Fréttatíminn - 25.03.2011, Blaðsíða 42
10 íshokkí Helgin 25.-27. mars 2011
Gylfaflöt 5 I 112 Reykjavík I Sími 533 1600 I aseta@aseta.is
Aseta styður
við íshokkí
íþróttina
Í slenskar íshokkístelpur hafa verið á mikilli siglingu undanfarin ár. Íslenska kvennalandsliðið er ríkjandi heims-
meistarar í 4. deild heimsmeistaramótsins
en stelpurnar okkar hefja einmitt titilvörn á
heimavelli nú á sunnudag. Þetta er í fyrsta
skipti sem Heimsmeistaramót kvenna er
haldið hér á landi og þetta er í fjórða skiptið
sem Ísland teflir fram liði á mótinu. Mótið fer
fram í Skautahöllinni í Laugardal og stendur
frá 27. mars til 2. apríl. Mótherjar Íslands eru
S-Kórea, S-Afríka, Nýja-Sjáland og Rúmenía.
Eistland átti einnig að mæta til leiks en dró
sig úr keppni í haust. Ísland hefur lagt allar
þessar þjóðir að velli nema Suður-Kóreu.
Fjögur lið börðust um Íslandsmeistara-
titilinn í kvennahokkíinu í vetur. Skautafélag
Akureyrar stóð uppi sem sigurvegari eftir úr-
slitarimmu við lið Bjarnarins í Reykjavík.
Margrét Ólafsdóttir, stjórnarkona í Ís-
hokkísambandi Íslands og formaður kvenna-
nefndar sambandsins, segir að það hafi verið
söguleg stund þegar sýnt var beint á sjón-
varpsstöðinni N4 frá lokaleik úrslitaseríunn-
ar en á sjálfan leikinn mættu um 240 áhorf-
endur, sem var met. Að sögn Margrétar hefur
verið mikill uppgangur í kvennahokkíinu
síðustu fimm ár. Í fyrrahaust fjölgaði liðum
í fjögur eftir að hafa verið tvö árin á undan.
Þar með voru kvennaliðin orðin jafnmörg og
karlaliðin í hokkíinu. „Það eru bjartir tímar
fram undan hjá stelpunum,“ segir Margrét.
„Margar ungar og mjög flinkar stelpur eru
á leið upp í meistaraflokk hjá félögunum. Við
vorum mjög ánægð hjá Íshokkísambandinu
þegar náðist að tefla fram fjórum liðum bæði í
karla- og kvennadeild.“ Það eina sem stendur
í veginum fyrir frekari framþróun er skortur
á skautasvellum.
Síðasta Heimsmeistaramót var haldið í
Rúmeníu en þá kom íslenska liðið verulega á
óvart og vann alla leiki sína á mótinu. Lagði
það meðal annars þjóðir sem það hafði tapað
stórt fyrir áður. Töluverð endurnýjun hefur
orðið í leikmannahópnum síðan í síðustu
keppni en alls eru sjö nýliðar í liðnu sem
mætir til leiks í þetta skiptið. Liðið telur 20
leikmenn, 18 útispilara og 2 markmenn en
þjálfarar eru Sarah Smiley og Helgi Páll
Þórisson.
Stelpurnar í landsliðinu eru klárar í slaginn
og Margrét hvetur alla til að koma og standa
með þeim, þetta sé frábært tækifæri til að
kynnast þessari skemmtilegu íþrótt.
Kynning ÍshoKKÍ hjá Birninum
Ætlum að verja titilinn
Kynning KvennahoKKÍið á fleygiferð
Margrét Ólafsdóttir, stjórnarkona í Íshokkísambandi
Íslands og formaður kvennanefndar sambandsins.
Íshokkísambandið stendur fyrir sér-
stökum stelpuhokkídögum einu sinni
til tvisvar á vetri, bæði í Reykjavík og
á Akureyri, til kynningar á íþróttinni.
Um aðra helgi, laugardaginn 2. apríl,
er komið að höfuðborginni, en þá
verður stelpuhokkídagur í Skautahöll-
inni í Laugardal milli klukkan 14 og 16.
Frítt er fyrir stelpur en leikmenn úr
kvennalandsliðinu munu leiðabeina
þátttakendum og má bóka að mikið
fjör verði á svellinu.
Stelpuhokkídagar eru skipulagðir af
kvennanefnd Íshokkísambandsins í
samvinnu við félögin á hverjum stað.
v ið vorum sterkar síðast og erum enn betri núna,“ segir Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir, leikmaður
Bjarnarins og landsliðskona í íshokkí,
spurð hvernig Heimsmeistarmótið fram
undan leggist í hana. „Við erum á heima-
velli og ætlum að verja titilinn og fara upp
um deild, engin spurning.“
Steinunn Erla er framherji og einn af
lykilmönnum hjá sínu félagsliði og landslið-
inu en með því vann hún til gullverðlauna
á Heimsmeistaramótinu í Rúmeníu 2008.
Hún er framherji og var valin íshokkíkona
ársins 2009.
Steinunn hefur leikið fyrir Björninn und-
anfarin fjögur ár en hún er uppalin á Akur-
eyri og varð fimm sinnum Íslandsmeistari
með Skautafélagi Akureyrar áður en hún
flutti suður. Hún hefur líka leikið hokkí
utan Íslands; spilaði eitt sumar fyrir Sid-
ney Bears í Ástralíu og hálft tímabil með
danska liðinu Amager Jets í Danmörku.
Björninn lék til úrslita á Íslandsmótinu
í vetur en Skautafélag Akureyrar stóð þar
uppi sem sigurvegari.
Steinunn er aðstoðarþjálfari 5. flokks
Bjarnarins, en þar eru krakkar fæddir
1998, 1999 og 2000. Stelpur og strákar æfa
saman þar til þau verða tólf ára og Stein-
unn segir að hún sé með fimm hörkugóðar
stelpur í flokknum sínum.
Steinunn var markahæsti leikmaður Ís-
landsmótsins fyrir tveimur árum og ætlar
að sjálfsögðu að reyna að setja þau sem
flest á Heimsmeistaramótinu sem hefst um
helgina. Helgina þar á eftir verður hún svo
mætt á stelpuhokkídaginn í Skautahöll-
inni í Laugardal þar sem verða örugglega
komnar saman einhverjar af landsliðskon-
um Íslands í framtíðinni.
Björninn býður upp á æfingar fyrir unga
iðkendur á breiðu aldursbili – og auðvitað
eldri iðkendur líka. Það er aldrei of seint
að byrja. Nánari upplýsingar er að finna á
bjorninn.com
Erla Sigurgeirsdóttir, leikmaður Bjarnarins og landsliðskona í íshokkí.
Heimsmeistaramót í Laugardalnum
Stelpuhokkídagur 2. apríl
Íshokkílandsliðið eins
og það var skipað
árið 2010.