Fréttatíminn - 18.02.2011, Side 20
B
ragi býr með eiginkonu sinni,
Þórdísi Heiðu Kristjánsdóttur,
tveimur dætrum þeirra og
hundinum Tryggi sem er farinn
að reskjast. „Það eru að verða
komin níu ár síðan við byrjuðum saman. Hún
féll náttúrlega fyrir Baggalúti. Og svo hafa
tvær píur bæst í hópinn þannig að þetta er allt
í góðum farvegi. Tryggur fylgdi Þórdísi inn
á heimilið þannig að ég er svona fósturpabbi
hans og ég held að hann sé búinn að taka mig
í sátt,“ segir Bragi. „Hann er sómahundur
en er aðeins farinn að slappast. Það var samt
viss léttir þegar hann missti heyrnina en þá
hætti hann að gelta á ungbarnagrát og flug-
elda. Ætli það séu ekki svona fimm ár síðan
við byrjuðum að tala um að hann færi alveg
að fara en við erum eiginlega búin að gefast
upp á því. Hann verður hérna bara svo lengi
sem hann tórir.“
Bragi vinnur við auglýsingagerð hjá Fíton
á daginn og lítur á lagasmíðarnar sem nætur-
og helgarvinnu. „Þá sit ég í eldhúsinu og
reyni að láta lítið fyrir mér fara og hvísla
falleg lög inn á símann minn, “ segir Bragi
og bætir því við að iPhone sé orðinn mikil-
vægasta hjálpartækið við lagasmíðar. „Það
er enginn tónlistarmaður nema hann eigi
iPhone.“
Dreginn í kórinn
Vefsíðan baggalutur.is á rætur að rekja til
Menntaskólans við Hamrahlíð þar sem stofn-
félagarnir sex stunduðu allir nám á sínum
tíma og tveir þeirra, Bragi og Karl Sigurðs-
son, borgarfulltrúi með meiru, sungu í kór
menntaskólans.
„Þorgerður Ingólfsdóttir dró mig á kóræf-
ingu. Bókstaflega. Ég ætlaði sko ekki í þenn-
an helvítis kór en var þar svo í tíu ár, held ég,“
segir Bragi.
Á þessu ári eru tíu ár liðin frá því Bragi og
félagar opnuðu Baggalút og hann segir að lík-
lega þurfi þeir að gera eitthvað í tilefni afmæl-
isins. Baggalútarnir byrjuðu sem nafnlausir
brandarakallar á vefnum, stigu síðan fram og
hafa heldur betur látið til sín taka í tónlistinni
og víðar og eiga meira að segja sinn fulltrúa í
borgarstjórn Reykjavíkur. En lögðu þeir upp
með að ná heimsyfirráðum á tíu árum? „Og
að vera út um allt. Gersamlega óþolandi. Nei.
Þetta var nú ekki alveg áætlað svona þótt það
hafi nú samt verið gert ráð fyrir heimsyfirráð-
um í hlutafélagaskráningunni ef ég man rétt.
En þetta hefur farið aðeins úr böndunum.“
Pælt í sokkabuxum yfir bjór
„Við í Baggalúti erum byrjaðir að spá í að
gera glam-rokkplötu en erum ekki alveg
búnir að átta okkur á hvort við þorum að fara
þá leið. Þetta þótti mjög fyndið yfir einhverj-
um bjórum fyrir nokkrum mánuðum. Við
þurfum í það minnsta einhverja afsökun til að
troða okkur í sokkabuxur. En ef þetta dettur
upp fyrir þá verður það bara önnur jólaplata
eftir fjögur ár. Við erum alltaf með jólalög
á hverju ári sem hlaðast upp þangað til við
hreinsum lagerinn með því að gefa lögin út
á plötu. Það kemur okkur alltaf jafn mikið á
óvart að fólk skuli vilja kaupa þetta eftir að
við erum búnir að gefa það út á netinu.“
Bragi hefur verið frekur til fjörsins í ís-
lensku tónlistarlífi undanfarið og í því sam-
bandi nægir að nefna barnaplötuna Gilligill,
Diskóeyjuna þar sem Páll Óskar fór á kostum
með Memfismafíunni í einu vinsælasta lagi
síðasta árs, Það geta ekki allir verið gordjöss.
Jólalög og -plötur Baggalúts hafa einnig notið
mikilla vinsælda og nú síðast kom út plata
með lögum úr sýningunni Ballið á Bessastöð-
um í Þjóðleikhúsinu en Bragi samdi tónlist-
ina auk þess sem hann og Gerður Kristný
eiga heiðurinn af söngtextunum.
Bragi segir að þrátt fyrir allan þann ara-
grúa af lögum sem hann hefur átt þátt í að
semja síðustu misseri sé því nú ekki þannig
farið að fólk standi í biðröð hjá honum og biðji
um lög sem muni slá í gegn. „Nei, nei. Þetta
raðaðist svolítið mikið á síðasta ár þótt það
væri alls ekki planað þannig og þetta lenti allt
einhvern veginn í einni kös.“
Töff að vera í Klamidíu X
Bragi segist hafa byrjað að fikta við laga-
smíðar á menntaskólaárunum. „Maður var
náttúrlega alltaf í hljómsveitum á þessum
árum. Ég var í hinni gagnmerku hljómsveit
Klamedíu X þegar ég var ungur maður. Það
þótti mjög töff og það var einmitt út frá þeirri
ágætu sveit sem ég kynntist Kidda í Hjálm-
um.“ Þeir Guðmundur Kristinn Jónsson,
jafnan kallaður Kiddi hjálmur, og Bragi hafa
unnið mikið saman með góðum árangri en
þeir kynntust eftir að Klamedía X vann Rokk-
stokk-hljómsveitakeppnina sem Kiddi stóð
fyrir 1998. „Verðlaunin voru meðal annars
stúdíótímar til þess að taka upp plötu og hann
tók plötuna okkar upp. Þegar Baggalútur fór
svo að reyna fyrir sér á tónlistarsviðinu var
Kiddi eini maðurinn sem ég vissi um sem
hafði aðgang að stúdíói. Þá var hann farinn
að vinna í Geimsteini og við hjóluðum í hann.
Þegar hann var aðeins búinn að jafna sig á
okkur og venjast bullinu þá gekk hann til
liðs við hópinn og er svona driffjöður í þessu
hljómsveitardútli öllu.“
Bragi hrærði í ansi mörgum pottum á
síðasta ári og hann er vantrúaður á að rólegri
tímar séu fram undan. „Maður er alltaf að
telja sér trú um að það sé að hægjast um
en það er nú bara einhver draumsýn þegar
maður er með mann eins og Kidda á hliðar-
línunni. Hann byrjaði árið á því að hóa saman
mannskapnum til þess að taka upp blúsplötu
þar sem Gummi P. [Guðmundur Pálsson
baggalútur] og Steini hjálmur [Þorsteinn Ein-
arsson] eiga að leiða saman blúshesta sína.
Það er spurning hvað verður úr því. Síðan eru
fyrirhugaðir tónleikar hjá Sigga Guðmunds
og Siggu Toll með Sinfó og ætli maður verði
ekki látinn setja einhverja putta í það. Stærsta
verkefnið fram undan er svo að klambra
saman Diskóeyjunni fyrir Borgarleikhúsið
fyrir vorið 2012 þannig að ég þarf að reyna að
draga Óttarr Proppé út úr katakombum Ráð-
hússins og fara að láta hann bjarga tónlistar-
lífinu í stað þess að vera að berja það niður.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Maður er alltaf að telja sér trú um að það sé að
hægjast um en það er nú bara einhver draumsýn.
Þurfum afsökun til að
troða okkur í sokkabuxur
Hundurinn Tryggur er farinn að missa heyrn
og tónsmíðar húsbóndans fara því fram
hjá honum. Hann lét þó gigtina ekki aftra
sér frá því að stökkva upp í sófa til þess að
stilla sér upp á mynd með Braga.
Baggalúturinn Bragi Valdimar
Skúlason er úti um allt í íslensku
tónlistarlífi og virðist hafa ósköp lítið
fyrir því að hrista fram úr erminni lög
sem hitta beint í mark. Gildir þá einu
hvort um er að ræða barnalög, létt
grín með félögunum í Baggalúti eða
allt þar á milli. Þórarinn Þórarinsson
heimsótti Braga í Heimana, þar sem
hann býr með konu, tveimur dætrum
og heyrnarlausa hundinum Tryggi, og
ræddi við hann um ballið sem byrjaði
með vefsíðunni Baggalúti og er enn í
fullum gangi.
20 viðtal Helgin 18.-20. febrúar 2011