Fréttatíminn - 18.02.2011, Qupperneq 36
Samkvæmt lögum um starfslaun
og verkefnastyrki fer að líða að því
að listar styrkþega birtist opinber-
lega en úthlutunum skal lokið fyrir
1. mars ár hvert. Umsóknarfrestur
rann út 1. október síðastliðinn og
áætlar löggjafinn því að það taki
úthlutunarnefndirnar tæpa fimm
mánuði að komast að niðurstöðu
um hverjir séu þess verðir að þiggja
styrki af almannafé til liststarf-
semi. Þykir mörgum það ærið lang-
ur umhugsunarfrestur, til dæmis
ef litið er til þess umþóttunartíma
sem stofnun á borð við Kvik-
myndamiðstöð þarf til afgreiðslu
á umsóknum til handritsgerðar og
framleiðslu. Þar á bæ hefur það tek-
ið ráðgjafa og starfsfólk skemmri
tíma að afgreiða umsóknir. Allt þar
til í fyrra, þegar skorið var niður
fjármagn til Kvikmyndamiðstöðv-
ar, var gefinn afgreiðslufrestur sex
til átta vikur en eftir sparnað hefur
hann lengst og nú áskilur KMÍ
sér átta til tíu vikur til að afgreiða
styrkumsóknir. Minna má á að
samkvæmt stjórnsýslulögum þurfa
opinberar stofnanir almennt að
svara erindi innan sex vikna.
Starfslaunakerfið er komið til ára
sinna og hefur alla tíð verið ógegn-
sætt. Þannig eru einungis birtar
upplýsingar um hverjir fá styrki en
ekki hverjir sóttu um. Fyrir vikið
verður aldrei hægt að meta hvaða
áhrif kerfi úthlutunarnefndanna
hefur á þróun þegar litið verður til
baka; einungis hvað það samþykkti
en ekki hverju var hafnað. Í nýlegri
úthlutun Leiklistarráðs vakti
athygli að Vesturport fékk ekki
styrk tíunda starfsár sitt. Þá vakti
líka athygli að stór styrkþegi fyrri
ára, Hafnarfjarðarleikhúsið, nýtur
ekki lengur þríhliða samnings
Hafnarfjarðarbæjar, ráðuneytis og
Hermóðs og Háðvarar.
Margt bendir til að kominn sé
tími á uppstokkun á styrkjakerfinu
öllu. Blessunarlega hefur sjóðum
fjölgað og tilkoma þeirra leitt til
fjölbreyttari flóru í listum. Því
verður ekki á móti mælt að stórir
aðilar njóta forgangs í kerfinu:
Sterkar útgáfur fá stuðning með
starfslaunum rithöfunda sem hjá
þeim eru, stóru leikhúsin njóta í
æ ríkari mæli aukastyrks umfram
sína stóru styrki með samstarfs-
verkefnum við smærri hópa. Lands-
byggðarleikhúsið sem nýtur ríku-
legra styrkja, Leikfélag Akureyrar,
hefur dregið úr sviðsetningum á
eigin vegum og raunar er leikhús-
markaður nyrðra allt annar eftir
tilkomu Hofs.
Samkvæmt upplýsingum skrif-
stofu stjórnar listamannalauna er
þess að vænta að úthlutunum ljúki
að mestu um þessa helgi. Og þá má
jafnframt vænta þess að upp hefjist
raustir öfundarmanna sem telja
þessa styrki alls óþarfa. -pbb
Söngkonan kunna og ljóð-
skáldið Patti Smith greindi frá því
fyrir skömmu að hún hefði í vinnslu
leynilögreglusögu sem gerðist
í Lundúnum. Patti sendi frá sér
endurminningabókina Just Kids í
fyrra og hefur á löngum ferli sent
frá sér fjölda bóka, bæði textaskrif
og myndverkabækur. Hún segist
vera búin með nær þrjá fjórðu af
verkinu sem hafi komið til hennar
í Lundúnum, nánar til tekið í
kirkjunni. Hún segir verkið vera
inspírerað af sögunum um Sher-
lock Holmes og verkum Mickeys
Spillane. Smith vinnur einnig að
hljóðritunum á nýjan disk. -pbb
Patti Smith skrifar krimma
Bókadómur konan sem fékk spjót í höfuðið
e in af tilnefningum til bókmennta-verðlauna bókaútgefenda var rit sem annars hefur farið lítið fyrir:
Konan sem fékk spjót í höfuðið eftir
Kristínu Loftsdóttur, prófessor í mann-
fræði við Háskóla Íslands, sem Háskóla-
útgáfan gaf út síðla árs í fyrra.
Ritið er í senn inngangur að etnógra-
fískri könnun á högum farandþjóðar í
Níger, inngangsrit um stöðu í vettvangs-
rannsókn í mannfræði sem grunn-
tæki í slíkum rannsóknum, persónuleg
lífsreynslusaga sem er tjáð af lifandi
og ákafri, víða fallegri og mannlegri
afstöðu, heilindum og manngæsku, og
jafnframt er verkið stúdía um lífsskilyrði
sem eru eins langt frá okkar högum
og hugsast getur. Konan í titlinum er
Kristín sjálf og spjótið sem hún fær fyrir
slysni í höfuðið er líking um alla veru
hennar um nær tveggja ára skeið þar
suður frá þar sem hún var á vettvangi
við rannsókn á WooDaBe-þjóðinni sem
fer um gresjur og dali í norðurhluta
Nígers við jaðar Sahara. Kristín var
þar um miðjan tíunda áratuginn, samdi
um rannsókn sína doktorsverkefni við
bandarískan háskóla og lætur nú frá sér
fara þetta rit sem einhvers konar loka-
stiklu á þeirri vegferð.
Saga Kristínar er fallega unnið verk,
skilmerkilega samsett og þannig niður-
skipað að aðdáunarvert er. Grunnvið-
fangsefni hennar er í senn rannsókn á
högum hriðingja og um leið endurskoð-
un á vettvangsrannsókninni í vestrænni
rannsóknarsögu, einkum innan mann-
fræðinnar, en með þeim hætti að hún
dregur fram ágalla og kosti aðferðarinn-
ar að fara á ókunnan vettvang og safna
þar gögnum með öllum þeim ágöllum
sem skömm vist á fjarlægum slóðum
gefur.
Í slíkri ferð vegur eðlilega þungt
hvern mann viðkomandi hefur að
geyma: Fölskvalaus áhugi sagnamanns-
ins og harkan sem þarf til að lifa þá dvöl
af í allsleysi, þar sem vatnsskorturinn er
erfiðasti hjallinn, verður í frásögn Krist-
ínar ljóslifandi. Henni tekst, í bland við
persónulega upplifun sem er ólýsanleg
nema í hennar eigin orðum, að ramma
verkið allt inn á skýran og látlausan hátt
svo að unun er að lesa, um leið og hún
miðlar flóknum upplýsingum á ljósu og
skýru máli, bæði um samtímann þar
syðra og fornan og óljósan bakgrunn
samfélagsins sem hún sækir heim.
Henni tekst jafnvel að gera verkið með
þeim hætti að það rís í dramatískan
spennupunkt, svo að lesandinn heldur
sig við lesturinn til enda, og dregur svo
fyrirhafnarlaust saman alla frásögnina
í lokapunkt sem skilur lesandann eftir
sáttan og vitrari.
Upphafið er ljósmynd, reyndar ein
þeirra mynda sem oft er flíkað af þeim
hirðingjaþjóðum sem búa sunnan
Sahara: málaðir karlmenn sem minna
mest á drag-drottningar okkar daga.
Níger er eitt fátækasta ríki heims og þeir
sem þar reika um hring eftir hring með
búsmala sinn eftir regntíð búa við mikla
fátækt en lifa í velskorðuðu samfélagi
sem þrífst þó að hluta til sökum þess að
fullorðnir, bæði karlar og konur, sækja
vinnu tímabundið til nálægra atvinnu-
svæða. Kristín gerir okkur ljósa grein
fyrir lífsmáta þessa fólks, aðvífandi
hættu í nágrannalöndum vegna stríðs-
hættu og ófriðar og líka hvernig innri
bygging þessa farandsamfélags tryggir
tilvist þess. Lífsgildin eru merkileg:
bæði ríkjandi krafa um æðruleysi, stolt,
þolgæði og lítillæti. Bókin er því verðug
áminning okkar sundraða heimi.
Konan sem fékk spjót í höfuðið er
merkilegt rit og glæsileg skil á flóknu
viðfangsefni til almennra lesenda og er
óskandi að miklu miklu fleiri kynni sér
þessa merkilegu og fallegu frásögn sem
er fræðimanninum og manneskjunni til
mikils sóma.
konan sem fékk
spjót í höfuðið
Kristín Loftsdóttir
Háskólaútgáfan
220 bls. 2010
36 bækur Helgin 18.-20. febrúar 2011
Liststarfsemi ÚthLutun aLmannafjár
VinsæLt BaLL
Ballið á Bessastöðum
eftir Gerði Kristnýju er
í öðru og þriðja sæti
barnabókalista bóka-
verslana Eymundsson,
innbundin og í kilju.
Það er vel gert hjá
handhafa Íslensku
bókmenntaverð-
launanna.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Fimmtán áður óbirtar sögur eftir Dashiell Hammett fundust nýlega í einkasafni
sem er í vörslu háskólans í Texas. Hammett var einn af þessum stóru og hafði
mikil áhrif á sínum tíma og síðar á harðsoðna stílinn sem upphófst vestanhafs og
breyddist hratt út um hinn vestræna heim, einkum fyrir áhrif Hemingways.
Hammett er þekktastur fyrir Möltufálkann en fleiri skáldsögur hans eru
kunnar: Red Harvest og The thin man. Sögurnar fimmtán munu birtast á bók en
fyrsta sagan verður prentuð í tímaritinu Strand vestanhafs þar sem áður hafa
birst áður óprentaðar sögur eftir meistara á borð við Green, Twain og Christie
fyrir tilstilli ritstjórans Gulli. Hann segir sögur Hammetts vera af ýmsum toga;
sumar séu með hans sérstaka stíl, aðrar af öðru tagi.
Hammett starfaði um tíma sem rannsóknarmaður fyrir Pinkerton, einka-
fyrirtæki sem tók að sér rannsóknir á glæpum. Hann skrifaði lungann úr verkum sínum á örfáum
árum og lét af ritstörfum 1934 en var þá þekktur fyrir afskipti sín af stjórnmálum. Á efri árum var
hann á svörtum lista ásamt sambýliskonu sinni, Lillian Hellman. Hún hefur gert hann að persónu í
endurminningabókum sínum. Vitað er að Hammett þekkti til Íslendingasagna og hafa aðdáendur
hans gert því skóna að hans kaldhamraði stíll sé að hluta kominn þaðan. Gulli segir fundinn kalla á
endurmat á Hammett sem höfundi. -pbb
Óbirt verk Hammetts fundin
Tími starfslauna
og styrkja
Á slóðum kúreka í Níger
Bók Kristínar
Loftsdóttur um
veru hennar með
WooDaBe-þjóð-
inni er fallega
unnið verk, skil-
merkilega sam-
sett og þannig
niðurskipað að
aðdáunarvert er.
Kristín Loftsdóttir á vettvangi í Afríku. Bók hennar skilur lesandann eftir sáttari og vitrari en áður.
Dashiell Hammett.
Konan sem
fékk spjót í
höfuðið er
merkilegt
rit ... og er
óskandi að
miklu miklu
fleiri kynni
sér þessa
merkilegu
og fallegu
frásögn ...
Patti Smith
Lj
ós
m
yn
d/
N
or
di
cP
ho
to
s/
G
et
ty
Im
ag
es
Starfslaunakerfið er komið til ára sinna og hefur
alla tíð verið ógegnsætt. ... Margt bendir til að
kominn sé tími á uppstokkun á styrkjakerfinu öllu.