Fréttatíminn - 18.02.2011, Qupperneq 46
46 bíó Helgin 18.-20. febrúar 2011
R yan Gosling (Lars and the Real Girl) og Michelle Williams
(Brokeback Mountain, Shut-
ter Island) fara með aðal-
hlutverkin í Blue Valentine.
Williams er tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna fyrir leik sinn
í myndinni sem greinir frá
hnignun sambands hjónanna
Deans og Cindyar. Myndin
flakkar á milli mismunandi
tímaskeiða í sambandinu;
upphafsins þar sem ham-
ingjan ræður ríkjum og svo
núsins þar sem sambandið
hangir á bláþræði.
Hann vinnur fyrir sér sem
málari en hún er hjúkrunar-
fræðingur á heilsugæslu-
stöð og þau hafa fjarlægst
hvort annað þegar kemur að
áherslum og væntinga til lífs-
ins. Vandamálapakkar sem
þau burðast með úr æsku
og fortíð gera þeim sérlega
erfitt fyrir í baráttunni við að
halda sambandinu gangandi.
Breska myndin I Know
Where I’m Going frá árinu
1945 verður sýnd yf ir
helgina. Hún er full af lát-
lausri kímni, ómótstæði-
legum sjarma, hjátrú, göml-
um sögnum og hæfilegum
skammti af rómantík þar
sem helstu persónur, sam-
félagið og umhverfið renna
saman í unaðslega heild.
Joan Webster (Wendy
Hiller) hefur verið staðráð-
in í að ná langt í lífinu síðan
í æsku og I Know Where I’m
Going hefst á því að hún til-
kynnir föður sínum að hún
sé að fara að giftast auð-
jöfrinum Robert Bellinger.
Sá heldur til á Kiloran-eyju
sem er hluti af Suðureyjum
undan strönd Skotlands.
Hún heldur síðan á vit síns
verðandi eiginmanns en
verður strandaglópur á
leiðinni vegna veðurs á eyj-
unni Mull. Þar kynnist hún
ævintýramanninum Torquil
McNeil (Roger Livesey) og
málin taka heldur betur að
vandast.
Hin sígilda kvikmynd
Bronenosets Potyomkin
(Beitiskipið Potemkin) frá
árinu 1925 er fulltrúi þöglu
myndanna að þessu sinni.
Í myndinni segir Sergei
Eisenstein frá hinni mis-
heppnuðu uppreisn í Odessa
árið 1905. Myndin var gerð
til að minnast þess að tutt-
ugu ár voru þá liðin frá þess-
um dramatíska atburði, sem
var á vissan hátt tilhlaup að
byltingunni 1917.
Hún beinir aðallega sjón-
um að uppreisn um borð í
einu herskipa keisarans.
Þetta er ekki saga einstakra
persóna, heldur rammpóli-
tísk áróðursmynd um bar-
áttu gegn kúgun og órétt-
læti, gerð til að sýna styrk
kommúnismans. Fólkið er
fyrst og fremst táknmyndir
og myndmálið flytur skýr og
markviss skilaboð þar sem
samsetningin er hugsuð til
að sannfæra áhorfandann
um tiltekin viðhorf. Þess má
til gamans geta að Brian De
Palma fékk atriði úr mynd-
inni „lánað“ í The Untoucha-
bles þar sem barnavagn rann
stjórnlaust niður tröppur á
brautarstöð í miðjum skot-
bardaga Elliotts Ness og fé-
laga við kóna Als Capone. Illu
heilli er hins vegar enginn
Kevin Costner í Odessa til
þess að tryggja góðan endi.
Oddný Sen kvikmynda-
fræðingur flytur stutt erindi
á undan sýningu myndarinn-
ar 24. febrúar.
Myndirnar Another Year
(Annað ár), Io sono l’am-
ore (Ástarfuni) og Micmacs
(Uppátæki) halda áfram í
sýningum í Paradísinni við
Hverfisgötu.
bíó PaRadís GamlaR oG nýjaR GeRsemaR í bland
bíódómuR anotheR YeaR
fRumsýndaR
Beitiskipið Potemkin
og samband í molum
Bíó Paradís gefur ekkert eftir í því göfuga hugsjónastarfi að bera á borð bíómyndir sem eiga á
hættu að drukkna í froðuflóðinu annars staðar, sem og gamlar perlur sem vart þykir arðbært að
setja í almennar sýningar. Beitiskipið Potemkin eftir Eisenstein og Blue Valentine verða teknar á
dagskrá á föstudag en þar fyrir utan halda sýningar áfram á fínirísmyndum frá síðustu viku.
h jónin Tom (Jim Broadbent) og Gerry (Ruth Sheen) njóta efri áranna á huggulegu heim-
ili sínu í London, sátt við sjálf sig og lífið þar sem
segja má að hápunktarnir séu að stússast í garð-
inum og þegar einhleypur sonur þeirra kemur
í heimsókn. Hjónin eru heldur ekkert að sækj-
ast eftir meira kryddi í tilveruna. Þau hafa hvort
annað og það dugir þeim vel.
Another Year segir, eins og titillinn gefur til
kynna, frá einu ári í lífi Toms og Gerry þar sem
alls konar fólk kemur við sögu. Þessar persónur
dúkka upp og hverfa á braut og eiga það helst
sameiginlegt að glíma við alls konar vandræði
og sálarkreppur, ólíkt hinum æðrulausu hjónum
sem þær hverfast um.
Mike Leigh er mikill meistari þegar kemur
að því að segja látlausar sögur með góðum leik-
urum og áherslu á smáatriði og hér njóta þessir
hæfileikar sín til fullnustu. Another Year er hæg
og yfirveguð mynd þar sem manni finnst eigin-
lega ekkert gerast en samt er hellingur í gangi
og áreynslulaust heldur myndin manni hug-
föngnum. Ekki síst þar sem þessi frásagnarmáti
Leighs leggur það á áhorfandann að hann leggi
eitthvað af sjálfum sér í púkkið til þess að njóta
snilldarinnar í botn.
Jim Broadbent er frábær leikari, jafnvígur á
drama og grín, og hefur alltaf notalega nærveru
á tjaldinu og saman eru þau Ruth Sheen yndisleg
í hlutverkum hjónanna. Leslie Manville er svo
hreint út sagt frábær í hlutverki harmrænustu
persónu myndarinnar, Mary vinkonu hjónanna.
Hún er einhleyp að renna af léttasta skeiði og
rígheldur í dofnandi æskuljómann álíka fast og
flöskuna. Hún er í grunninn ósköp dæmigerð
persóna en í meðförum leikkonunnar tútnar hún
út og fær ótrúlega dýpt.
Another Year er frábær mynd sem lætur lítið
fyrir sér fara en það væri synd að missa af henni.
Þórarinn Þórarinsson
Seiðandi látleysi
127 skelfilegar klukkustundir
Í 127 Hours segir leikstjórinn Danny Boyle á áhrifaríkan hátt frá hremm-
ingum fjallgöngumanns sem lendir í sjálfheldu í eyðimörk í Utah. Myndin
byggist á sannsögulegum atburðum sem áttu sér stað árið 2003 þegar
grjóthnullungur féll á fjallgöngumanninn Aron Ral-
ston sem sat pikkfastur í klettum Utah í nær fimm
daga með bjargið ofan á öðrum handleggnum. Að
lokum gat hann ekki annað gert en skera af sér
handlegginn til þess að losna og eftir þá aðgerð
tók við löng ganga áður en hann komst undir
manna hendur.
Gagnrýnendur hafa tekið 127 Hours fagnandi og
ausið hana lofi og þykir flestum mest til leiks James Franco í aðalhlut-
verkinu koma auk þess sem Boyle er sagður sýna allar sínar bestu hliðar
sem leikstjóri. Franco er einna þekktastur sem vinur og andstæðingur
Kóngulóarmannsins í Spiderman-myndunum þremur auk þess sem hann
fór á kostum sem hasshaus í Pinapple Express á móti Seth Rogen.
127 Hours er tilnefnd til sex Óskarsverðlauna, þar á meðal sem besta
myndin, fyrir klippingu og Franco þykir sigurstranglegur í aðalhlut-
verkinu.
Aðrir miðlar: Imdb 8,1, Rotten Tomatoes 93%, Metacritic 82/100
Big Mommas: Like
Father, Like Son
Martin Lawrence hlýtur að fá
mikið út úr því að bregða sér í
hlutverk hinnar sílspikuðu Big
Momma þar sem hann mætir
nú til leiks í þriðja sinn í hlut-
verki FBI-mannsins Malcolms
Turner sem dulbýr sig jafnan
sem þéttvaxin frú þegar hann
siglir undir fölsku flaggi innan
um glæpahyski. Að þessu sinni
er hann með 17 ára stjúpson
sinn með í för og sá dulbýr
sig sem stúlku. Þeir skrá sig í
listaháskóla fyrir stelpur eftir
að unglingurinn verður vitni að
morði og þurfa að hafa hendur
í hári morðingjans áður en þeir
verða sjálfir/ar fórnarlömb.
I Am Number Four
Alex Pettyfer leikur John Smith.
Hann þykist vera venjulegur
menntaskólanemi og flytur oft
á milli staða til þess að fela þá
staðreynd að hann er gæddur
yfirnáttúrulegum
kröftum. Hann er
ekki einn í heim-
inum og er númer
fjögur í sínum hópi.
Þegar aðrir af hans
sauðahúsi fara að
tína tölunni er ljóst
að vondir menn vilja koma honum
fyrir kattarnef. Uppgjör er því yfir-
vofandi en það er ekki til að einfalda
málin að John er orðinn ástfanginn.
Michael Bay og Steven Spielberg
eru báðir í hópi framleiðenda
myndarinnar. Bay er þekktastur
fyrir leikstjórn á spennumyndum
fyrir Jerry Bruckheimer og hér
blandast einmitt saman hasar og
vísindaskáldskapur en Spielberg
er öllum hnútum kunnugur í þeirri
deild.
Skeifunni 11 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Stærðir
40-60.
Flott föt fyrir
flottar konur,
50%
AUKA- AF
SLÁTTUR
af útsöluv
örum
(reiknast
við kassa
)
Níunda herdeildin
The Eagle, nýjasta mynd Kevin
Macdonald (The Last King of Scotland,
State of Play), kemur í bíó á föstudag.
Myndin gerist á Bretlandi árið 140 eftir
Krist þar sem
Rómverjar ráða
ríkjum. Tuttugu
árum eftir að öll
níunda herdeild
Rómakeisara hvarf sporlaust í skoskum
fjöllum kemur ungur hundraðshöfðingi
til landsins til þess að rannsaka hvarfið
og bjarga um leið orðstír föður síns sem
leiddi herdeildina. Channing Tatum,
Jamie Bell og Donald Sutherland eru í
helstu hlutverkum.
Aðrir miðlar: Imdb 6,4, Rotten
Tomatoes 36%, Metacritic 56/100.
James
Franco ber
myndina
uppi og er
nánast einn
á tjaldinu
allan
tímann.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Barnavagninn á fleygiferð í miðju blóðbaði í Beitiskipinu Potemkin.
Fallegt samband
Deans og Cindyar
rennur út í sand-
inn eins og svo oft
vill verða.
Ruth Sheen og Jim Broadbent eru dásamleg í hlut-
verkum hjónanna sem hafa klofað alla helstu skafla á
lífsleiðinni og una sátt við sitt.