Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.02.2011, Qupperneq 43

Fréttatíminn - 18.02.2011, Qupperneq 43
dægurmál 43Helgin 18.-20. febrúar 2011 Grossstadtsafari eftir Jo StrömgrenHeilabrot eftir Brian Gerke og Steinunni Ketilsdóttir White for Decay eftir Sigríði Soffíu Nielsdóttur Sýnt í Borgarleikhúsinu aðeins sex sýningar04/04 05/04 06/06 09/04 11/04 12/04 Miðasala í síma 568 8000 eða www.id.is 2.900 kr miðinn - til sun. 20. febrúar Fullt verð er 3.900 kr Forsölutilboð Íslenski dansflokkurinn frumsýning 4. mars H vað í ósköpunum eigum við að borða þegar alls kyns sérfræð-ingar segja okkur hitt og þetta um næringu og upplýsingarnar stang- ast allar á?“ Þessari umfangsmiklu spurningu ætlar hópur sérfræðinga úr ólíkum áttum að leitast við að svara á heilsuráðstefnu sem haldin verður á Hótel Sögu á laugardag og sunnudag frá kl. 8.30 til 17. Breski næringarfræðingurinn Kyle Vialli verður sérstakur gestur ráð- stefnunnar og tekst á við spurninguna í erindi sínu. Kyle er vinsæll fyrir- lesari í Bretlandi og talinn til helstu heilsugúrúa Evrópu. Meðal þess sem verður til umræðu um helgina er mataróþol, líkamlegt og andlegt heilbrigði og hvernig halda megi heilsu með réttu mataræði og hreyfingu, en margir fyrirlesara vilja meina að réttur, hollur og næringar- ríkur matur geri oftar en ekki sama gagn og lyf. Edda Björgvinsdóttir leikkona stýrir ráðstefnunni þar sem bæði verður boð- ið upp á fyrirlestra og orðið gefið laust. Boðið verður upp á skemmtilega hreyf- ingu og skemmtiatriði báða dagana með þeim Yesmine Olsson dansara, Önnu Claessen Zumba fitness-kennara og fleirum. Fjöldi fólks lætur til sín taka á ráð- stefnunni á einn eða annan hátt og má þar á meðal nefna Heiðar Jónsson snyrti, Auði Ingibjörgu Konráðsdóttur heilsukokk, Ástu Valdimarsdóttur hláturjógakennara og Kristbjörgu Kristmundsdóttur blómadropasér- fræðing. Heilsugúrú svarar erfiðri spurningu Kyle Vialli er eftirsóttur fyrir- lesari um næringarfræði. Fjölgun í fjölskyld- unni Sin City-leikkonan Jessica Alba kom tilkynnti gegnum facebook- síðu sína á miðvikudaginn að hún ætti von á sínu öðru barni: „Það er langt síðan ég hef verið á facebook en fannst tilvalið að stoppa við og færa ykkur spennandi fréttir. Honor er að verða stórasystir!“ Jessica og Cash Warren hafa verið gift í tæp þrjú ár og eiga eitt barn fyrir, Ho- nor, sem fæddist í júní 2008. Þau eru sögð vera í skýjunum yfir fjölg- uninni í fjölskyldunni. Þó biður Jes- sica fjölmiðla vinsamlega að virða einkalíf sitt á meðan á meðgöng- unni stendur. Billy Cyrus rýfur þögnina „Frægðin er eins og rússíbani“ var haft eftir Billy Ray Cyrus í nýjasta tölublaði GQ. Hann hefur loksins rofið þögnina um hegðun dóttur sinnar, barnastjörn- unnar Miley Cyrus. Hegðun Mileyar er ekki í samræmi við aldur hennar og er langt fyrir neðan allar hellur. Hún er aðeins átján ára, ískyggilega drykkfelld og óvenjumikið partístand vekur for- eldrunum óhug. Fjölmiðlar vestanhafs segja að hún sé næsta Lindsay Lohan; ung og saklaus Disney-stjarna sem hægt og rólega leiðist út í ruglið. Billy kennir Disney um vandamál hennar og segir að þátturinn Hannah Montana hafi eyðilagt fjölskylduna. ,,Ef ég gæti farið aftur í tímann myndi ég gera það,“ segir hann í viðtalinu.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.