Fréttatíminn - 25.03.2011, Blaðsíða 62
46 fermingar Helgin 25.-27. mars 2011
Hárgreiðslan
heldur ýkt
Embla valdi kjólinn í samráði
við mömmu.
„Mér fannst ég ekki tilbúin að ákveða
hvort ég væri trúuð þegar ég var
fjórtán ára,“ segir Embla Vigfúsdóttir
vöruhönnuður sem fermdist borg-
aralega 1.apríl 2001. „Ferming er
alþjóðleg og stundum heldur fólk að
hún tengist aðeins kirkjunni. Þetta er
vígsla inn í fullorðinsárin.
Kjólinn sem ég klæddist valdi ég
í samráði við mömmu. Við fórum
í Kringluna og fundum vínrauðan
flauelskjól. Hárgreiðslan var heldur
ýkt og ég fór til hárgreiðslukonu sem
vandaði hana vel. Þetta var í lok þess
tíma sem fermingargreiðslur skiptu
öllu máli. Blóm, krullur og allur
pakkinn.
Efst á óskalistanum var utanlands-
ferð til Bandaríkjanna. Mamma og
pabbi uppfylltu þá ósk og ég fékk í
kjölfarið nóg af ferðadóti frá hinum
og þessum. Svo fékk maður að
sjálfsögðu mikið af skartgripum og
peningum. Ég var mjög sátt við þetta
allt saman.“
„Ég fermdist á svakalega fallegum hvítasunnu-
degi árið 1996 á Ísafirði. Það var glampandi sól
og við ákváðum strax eftir athöfnina að það
yrði garðveisla,“ segir Greipur Gíslason, verk-
efnisstjóri Hönnunarmars. Mamma hringdi í
alla gestina og bað þá að koma með garðhús-
gögn. Þetta var fjölmenn veisla sem heppnaðist
gríðarlega vel. Fermingarmyndirnar voru teknar
um kvöldið í kvöldsólinni þar sem fjölskyldan
kom saman. Það var búið að ákveða að fara ekki
til ljósmyndara vegna þess að maður er kannski
ekki alveg í blóma lífsins á þessu aldursskeiði.
Þessar fermingarmyndir þykir mér ægilega vænt
um enn þann dag í dag.
Fötin sem ég klæddist á fermingardaginn voru
gömul föt af pabba sem hann hafði keypt um
tvítugt. Þetta voru dökkfjólublá, teinótt föt, ótrú-
lega flott en var aðeins breytt í takt við tískuna
fyrir fermingardaginn. Eftir athöfnina notaði ég
þau oft, hvort sem það var saman eða sitt í hvoru
lagi. Frábær fatnaður.
Ég hafði ekki óskað mér neins sérstaks í ferm-
ingargjöf en fékk útilegudót, mikið af peningum
og fallegar bækur. Það er ein bók sem ég held
sérstaklega upp á. Það er matreiðslubók eftir
Helgu Sigurðardóttur og mér þykir svakalega
vænt um hana í dag þó að ég mæti hana kannski
ekki alveg á fermingardaginn. Peningana sem
ég fékk lagði ég til hliðar og notaði ekki fyrr en
löngu síðar þegar ég stofnaði mitt fyrsta fyrir-
tæki ásamt vini mínum. Fyrirtækið stendur enn
þann dag í dag, en liggur þó aðeins í dvala um
þessar mundir.“ -kp
Fötin voru gömul af pabba
Gestirnir komu með stólana með sér í garðveislu Greips Gíslasonar.
Fallegar
gjafaumbúðir
Hentar öllum
Gildir hvar sem er
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Gjafakortið sem
gildir alls staðar
Þú velur upphæðina en viðtakandinn velur gjöfina.
Fermingahringir
frá kr. 7000.-