Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.02.2011, Page 38

Fréttatíminn - 18.02.2011, Page 38
Þ að velkist enginn lengur í vafa um að óhollusta á sér efnahagslegar for­ sendur. Menn eru hins vegar ekki sammála um hverjar þessar forsendur séu. Tengslin eru klár. Því lægri tekjur sem fólk hefur því líklegra er það til að neyta matar sem er snauður af næringarefnum en ríkur af sæt­ indum og vondri fitu. Offita, tann­ skemmdir og slæmar hægðir, sem voru stöðutákn á tíma Loðvíks fjórt­ ánda, leggjast nú fyrst og fremst á þá sem hafa minnst umleikis. Því miður lifum við á tímum for­ sendulauss elítuisma og því eru vinsælustu skýringarnar á þessum tengslum þær að fátæka fólkið sé ekki nógu vel upplýst um hollustu og næringu. Yfir þessu hangir hin ósagða grunnforsenda: Fátæka fólk­ ið er náttúrlega ekki fátækt af til­ viljun; það er fátækt af því að það er svo illa upplýst. Þessar hugmyndir njóta hylli meðal háskólafólks sem sækir sjálfsvirðingu sína í skólalærdóm. Og þar sem það er ráðandi afl í hug­ myndaheimi samtímans – hin sanna prestastétt – eru skoðanir þess ríkjandi. Því er brugðist við lakari heilsu hinna fátæku með einfeldn­ ingslegum áróðri, rótföstum í fyrir­ litningu á hinum fátæku (lesist = heimsku). Ballettfólkið dó út Áður en við komum með skárri kenningu viljum við þó minna á að innra með okkur eru hvatir sem hafa mótast á þúsundum ára. Þessar hvatir eru leiðarvísar okkar til farsældar og langlífis. Við erum þannig sólgin í fitu vegna þess að fita er tvisvar sinnum orkumeiri en kolvetni eða prótein. Þegar við vor­ um safnarar og hirðingjar farnaðist þeim best sem rifu í sig fituna. Þeir höfðu kraft til að leita lengra að gjöf­ ulum svæðum og meiri orku til að sinna ungviðinu. Þetta fólk lifði því lengur og gat af sér fleiri afkomend­ ur en þeir sem lifðu eins og ballerín­ ur á kaffi og tyggjói. Ballerínufólkið dó út. Við erum afkomendur hinna. Sama má segja um sætindi. Það er eitt af trixum náttúrunnar að grænmeti og ávextir eru sætastir þegar þeir eru fullþroska og fullir af næringarefnum. Dýr dragast að sætindunum, fá hámarksnæringu og dreifa síðan óafvitandi fræjum sem eru fullþroska. Einhvern tím­ ann í fyrndinni var án efa til tré sem bar ávexti sem voru sætir þegar þeir voru óþroskaðir og dýr sem fannst beiskir og næringarlitlir ávextir góðir – en hvort tveggja dó út. Við erum afkomendur fólks sem var sólgið í sætindi og lifum í heimi þar sem maturinn er næringarbestur þegar hann er sætastur. Nixon skemmir allt Þessi ásókn í sætindi og fitu var ekki vandamál annarra en auðkýf­ inga fyrr en fita og sætindu urðu svo ódýr að allir gátu étið sig til slæmrar heilsu. Það gerðist þegar Richard Nixon breytti landbúnaðarstefnu Bandaríkjanna upp úr 1970 og hóf stórkostlegar niðurgreiðslur á maís, hveiti og sojabaunum. Þetta leiddi til offramleiðslu og verðhruns; fyrst á þessum vörum og síðan á vörum unnum úr þeim; sterkju, sírópi, olíu. Og loks til verðlækkunar á öðrum vörum sem urðu undir í verðsam­ keppni við hinar niðurgreiddu vörur, til dæmis sykri. Fyrsta fórnarlamb þessarar stefnu varð landbúnaður Banda­ ríkjanna sem breyttist í mónó­ ræktun á risabúum. Næst féll efna­ hagur Kúbu; 60 til 70 prósentna verðlækkun á sykri kippti fótunum undan samfélaginu sem Kastró hafi byggt upp og hann neyddist til að laða ferðamenn að eyjunni. Því næst féll heilsa Bandaríkjamanna. Niður­ greitt korn varð að ódýru sírópi sem varð að sætindum sem varð að fitu sem nagaði heilsufarið. Fíkniefni eru viðkvæm fyrir verðbreytingum Til að skilja hvernig svona lítil þúfa getur velt mörgum hlössum er gott að rifja upp kenningar hagfræðing­ anna Garys S. Becker og Kevins M. Murphy. Á tíunda áratug síðustu aldar vildu þeir rannsaka tengsl verðs og eftirspurnar eftir fíkniefn­ um. Fyrirfram töldu þeir, eins og all­ ir aðrir, að þessi tengsl væru veikari á fíkniefnamarkaði en öðrum mörk­ uðum. Fíklar eru nú einu sinni fíkl­ ar; þeir eru tilbúnir að yfirstíga alls kyns hindranir til að komast yfir efni – og hví ekki líka hátt verð. Niðurstaða þeirra Beckers og Murphys var þveröfug. Þeir kom­ ust að því að fylgni verðs og eftir­ 38 matur Helgin 18.-20. febrúar 2011 Það er óðum að skýrast hver tengslin eru á milli niðurgreiðslna til bænda í Bandaríkjunum og vaxandi offitu vestanhafs og um allan heim. Vegna þess hversu sólgin við erum í sætindi gat lækkun á sykri og sætuefnum í raun umbreytt því hvað við borðum – og hvernig við höfum það á eftir.  MatartíMinn EfnahagslEgar forsEndur fitusöfnunar Þetta er allt Nixon að kenna Ekki vitum við hvort sýning bændanna í Hörgárdal á Með fullri reisn mun varpa einhverju ljósi á líf fólks sem hefur misst fótanna fjárhags- lega, en kynningarmyndin um sýninguna gerir það svo sannarlega. Þarna stilla sér upp stoltir karlar sem forheimskt landbúnaðarkerfi hefur barið niður í örbirgð. En þeir eru flestir í holdum sem hefðu sómt síldarspekúlöntum eða sýslumönnum fyrir hálfri eða heilli öld. Spekúlantar dagsins og héraðshöfðingjar eru hins vegar tálgaðir af hráfæði og Herbalife og slitnir fyrir aldur fram af þælkun í Boot Camp eða World Class. Richard Nixon var forseti sem virtist ekkert geta gert rétt. Hann vildi bæta kjör stórbænda en rústaði heilsufar þjóðarinnar. Myndir: Nordic Photos/Getty Images Fídel Kastró missti tök á Kúbu þegar Nixon fór að niður- greiða maís. Offramleiðsla á kornsírópi felldi sykurverð og þar með efnahag Kúbu. Kastró neyddist til að leggja fyrir sig túrisma. Homo Erectus. Það er líklega honum að kenna að okkur finnst sætur matur góður. Fyrir honum þýddu sætindi fjölbreytt næringarefni en í dag eru sætindi uppáskrift á fábreytt fæði. ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 4 20 40 0 4. 20 08 spurnar var margfalt meiri á fíkniefna­ markaði en öðrum mörkuðum. Til að útskýra ástæðurnar bjuggu þeir fyrst til hagfræðilegt hugtak, fíknivara, þar sem þeir gátu ekki notast við læknis­ fræðilegt hugtak til að skýra hagfræði­ lega hegðun. Fíknivara er vara þar sem neysla á fyrstu einingu eykur líkurnar á að maður fái sér aðra. Neyslan ferðast eftir eins konar dómínókerfi. Þegar fyrsti kubburinn fellur, falla aðrir í kjölfarið. Verðhækkanir draga úr ásókn í fyrsta kubb og ef hans er ekki neytt hverfur líka neysla á kubbunum sem hefðu fylgt á eftir. Lækkun verðs eykur að sama skapi neyslu á fyrstu kubbunum og aðrir kubbar falla á eftir. Þetta veldur því að 10 prósent lækkun á verði fíkniefna getur aukið neysluna um 20 eða 30 prósent á meðan sama lækkun á vörum sem ekki flokkast sem fíknivörur, til dæmis gulrætur, leiðir til minni neysluaukningar, kannski 5­10 prósent. Að sama skapi leiðir 10 prósent verðhækkun til meiri samdráttar í neyslu fíkniefna en á venjulegum vörum. Þessar niðurstöður gengu þvert gegn því sem talið var almenn skynsemi og þær hafa ekki enn náð að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í manneldis­ og holl­ ustumálum. Samt eru þær augljósar um leið og fólk kemur auga á þær. Við höfum til dæmis séð á Íslandi frá hruni hversu hratt hækkun á áfengisverði hefur dreg­ ið úr neyslu. Fíknivörur taka mesta plássið En hvað koma rannsóknir á fíkniefnum sykri við? Þegar við notum hagfræðilega hugtakið fíknivara í stað læknisfræði­ lega hugtaksins fíkniefni, getum við velt upp hvers kyns matur það er þar sem neysla á einni einingu eykur líkur á að maður borði þá næstu. Gulrætur? Nei. Rækjur? Nei. Nóa­konfekt? Já. Kartöflu­ flögur? Já. Harðfiskur með smjöri? Já. Popp og kók? Já. Það sem einkennir vörur sem hafa þessi áhrif á okkur eru annars vegar sæ­ tindi og hins vegar samspil fitu og salts. Sælgæti og gos er sætt og fita og salt einkennir harðfisk og smjör, kartöflu­ flögur og poppkorn. Ef þið gangið um stórmarkaði dagsins og rifjið upp hvern­ ig þeir voru fyrir fáum árum sjáið þið strax hvað hefur breyst: Hillurnar undir feita og salta snakkið eru orðnar stærri en kjötborðið og fiskborðið til samans. Og gosið og sælgætið fær meira pláss en mjólkin, grænmetið, ávextirnir og kornið samanlagt. Fátækragildra í stórmörkuðum Ef við tökum þetta saman þá er þetta söguþráðurinn: Við komum inn í nú­ tímann með góða geníska lyst á feitmeti og sætindum. Þetta var ekki vanda­ mál annarra en auðugra þar sem hvort tveggja var fágæti. Með niðurgreiðslum í Bandaríkjunum lækkar verð á fitu (korn­ olía verður magarín í kex og kökur og djúpsteikingarfeiti fyrir franskar kart­ öflur og snakk) og sætindum (kornsíróp umbreytir markaðnum og fellir sykur­ verð um tvo þriðju). Framleiðendur gátu þá bætt sykri og fitu í vörur sínar án þess að hækka verð. Sæt jógúrt kostaði það sama og ósæt. Og vegna genískrar löng­ unar keyptum við hana frekar. Og oftar – einn kubbur fellir þann næsta. Og fram­ leiðandinn áttaði sig á að sæt jógúrt seld­ ist margfalt betur en ósæt og eftir fá ár voru allar mjólkurvörur orðnar meira og minna dísætar. Sama þróun átti sér stað í öðrum vöruflokkum og eftir fáein ár til viðbótar voru svo til allar vörur í stór­ mörkuðunum orðnar annað hvort sætar eða feitar og saltar. Almennilegi maturinn hraktist úr stór­ mörkuðunum í sérverslanir; heilsubúðir, sem þó seldu lítið annað en mat eins og hann var fyrir fáum árum. En hann kostar nú miklu meira. Almennilegi maturinn er ekki lengur hluti meginmarkaðarins, hvorki í framleiðslu, dreifingu né smá­ sölu. Það er kostnaðarsamara að búa hann til og koma honum til fólks. Og aðeins þeir betur settu ráða við að kaupa almennilegan mat. Hinir fátæku eru fastir í gildru stórmarkaðanna og iðn­ aðarmatarins. Mikill veltuhraði tryggir að vörur sem innihalda sætindi eða salt og fitu eru ódýrastar. Skatturinn stoppaði reykingar Við getum ekki lagað genin okkar að landbúnaðarstefnu Bandaríkjanna. Genin munu telja að sætindi og sykur séu fágæti næstu nokkur þúsund árin – nema við ræktum þetta út úr stofninum (við þyrft­ um þá að gelda alla yfir kjörþyngd og velja til undaneldis aðeins þá sem borða hvorki nammi né drekka gos). Það er líka vita vonlaust að ætla með útgáfu bæklinga frá Lýðheilsustofnun að vega upp áhrif genanna og landbún­ aðarstefnu Bandaríkjanna. Með fullri virðingu fyrir umtölunum og hvatningu þá vegur slíkt sjaldnast þungt gegn efna­ hagslegum forsendum. Verðhækkanir á tóbaki fengu fólk miklu fremur til að hætta að reykja en merkingar á sígarettu­ pökkum. Þá er eftir sá kostur að núlla út skaðleg áhrif af landbúnaðarstefnu bandarískra stjórnvalda með því að leggja tolla á móti niðurgreiðslunum. Þetta kunnum við Ís­ lendingar. Við leggjum ofurtolla á franska osta til að vernda landbúnaðinn. Af mynd­ inni af bændunum í Hörgárdal að dæma væri miklu nær að leggja tolla á snakk og sætindi til að vernda bændurna sjálfa. Þórir Bergsson og Gunnar Smári Egilsson matur@frettatiminn.is Matur

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.