Fréttatíminn - 25.03.2011, Blaðsíða 6
GOLF
KORT
IÐ VEI
TIR
40% A
FSLÁT
T
AF GO
LFVÖ
LLUM
UMHV
ERFIS
ÍSLAN
D
AUK A
NNAR
RA GL
ÆSILE
GRA F
RÍÐIN
DA
GOLF
KORT
IÐ FY
LGIR M
EÐ ÁR
SÁSK
RIFT
TRYG
GÐU Þ
ÉR ÁS
KRIFT
Í SÍM
A 595
6000
EÐA Á
SKJA
RGOL
F.IS
FÖSTUDAG KL. 19:00 – 22:00
LAUGARDAG KL. 16:30 – 22:00
SUNNUDAG KL. 16:30 – 22:00
ARNOLD PALMER INVITATIONAL
Í BEINNI UM HELGINA:
- TIGER WOODS
„ÞEGAR SVEIFLAN ER
KOMIN Í LAG, VERÐ ÉG
BESTUR Í HEIMI“
Þegar best lét
í febrúar 2008
voru 5.500
manns starf-
andi í bönkum
og sparisjóðum
en núna eru
þeir 4.100.
É g skil ekki hvern-ig þetta ágæta fólk í Bankasýsl-
unni fær út þær tölur að
starfsmenn í bönkum
og sparisjóðum hafi
verið 7.900 þegar best
lét. Það eru aðrar tölur
en ég hef og er ég þó
með 99 prósent af
öllum starfsmönnum
banka og sparisjóða
innan samtakanna.
Þegar best lét í febrúar
2008 voru 5.500 manns
starfandi í bönkum og
sparisjóðum en núna
eru þeir 4.100. Það
segir sig sjálft að þetta
er hressilegur niður-
skurður og ég held að
það sé búið að skera
burt alla fitu í banka-
kerfinu,“ segir Friðbert
Traustason, formaður
Samtaka starfsmanna
fjármálafyrirtækja, um
þær efasemdir sem Bankasýsla ríkisins hefur
sett fram um að starfsmönnum bankanna hafi
fækkað nægilega eftir hrun í takt við minnk-
andi efnahagsreikning bankanna.
„Ef þetta er ekki nóg þá er starfsmönnum
enn að fækka. Eftir að SP Kef rann inn í Lands-
bankann er ljóst að fólki mun fækka þar, sem
og væntanlega í Byr. Síðan mega menn ekki
gleyma því að 70 prósent af okkar félagsmönn-
um eru konur. Ef menn vilja til að mynda fara
að leggja niður fleiri útibú þá eru 95 prósent
af öllum starfsmönnum þeirra konur. Og það
er nú ekki beint í anda ríkisstjórnarinnar að
fjölga atvinnulausum konum,“ segir Friðbert.
Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkis-
ins, sagði í Fréttatímanum í síðustu viku að
Bankasýslan myndi beita sér fyrir því að setja
fram raunhæf rekstrarmarkmið í þeim bönk-
um sem hún fer með meirihluta í. Það væri
síðan undir stjórnendum komið að ná þeim.
Friðbert segir að eðlilegt sé að skoða sam-
bærilegar tölur frá árinu 2003. „Þá starfaði
svipaður fjöldi og nú í bönkum og sparisjóðum.
Samt eru bankarnir stærri í dag en þá,“ segir
Friðbert sem hefur sent starfsmönnum Banka-
sýslunnar bréf þar sem hann leitast við að fá
á hreint þann fjölda sem þeir miða við. „Þær
eru kolrangar og annaðhvort eru menn með
rangar tölur eða þeir eru vísvitandi að fara
með rangfærslur til að geta hent skít í bankana
og þá sem vinna þar,“ segir Friðbert.
oskar@frettatiminn.is
bankar StarfSmannafjöldi
Sami fjöldi
og fyrir einka-
væðingu
Formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja
blæs á þau orð að bankastarfsmönnum hafi ekki
fækkað nægilega mikið eftir hrun.
Friðbert Traustasyni,
formaður Samtaka
starfsmanna fjármála-
fyrirtækja, finnst nóg
komið af uppsögnum
bankamanna.
Skilanefndir StarfSmannafjöldi
174 starfa í skilanefndum
Hefur fjölgað um þrjá frá 2010.
Alls starfa 174 hjá fjórum skilanefndum
samkvæmt tölum frá Samtökum starfs-
manna fjármálafyrirtækja sem Fréttatíminn
hefur undir höndum. Skilanefnd Lands-
bankans er stærst en þar er 61 starfs-
maður. Hjá skilanefnd Kaupþings starfar 41
starfsmaður og 36 hjá skilanefnd Glitnis og
Dróma, sem er skilanefnd SPRON. Starfs-
mönnum skilanefndanna hefur samtals
fjölgað um þrjá frá árinu 2010. Starfsmönn-
um skilanefndar Glitnis fjölgaði um þrjá,
starfsmönnum skilanefndar Landsbankans
fjölgaði um tvo en starfsmönnum Dróma
fækkaði um tvo. -óhþ
Árni Tómasson, formaður
skilanefndar Glitnis, fjölgaði um
þrjá í sínum ranni á síðasta ári.
Lj
ós
m
yn
d/
Te
it
ur
.
Helgin 25.-27. mars 2011