Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.07.2011, Qupperneq 33

Fréttatíminn - 15.07.2011, Qupperneq 33
 MatartíMinn Ferðahandbók Fyrir Munn og Maga Heimsins bes tu matarmarkaðir 2 3 4 5 6 8 9 10 19 11 20 18 13 141516 17 22 31 29 23 24 25 27 28 32 41 33 34 42 43 44 45 18Marché International de Rungis í úthverfi Parísar www.rungisinternational.com Heildsala. Arftaki Les Halles-mark- aðarins (þar sem nú er neðanjarðar- Kringla). Hugsanlegur birgir frekar en fyrirmynd. 19Les Halles í Avignon í Suður-Frakklandiwww.avignon-leshalles. com Innandyra markaður með allt það besta frá Provence. 20Naschmarkt í Vínwww.wienernaschmarkt.eu Einn og hálfur kílómetri af hráefni í þýska eldhúsið, veitingahús og búðir. 21La Vucciria í PalermoHeilt hverfi af mat. 22Mercato Centrale í FlorenceGott og gaman – ef maður kemst að fyrir túristunum. 23St. Lawrence Market í Torontowww.stlawrencemarket. com Fjölmargir sölubásar eða -búðir, fleiri en tíu í ostum og kjöti o.s.frv. Fata- og second hand-markaður einnig. 24Granville Island í Vancouverwww.granvilleisland.com Matar- og bændamarkaður sem hluti af markaðs- og skemmtisvæði við sjóinn. Veitingahús, skemmtigarður, tónlist og opin handverksstæði. 25KaDeWe í Berlínwww.kadewe.deEfsta hæðin í þessu Harrods Berlínar (sem er KaDeWe Lundúna) er draumur sælkera með þykk veski. Allt í veröldinni sem talið er best og dýrast. 26Harrods í Londonwww.harrods.comÞað er óþarfi að kynna þetta fyrirbrigði. 27Peck í Mílanówww.peck.it125 ára matarmusteri í peningalega auðugustu borg matar- hefðar-auðugasta lands Evrópu. Búð og veitingar, fáránlegur vínkjallari. 28Yeliseyevsky Gastro-nom í Pétursborg Gourmet-búð í lítilli höll með kristals- ljósakrónur hangandi yfir kavíar- hraukum. Geðveikar leifar keisara- tímans. 29Boulang-Épicie (BE) í París www.boulangepicie.com Hugarfóstur Alains Ducasse. Lítil gourmet- búð og bakarí. 30Selfridges Food Hall í UK www.selfridges.com/en/ food-Wine Gourmet-búð, veitinga- staðir. Dálítið poss og trendí. 31Khan El-Khalili í KaíróHeilt hverfi af verslunum og kaffihúsum sem hafa verið í blómlegri starfsemi síðan á 14. öld. 32Grand Bazaar í MiklagarðiFjögur þúsund búðir sem raða sér við næstum sextíu yfir- byggðar götur. Móðir allra markaða. Bestu sölumenn í heimi; geta lært íslensku á meðan þeir selja þér teppi. 33Djemaa el-Fna í MarrakechMarkaðstorg í gamla bænum sem hóf starfsemi á ritunar- tíma Njálu. Sambland af venjulegum matar- og nauðsynjamarkaði fyrir íbúana og skemmti- og túristamarkaði fyrir hina. 34Chandni Chowk í Gömlu-DelíMarkaður frá miðri sautj- ándu öld. Lengst af virtasti markaður Indlands; margflókinn klasi af húsum og svæðum sem hvert leggur áherslu á tilteknar vörur. 35Tsukiji fiskmarkaðurinn í Tókýó.Moby Dick allra fisk- markaða. Sá næsti er eins og síld í samanburði. Minnstur hlutinn við hæfi almennings. Þetta er þar sem þeir stóru kaupa stórt. 36Chatuchak-markaður-inn í BangkokHelgarmarkaður; flestir básarnir aðeins opnir á laugar- og sunnudögum. Flóamarkaður en samt mikið af mat. Breiðir sig yfir á annan ferkílómetra. 37Kreta Ayer Wet og Tiong Bahru í SingaporeAnnar er hefðbundinn, í hjarta Kínahverfisins, en hinn er innandyra sælkeramarkaður í ný- legum byggingum þar sem fólk getur lesið sögu Singapore með bragðlauk- unum. 38Panang í MalasíuKallast Blauti Panang að malasískum sið en nafni er dregið af vatninu og bráðna ísnum sem notaður er til að halda matnum köldum og ferskum í kæfandi hit- anum. 39Sunnudagsmarkaður-inn í Kashgar í Kína Stór markaður í vesturhluta Kína þar sem bændur af stóru svæði flykkjast til þessarar borgar (íbúafjöldi rétt rúmlega Íslendingar) með vörur sínar. 40Qingping í Guangzhou í KínaTvö þúsund básar í splunkunýjum markaði (varð til eftir dauða Maós). Matur en líka antík og annað dót. 41Mercado de la Merced í MexíkóStærsti matarmarkaður Mið-Ameríku; eins gamall og landnám Spánverja. Að mestu yfirbyggður í jaðri gamla bæjarins. 42Mercado Municipal í Manaus í BrasilíuVeitingamenn eiga þennan markað á kvöldin og fram á nótt en hann er opinn almenningi á daginn. Kjöt, fiskur, ólívur, olíur og aðrar afurðir úr nærsveitum. 43Mercado Municipal Paulistano í São Paulo í Brasilíu Sælkeramarkaður í glæsihýsi frá millistríðsárunum. Markaður og matstaðir sem bjóða upp á allt sem heimsálfan gerir best. 44Mercado Central í Santiago í ChileStór heildsölumarkaður sem sinnir búðum og veitingastöðum en einnig almenningi. 45Pisac-markaðurinn í Cusco í PerúSveitamarkaður á sunnudögum, þriðjudögum og fimmtudögum. Eins og leifar af veldi Inkanna. Þórir Bergsson og Gunnar Smári Egilsson matur@frettatiminn.is Matur Helgin 15.-17. júlí 2011 matur 33 Nú situr Heinz Á TOPPNUM 7 3026 21

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.