Fréttatíminn - 15.07.2011, Qupperneq 44
Fiskikóngurinn Sogavegi 3 587 7755
HUMAR
STÓR
A ð sóka þýðir einfaldlega að hvíla sig í nærveru Guðs,“ segir Sigga Helga sem er ein af leiðtogateymi í nýstofn-
aðri kirkju í Reykjavík, Catch the Fire, sem er
til húsa að Háteigsvegi 7. Þangað eru allir vel-
komnir líka þeir sem eru ekki í söfnuðinum.
„Við höfum öll þetta trúar-DNA í okkur,
þessa þrá að vilja vera tengd Guði og heyra
í Guði en við heyrum ekkert ef við hlustum
ekki. Þess vegna er svo mikilvægt að taka frá
tíma í amstri dagsins og stormi lífsins, kúpla
sig út og leggjast bara niður til að taka við því
sem Guð vill tala til þín,“ segir Sigga Helga.
„Soaking“ þýðir í raun að veru gegndrepa
af einhverju. „Orðið lýsir þessu ástandi þegar
maður dvelur hljóður frammi fyrir Guði. Þetta
er úr Biblíunni – þaðan kemur fyrirmyndin,“
en „soaking“ á sér meðal annars hliðstæðu
í 23. Davíðssálmi þar sem Davíð konungur
hvílir sig á grænum grundum og nýtur næðis.
„Soaking“ er, að sögn Siggu Helgu, lífsstíll
margra án þess að það sé áberandi. „Fólk
kemur hingað þegar það er í pásu í skólanum
eða notar jafnvel hádegið í vinnunni til að
skjótast inn í bænaherbergið og eiga hljóða
stund með Guði. Sumir byrja morguninn eða
enda daginn á þessu og fjöldi fólks tekur frá
tíma til að fara á „soaking“ -helgar og kyrrðar-
daga eins og þjóðkirkjan hefur boðið upp á í
áraratugi í Skálholti.“ Þetta er, að sögn Siggu
Helgu, eitthvað sem allir geta tileinkað sér og
nýtt sér hvar og hvenær sem er. „Það er boðið
upp á „soaking“ -stundir í kirkjunni á föstu-
dagskvöldum kl. 20.00 sem er tilvalið fyrir þá
sem vilja fá leiðsögn. Þá koma nokkrir saman
í bænaherberginu og þar er leiðbeinandi með
létta kennslu. Við fáum líka mikið til okkar
fólk sem er að fara í gegnum sporin hjá AA,
Alanon eða Coda, fólk sem er að leita Guðs.
Fyrstu sporin snúast um að gefast upp fyrir
æðri mætti og við upplifum að fólk hungrar
eftir Guði. Við erum andi, sál og líkami og ég
held að við séum orðin södd af þessu verald-
lega auðæfa-kapphlaupi eftir allt sem þjóðin
hefur gengið í gegnum á undanförnum árum
og því er fólk orðið andlega þyrst, hungrað og
leitandi.“
Bæna- og „soaking“ -herbergið er opið alla
virka dag frá klukkan 10 til 16. Nánari upp-
lýsingar er að finna á www.ctfreykjavik.com.
cAtch the Fire NýstoFNuð kirkjA
Spurningin er: Hvernig á að
ferðast? Coolpackers hafa
svarið. Saga til útskýringar:
Það var kvöld í Norður-Tailandi og
myrkrið var suðandi flugur og engi-
sprettur. Coolpackers voru í leit að
rútu til næstu borgar. Þá hittu þeir
alltof vingjarnlegan Tailending
sem bauð þeim nákvæmlega það
sem þeir þurftu. Það var bílferð í
lúxusrútu, gisting á loftkældu hót-
eli og loks bátsferð niður stórfljót
sem endaði einmitt í réttu borg-
inni. Toppurinn var að fyrirtækið
myndi sjá um allt vesen á landa-
mærum sem Coolpackers þurftu
að fara yfir. Það eina sem þeir
þurftu að gera var að opna veskið,
líkt og bústnum og sællegum túr-
ista sæmir, og þeir yrðu hreinlega
bornir á áfangastaðinn.
Stefnan
Við afþökkuðum þennan dýrindis
lúxus. Ákváðum frekar að koma
okkur sjálfir á áfangastað. Og það
gerðum við. Fórum yfir landa-
mærin, sigldum niður ána, gistum
í frumskógarþorpi – og spöruðum
mikla peninga. „No prob“. Þannig
á að ferðast. Láta ekki leiða sig
blindandi gegnum framandi lönd.
Gera hlutina sjálfur. Spara sér allan
vestrænan óþarfa-lúxus. Þetta er
auðvitað bara okkar skoðun og er
eflaust töluvert mótuð af fjárhags-
stöðu okkar. Við eigum frekar lítið
af peningum og stefnum á að gera
þetta ódýrt. En burt séð frá því er
hún líka í nokkuð skemmtilegum
takti við kenningar sjálfs Búdda.
Og verandi staddir í Asíu finnst
okkur við hæfi að vefja smá búdd-
isma inn í þennan pistil.
Búdda
Búdda var ekki guð. Hann var
prins í Indlandi sex öldum fyrir
Krist. Hann lifði í miklum vellyst-
ingum, átti sætustu kærustuna og
skyldi erfa konungsríkið – sætasti
strákurinn í Hollywood-myndinni.
Við 29 ára aldur varð hann heltek-
inn af raunum og þjáningu mann-
kyns. Svo að hann lagði allan sinn
veraldlega auð að baki, prinsess-
una fögru og nýfæddan son til þess
að reika um landið í sex ár í leit að
svörum. Hann hugsaði mikið. Svo
dag nokkurn, þegar hann sat undir
stóru tré, fékk hann hugljómun, sá
og skildi hinn endanlega sannleika.
Eftir það ferðaðist hann um í 45 ár
og prédikaði, kallaður Buddha eða
hinn upplýsti.
Kenningin
Eitt meginstef kenningar hans
er hinn gullni meðalvegur. Sam-
kvæmt henni ber að feta rétta stigið
í átt að hamingju milli tvennra öfga.
Annars vegar ber að varast mein-
lætalifnað og píslir en hins vegar
er ómerkilegt að eltast við ofgnótt
og einfalda fullnægingu skilningar-
vitanna. Manni ber að rækta með
sér nægjusemi. Það jaðrar því við
guðlast að koma hingað í konungs-
ríki Búdda sjálfs og leggjast flatur í
einfalda leti og ánægju, láta fátæka
Asíubúa stjana við sig og ryðja í sig
kræsingum bara af því að það er
ódýrt. Eða hvað?
Vegurinn
Maður á að ferðast sjálfstæður
og sparsamur. Afþakka vest-
rænar loftkældar rútur og óþarfa
þjónustu. Maður á að kaupa ódýru
rútuna. Sitja í hörðu trésætunum
við hliðina á asísku skólabörnun-
um. Lofa þeim að dotta á öxl sinni.
Fara á ódýrasta gistiheimilið og
borða núðlusúpu á götuhorni. Það
er ævintýrið. Þannig er Tailand.
Slíkir eru vegir Coolpackers. Því-
líkir eru vegir Búdda.
coolpAckers
Vegir Búdda
... ég held
að við séum
orðin södd af
þessu verald-
lega auðæfa-
kapphlaupi
Að sóka nýtur
vaxandi vinsælda á
Íslandi. Sigga Helga
segir að friðurinn
sem fáist með þessari
hvíld sé engu líkur.
Tsjillað með Guði
Á Háteigsvegi 7 er að finna hvíldarherbergi þar sem fólk tekur sér frí frá
amstri hversdagsleikans til að drekka í sig nærveru Guðs.
forte
Multidophilus Forte er breiðvirk
probiotic blanda sem inniheldur
10 Milljarða virkra gerla.
Mælt er með einu hylki á dag til að
viðhalda góðri þarmaflóru.
„Probiocap®”
Multidophilus forte er
framleitt með nýrri aðferð
sem tryggir líftíma gerlana
og virkni þeirra.
Ný og öflug blanda
af meltingargerlum
Multi
doPhilus
Fæst í heilsubúðum, apótekum
og flestum matvöruverslunum.
sægreiFiNN skAmmtAr sNAFs úr kút
Eitt staup af
rommi á dag
„Þetta er forláta rommkútur
og hefur verið ákaflega vel
með hann farið í sveitinni
því það sér varla á honum,“
segir sægreifinn Kjartan
Ólafsson um gjöf sem hon-
um áskotnaðist í vikunni.
„Það strandaði hér skip á
stríðsárunum, tundurspill-
irinn H.M.S. Barrhead, og
það voru 34 menn um borð
og 20 rommkútar,“ en þegar
skipið strandaði skammt
frá Meðallandi komust allir
skipverjar í land af eigin
rammleik. „Bretarnir pöss-
uðu sig á því að taka með
sér allt áfengið og höfðu það
svo með sér til Reykjavíkur
en skipherrann gaf Eyjólfi
Eyjólfssyni, hreppstjóra á
Hnausum, þennan einstaka
rommkút.
Það var svo Vilhjálmur,
sonur Eyjólfs hreppstjóra, sem gaf Kjartani rommkútinn.
„Það var romm í kútnum og ég gef það bara valinkunnum
mönnum,“ segir Kjartan sem hefur nóg að sýsla á Sægreif-
anum. „Ég er hættur að elda súpuna og sjá um að grilla
og svona. Ég baksaði við þetta fyrst þegar ég byrjaði.
Það var peningakassi á borðinu en ég stakk peningunum
alltaf í vasann og hélt að kassinn væri bara skraut. Þegar
þeir komu frá skattinum þá hlógu þeir bara að mér og ég
slapp með skrekkinn. Nú treysti ég bara stelpunum fyrir
þessu,“ segir Kjartan sem er þó áfram í hlutverki gest-
gjafans. „Ég hef mest gaman af því að spjalla við fólkið og
er svona hæfilega dónalegur.“ -þká
Sægreifinn
býður
valinkunnum
gestum upp á
staup.
Coolpackers reyna
að feta í risastór
fótspor Búdda.
44 dægurmál Helgin 15.-17. júlí 2011