Fréttatíminn - 18.02.2011, Side 50
50 dægurmál Helgin 18.-20. febrúar 2011
Björn ætti að
leika miklu
oftar en
hann gerir
því hann er
alveg með
þetta.
aðra leiðina + 990 kr. 14. – 28. febrúar 2011
(flugvallarskattur)
Þetta einstaka tilboðsfargjald
gildir til allra áfangastaða Flugfélags Íslands innanlands
er fyrir börn, 2 –11 ára, í fylgd með fullorðnum og í sömu bókun
býðst eingöngu þegar bókað er á netinu, www.flugfelag.is
ferðatímabil 14. – 28. febrúar 2011
1 króna fyrir barnið
www.flugfelag.is | 570 3030
ÍS
L
E
N
SK
A
S
IA
.I
S
F
LU
5
35
88
0
2.
20
11
Alls konar
skemmtilegt rugl
Björn Jörundur,
í hlutverki Bing-
ólfs Bjarnar,
stjórnaði bingói.
M eðlimi Nýdönsk hafði lengi langað til að brjóta upp hefðbundið starf hljómsveit-arinnar. Þeir láta um þessar mundir
verða af því með góðra manna hjálp í Litla
salnum í Borgarleikhúsinu. Í nánd er tvískipt
uppákoma; fyrir hlé býður hljómsveitin
upp á alls konar
skemmtilegt rugl
í búningum.
Eftir hlé eru Ný-
dönsk-tónleikar
sem brotnir
eru upp með
löngum og
skemmti-
legum bransasögum.
Eins og sést á ferli Stuðmanna
gengur það ekki alltaf upp þegar
hljómsveitir vilja vera fyndnar. Í
byrjun sýningar Nýdönsk var ég
satt að segja dauðhræddur um að
þetta væri algjörlega misheppnað
sjó; að bandið væri að rústa orðspor
sitt. Sú tilfinning gekk fljótt yfir
því Nýdönsk komst á hvínandi flug í
hverju frábæra atriðinu á eftir öðru.
Þeir skemmtu í gervi dansandi stráka-
bands, tóku organdi fyndinn vinkil á
Idol-ruglið og Björn Jörundur tróð
upp í gervi dauðadrukkins bingóstjórn-
anda. Björn ætti að leika miklu oftar en
hann gerir því hann er alveg með þetta.
Húmorinn í sýningunni er græskulaus
og einföld leikhús-trikk notuð til að magna
áhrif. Þetta er mjög skemmtileg sýning; sum
atriði þó aðeins of löng.
Tónleikahlutinn eftir hlé var frábær. Bandið
á fullt af toppklassa popplögum í fórum sínum og
tók þau flest auk „albúm-trakka“. Áratuga samvinna
skilaði vitanlega smurðri keyrslu í fínu sándi og góðum
fílingi. Allar hljómsveitir eiga sögur frá ferlinum og gest-
ir voru mataðir af vel krydduðum bransasögum Nýdönsk.
Það var mjög fyndið og hressandi.
Nýdönsk í nánd er algjörlega málið fyrir unnendur
Nýdönsk og þá sem hafa almennt gaman af snjallri popp-
tónlist og því að hlæja. Mjög vel heppnuð nánd. Dr. Gunni
Nýdönsk í nánd
Eftir Nýdönsk
Leikstjóri: Gunnar Helgason
Borgarleikhúsið
leikdóMur NýdöNsk í NáNd
e ggert Pétursson málari og Haukur Tómasson
tónskáld tefla saman verkum
sínum með sérstakri sýningu á
Listasafni Íslands um helgina.
Sýningin byggist á myndheimi
Eggerts, sem er þekktastur fyrir
gríðarlega nákvæmar myndir af
jurtum, og hljóðheimi Hauks,
sem á dögunum vann samkeppni
um nýtt tónverk til flutnings á
opnunarhátíð Hörpu í vor.
Verk þeirra félaga kalla þeir
Moldarljós. Á laugardeginum kl.
14 og 15 ætlar tónlistarhópur-
inn CAPUT að flytja samnefnt
tónverk undir stjórn Guðna
Franzsonar en á sunnudeginum
kl. 14 verður lista-
manna-
spjall í fylgd Eggerts Pétursson-
ar um sýninguna, sem stendur
aðeins þessa helgi
listasafN íslaNds eggert, Haukur og Caput
Olía og tónar aðeins
þessa helgi
Hluti af verki Eggerts Péturs-
sonar, Moldarljós I, frá 2010.
B jarni Thor Kristinsson bassi og Ástríður Alda
Sigurðardóttir píanóleikari
flytja Vetrarferðina eftir Franz
Schubert í Salnum í Kópavogi
á morgun, laugardag, kl 17.
Schubert samdi Vetrarferð-
ina við ljóðaflokk Wilhelms
Müller sem fjallar um ungan
mann, óendurgoldna ást hans
og örlagaríka vetrarferð hans.
Stærð og umfang Vetrarferð-
arinnar er sagt slíkt að það
jafnist á við nokkur óperu-
hlutverk í flutningi og að sögn
Aino Freyju Järvelä, for-
stöðumanns Salarins, er ekki
úr vegi að líkja glímu söngvar-
ans við verkið við átök leikara
við hlutverk Hamlets.
Hún segir Suðurnesja-
manninn Bjarna Þór mikinn
happafeng fyrir Salinn á
þessum Tíbrár-tónleikum en
hann ferðast um allan heim
um þessar mundir og mun
meðal annars syngja í Sevilla,
Berlín, Tókýó og víðar á
næstunni.
Bjarni hefur frá árinu
1996 sungið ýmis hlutverk
í óperum um allan heim.
Bjarni hlaut Grímuna árið
2006 fyrir hlutverkið Osmin í
Schubert í Salnum Bjarni Thor og Ástríður Alda.
Brottnáminu úr kvennabúrinu
í uppsetningu Íslensku óper-
unnar. Ástríður hefur komið
fram sem einleikari með Inter-
nationales Jugendsinfonie-orc-
hester Elbe-Weser í Þýskalandi,
með Sinfóníuhljómsveit Íslands
og Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna. Ástríður er meðlimur
í kammerhópnum Electra
Ensemble og tangósveit-
inni Fimm í tangó sem
sérhæfir sig í finnskri
tangótónlist.
Dramatískur
hádegissöngur
Hinir söngelsku geta strax tekið
frá hádegið á þriðjudaginn í næstu
viku, 22. febrúar. Þá verður talið í
dramatíska dagskrá í Íslensku óper-
unni þegar ungir einsöngvarar
ætla að syngja aríur og samsöngva
úr óperum eftir Verdi, Mascagni,
Puccini og Bizet , þar á meðal
Blómaaríuna úr Carmen og Un di
felice úr La traviata.
Auk ungu söngvaranna ætlar
stórtenórinn Jóhann Friðgeir
Valdimarsson að þenja raddbönd-
in, en hann er sérstakur heiðurs-
gestur tónleikanna. Jóhann Friðgeir
hefur sungið mörg stór hlutverk við
Íslensku óperuna á undanförnum
árum, m.a. Hertogann í Rigoletto,
Turiddu í Cavalleria Rusticana, Can-
io í Pagliacci og Alfredo í La traviata.
Aðrir flytjendur eru: Egill Árni
Pálsson (tenór), Gréta Hergils
Valdimarsdóttir (sópran), Hörn
Hrafnsdóttir (mezzó-sópran),
Jóhanna Héðinsdóttir (mezzó-
sópran), Magnús Guðmundsson
(baritón) og Antonía Hevesi sem
leikur á píanóið.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 og
geta gestir keypt léttar veitingar
í anddyri Íslensku óperunnar
fyrir og eftir þá.
óperaN
Jóhann Friðgeir stórtenór.