Fréttatíminn - 15.07.2011, Qupperneq 43
Norpandi við nætur-
klúbb á nælonskyrtu
tónlist reykholtshátíðin
Einvalalið norrænna músíkanta
dægurmál 43 Helgin 15.-17. júlí 2011
É g hef spilað á hverri einustu hátíð frá upphafi þannig að ég þekki hátíðina út og inn,“ segir
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, listrænn stjór-
nandi Reykholtshátíðarinnar, en hún tók nýverið
við starfinu af Steinunni Birnu Ragnarsdóttur
píanóleikara. „Steinunn bað mig að taka við fyrir
ári og ég þurfti ekkert að hugsa mig um tvisvar.
Mér þykir vænt um hátíðina og þekki hana vel.
Það er frábært að spila í Reykholtskirkju og þarna
myndast alltaf skemmtileg stemning þegar allir
koma á staðinn til að búa saman og vinna vel á stutt-
um tíma.“ Tónlistarmenn hátíðarinnar koma víða
að í ár. „Í tilefni af því að í ár er 15 ára vígsluafmæli
Reykholtskirkju, fluttum við til landsins nokkra af
fremstu listamönnum Noregs, Litháens og Sví-
þjóðar til að koma fram ásamt einvala liði íslenskra
listamanna.“ Af íslensku tónlistarmönnunum má
nefna, auk Auðar, Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðlu-
leikari og Ásdísi Valdimarsdóttur víóluleikara.
„Bjarni Þór Kristinsson bassasöngvari flytur
einnig dagskrána „Læknirinn og ljósmyndarinn“
með Ástríði Öldu Sigurðardóttur píanóleikara.
Þá syngur hann lög eftir Sigvalda Kaldalóns og
Árna Thorsteinsson sem voru læknir og ljós-
myndari að aðalstarfi,“ segir Auður sem er stolt af
fjölbreyttri dagskrá hátíðarinnar í ár. Reykholtshá-
tíðin verður haldin helgina 22.-24. júlí. Miðaverð er
krónur 2.500 fyrir hverja tónleika en miða er hægt
að nálgast á www.midi.is og dagskrána er að finna á
www.reykholtshatid.is
Auður Haf-
steinsdóttir
fiðluleikari
er listrænn
stjórnandi
Reyk-
holtshá-
tíðarinnar.
Cut copy
á Nasa
Ástralska hljómsveitin Cut Copy
heldur tónleika á
Nasa við Austur-
völl miðvikudags-
kvöldið 20. júlí.
Tónleikarnir eru
hluti af tón-
leikaferð í tilefni
af útgáfu nýrrar
breiðskífu, Zonos-
cope, en tónlistinni
mætti lýsa sem dans-
skotinni popptónlist.
Franz Ferdinand er
góðvinur sveitarinnar
og hefur ósjaldan
fengið Cut Copy til liðs
við sig á tónleikaferðum
sínum. Miðasala hefst í
dag og fer fram á Midi.is
og í verslunum Brims á
Laugavegi og í Kringl-
unni.
Syngur við Mývatn
„Á dagskránni eru falleg íslensk
sönglög, söngflokkur eftir Grieg
og sönglög eftir Sibelius og Carl
Sjöberg,“ segir mezzosópran- söng-
konan Sigríður Ósk Kristjánsdótt-
ir en hún flytur dagskrána Norræna
tóna Tan ta ra rei! í Reykjahlíðar-
kirkju laugardaginn 16. júlí ásamt
píanóleikaranum Hrönn Þráins-
dóttur. Tónleikarnir eru hluti af
röðinni Sumartónleikar við Mývatn.
„Mývatn er svo falleg sveit og alltaf
gaman að koma þangað og kósí að
skella sér í jarðböðin," segir Sigríður
sem útskrifaðist úr Royal College of
Music í London árið 2009 og söng
nýverið í Cadogan Hall með Dame
Emma Kirkby. Sigríður verður einnig
þriðja daman í Töfraflautunni sem
sýnd verður í Hörpu í október en
dagskráin á Norrænum tónum Tan
ta ra rei! verður einnig flutt í Selinu
á Stokkalæk og í Sigurjónssafni í
byrjun ágúst.