Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.02.2011, Qupperneq 40

Fréttatíminn - 18.02.2011, Qupperneq 40
40 heimili Helgin 18.-20. febrúar 2011 T vær ungar konur á Akureyri, þær Hrafn-hildur og Tinna Brá, tóku sig til í maí á síðasta ári og stofnuðu Hrím Hönnunar- hús í Listagilinu með nánast ekkert á milli handanna. Þær settu upp verslun, sem selur aðallega íslenska hönnun, með öllu tilheyrandi fyrir 250 þúsund krónur og tóku engin lán til verksins. Nú, tæpum níu mánuðum seinna, reka þær verslunina Hrím í menn- ingarhúsinu Hofi, auk þess sem þær eru með vefversl- unina Hrim.is og sinna ým- iss konar hönnun og ráðgjöf. Hrafnhildur og Tinna kynnt- ust við nám í Listaháskólan- um en þaðan eru þær útskrif- aðar með BA í arkitektúr. „Þetta hefur gengið svaka- lega vel og það er augljóst að þörfin var mikil fyrir verslun að þessu tagi,“ segir Tinna Brá. Hún segir að þetta hafi verið meiri vinna en þær bjuggust við en samt sem áður mjög skemmtileg. „Það er mikill áhugi á ís- lenskri hönnun og fólk vill kaupa eitthvað sem er búið til og framleitt hér á Íslandi, auk þess sem við finnum að fólk er mjög stolt af íslenskri hönnun og sendir hana mik- ið erlendis sem gjafir,“ segir Tinna Brá. Gróskuna segir hún vera mikla og í hverri viku fá þær tölvupóst frá fólki sem er að koma hönn- un sinni á framfæri. „Það er lítið að gera hjá arkitektum um þessar mundir, sem gefur þeim ráðrúm og tíma til að skapa meira, og margir eru að gera spennandi hluti og framboðið er mikið af nýrri hönnun.“ „Núna finnst okkur flott að hafa svolítið hrátt útlit og nota grófan við og jafn- vel trjágreinar við hönnun okkar; endurnýting er okkur ávallt ofarlega í huga. Sjálfar notuðum við bara hluti sem við fundum úti við til að inn- rétta búðina. Við bjuggum til vegg úr vörubrettum og steyptum og bæsuðum hann til að fá grárri lit á hann, af- greiðsluborðið er gamalt tekkborð sem við gerðum upp, útstillingarborðin eru svo smíðuð úr girðingar- staurum og máluðum mdf- plötum en við erum oft spurðar að því hvernig við bjuggum þau til.“ Hún seg- ist verða vör við að fólk reyni að gera sem mest úr því sem það hefur og sé ekki eins mikið að stökkva til og taka lán fyrir hlutunum. „Það er hægt að gera svo margt til dæmis með málningu; mála einn stól í skærum lit og eina hurð í stíl og það hefur heil- mikið að segja.“ Ásamt því að reka versl- unina Hrím bjóða Tinna Brá og Hrafnhildur upp á hönnun og ýmsa ráðgjöf. „Til dæmis tökum við í gegn gömul hús- gögn og breytum þeim eða tökum heilu herbergin eða íbúðirnar í gegn og endur- hönnum. Við tökum líka að okkur að hanna lógó og auglýsingar, erum svona þúsundþjalahönnuðir. Við getum gengið í svo margt og ég hugsa að það sé náminu í Listaháskólanum að þakka.“ S máfuglarnir þurfa á miklu fóðri að halda og þegar snjóar eiga þeir oft erfitt með að nálgast fæðu. Því er oftar en ekki höfðað til landsmann og þeir minntir á að gefa smá- fuglunum. Fuglafóður fæst í öllum helstu matvöruverslunum en þegar heim er komið getur það orðið þrautin þyngri að átta sig á með hvaða hætti fóðrinu á að koma til fuglanna. Ef því er hent út á stétt getur það sokkið og horfið í snjóinn eða hreinlega snjóað yfir það. Ekki má heldur setja fóðrið þangað sem kettir koma því þá fóðrum við óvart kettina í leiðinni þegar þeir drepa smáfuglana. Æskilegast er talið að gefa þeim strax og birtir í skammdeginu og dreifa fóðrinu þar sem kettir ná síst til – úti á svölum þar sem komið hefur verið fyr- ir spjaldi á handriðið fyrir fóðrið og á hús- eða bílskúrsþökum. Ekki er verra að hafa fuglafóðrara í garð- inum eða á svölunum þar sem fuglarnir geta leitað sér skjóls og fengið sér að borða. Hér á myndunum gefur að líta nokkra fallega fuglafóðrara eftir ýmsa hönnuði. Hangandi glerkúlur frá Eva Solo.  fóður handa fögrum fuglum Ekki gleyma smáfuglunum Ljósin, sem eru eftir Brynju Emilsdóttur og gerð úr íslenskri ull, fást bæði sem lampar og loftljós.  hugvit og Sköpun Gerðu stóra hluti úr nánast engu Vinkonurnar Tinna Brá og Hrafnhildur byggðu upp fyrirtæki og settu upp verslunina Hrím á Akur- eyri með nánast ekkert á milli handanna og slógu í gegn. Thee Apple, eða Eplið eftir Thomas Stanley. Veggurinn er úr vörubrettum sem þær steyptu og bæsuðu til að fá grárri lit á vegginn. Skissubækurnar í hillunni eru eftir Eirík Arnar Magnússon og kallast Second hand made. Rýmingarsala! Rýmum fyrir nýju garðhúsgögnunum og bjóðum síðustu “Estelle” bastsófasettin á frábæru verði. Listaverð kr. 299.900,- Rýmingarsöluverð kr. 99.000,- Opið: Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16 Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is 67% afsláttur Seljum seinustu „Estelle“ inni-bastsófasettin á frábæru verði. Litir: Grár og brúnn. Hægt að þvo áklæði. Henta einkar vel fyrir sólstofur og lokaðar svalir. Rýmingarsala! Rýmu fyrir nýju garðhúsgögnunum og bjóðum síðustu “Estelle” bastsófasettin á fr bæru verði. Listaverð kr. 299. 00,- Rýmingarsö uverð kr. 99.00 ,- Opið: Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16 Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is 67% afsláttur afsláttur Vissir þú að C-vítamín er eina vítamínið sem líkaminn framleiðir ekki Vissir þú að C-vítamín eykur brennsluna til muna Vissir þú að C-vítamín inniheldur andoxunarefni sem hjálpa til við að halda frumunum heilbrigðum www.madurlifandi.is Borgartúni 24 105 Reykjavík Sími: 585 8700 Hæðarsmára 6 201 Kópavogur Sími: 585 8710 Hafnarborg 220 Hafnarfirði Sími: 585 8720 ÞAÐ ER GOTT AÐ TAKA C-VÍTAMÍN

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.