka Íslands
og fjármálaráðuneytið sem hryðju-
verkasamtök á vefsíðu breska utan-
ríkisráðuneytisins. Traust Íslands
hrapaði á stig Al-Qaeda.
Það skal enginn efast um að það
sem gerðist í október 2008 var
þríþætt efnahagslegt hryðjuverk
gegn Íslandi sem tókst. Ísland sem
fjármálamiðstöð dró ennþá andann
á þessum tímapunkti. Það var ekki
fyrr en breska ríkisstjórnin misnot-
aði ofangreind gjöreyðingarvopn í
efnahagslegum skilningi sem allt
Framlag til fram þróunar
D Júlí stendur undir nafni sem sumarmánuðurinn hér á landi. Hlýindin komu með honum eftir kaldan júní og kalt vor. Um leið lifnaði yfir ferðaglöðum lands-mönnum sem drifu sig af stað þrátt fyrir okurverð á bensíni og olíu. Fleiri ferðast innanlands en áður í kjölfar efnahagshrunsins. Þá er gott að eiga svefn-
vagn fyrir fjölskylduna, hvort heldur er tjaldvagn,
fellihýsi eða hjólhýsi.
Tími tengivagnanna á þjóðvegum landsins er því
runninn upp. Hið liðna góðæri sést einna best um
hásumarið. Þá draga menn fram vagnana góðu sem
keyptir voru í hrönnum á meðan það varði og þeir
hugsuðu eins og enginn væri morgundagurinn. Sjálf-
sagt eru lánin enn á sumum þeirra, hvort heldur eru
gengistryggð eða vísitölubundin. Það er seinni tíma
vandi. Fjárfestinguna verður að nýta um helgar og í
sumarfríinu.
Enginn efi er á því að gaman er að ferðast með
þessum hætti og geta stoppað þar sem henta þykir
og menn vilja skoða fallega náttúru, grilla í skjóli og
leyfa börnunum að leika sér. Útilegur með foreldrum
eru yndi þeirra.
Hjólhýsin eru mörg hver einkar glæsileg með öll-
um hugsanlegum búnaði. Stærð sumra er með þeim
hætti að öflugan bíl þarf til að draga þau, hvort heldur
er jeppi eða pallbíll. Þar minnir góðærið horfna enn á
sig því stóru drekarnir eru hér enn, þótt þeir nýjustu
séu sennilega af 2007 árgerð eða hugsanlega fram á
árið 2008, áður en menn gerðu sér grein fyrir í hvað
stefndi og Geir bað Guð að blessa Ísland.
Slíkan munað hef ég aldrei eignast. Minn tengi-
vagn er kerra sem hentar vel vegna sumarbústaðar
fjölskyldunnar. Kerran er því oftar en ekki í eftirdragi
með aðskiljanlegan varning enda flutningsþörf þeirra
sem sumarkot reka umtalsverð.
Venjuleg kerra vekur þó hvorki sérstaka athygli
né hughrif þeirra sem slíkum tengivögnum mæta.
Það gera hins vegar óvenjulegir aftanívagnar. Pistil-
skrifarinn greindi t.d. frá því, í öðru blaði og á öðrum
tíma, að hann hefði nánast orðið fyrir aðkasti þegar
hann ók með brúnan farandkamar í eftirdragi austur
í sveit. Kamarsins var vissulega þörf þar sem margra
mátti vænta á hátíðarsamkomu en skilningur á
flutningnum var í lágmarki hjá þeim sem ég mætti;
einkum þó þeim sem á eftir fóru. Ég ók að sönnu
gætilega enda byggingarlag kamarsins með þeim
hætti að snöggar hreyfingar gátu borið hann ofurliði.
Það varð til þess að menn spændu fram úr, sumir án
þess að gefa stefnuljós þegar þeir snarbeygðu fyrir
framan dráttarbílinn. Enginn virtist vilja vera aftan
við kamarinn. Svo langt gekk þetta að unglingar, far-
þegar í ökutæki, sýndu á sér afturendann er þeir óku
fram úr mér í Lögbergsbrekkunni.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Ragnar Halldórsson
ráðgjafi
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
HELGARBLAÐ
Ókeypis alla föstudaga
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt
28 viðhorf Helgin 15.-17. júlí 2011