Fréttatíminn - 25.03.2011, Síða 22
A
ð greinast með krabbamein er
áfall. Það er krísa. Það er eðlilegt
að bregðast við krabbameins-
greiningu á þann hátt. Sumir virð-
ast ekki kippa sér upp við grein-
ingu og sennilega er það ekki í
lagi. Það fólk horfir blindum augum á staðreyndir
því það er alvarlegt að greinast með krabbamein.
Sjúkdómurinn fer vaxandi en góðu fréttirnar eru
þær að gríðarleg framþróun hefur orðið í krabba-
meinsmeðferðum. Nú læknast um helmingur
þeirra sem greinast.“
Snorri lærði krabbameinslækningar á Karól-
ínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og fór síðar í
geðlækningar. Nú sinnir hann almennum geðlækn-
ingum en flestir sem leita til hans glíma einnig við
krabbamein. Fyrir fjórum árum greindist hann
svo sjálfur með krabbamein í blöðruhálskirtli.
Hvaða áhrif hafði greiningin á þig?
„Ég verð að játa að mér var brugðið þegar
raunveruleikinn blasti við mér. Ég var undir miklu
vinnuálagi á þessum tíma og þurfti að breyta bók-
unum sjúklinga minna til að komast sjálfur í allar
rannsóknir sem læknirinn minn taldi nauðsyn-
legar. Ég var þarna tættur og áhyggjufullur og
tók sjúkdómsgreiningunni verr en ég hafði sjálfur
átt von á. Það hjálpaði mér nákvæmlega ekkert
á þessum tímapunkti að hafa lært krabbameins-
lækningar og síðar geðlækningar. Ég reyndi að
gera mér grein fyrir líðan minni. Ég gat rökstutt
fyrir sjálfum mér að ég væri ekki þunglyndur. En
eitthvað var að! Rökrétt fannst mér ég vera eðlilega
kvíðinn miðað við aðstæður svo að ekki var það
málið. Nokkrum vikum eftir sjúkdómsgreininguna
rann það upp fyrir mér hvað að mér gekk. Ég var
í sorg. Ég var að syrgja Snorra Ingimarsson sem
heilbrigðan mann og mér létti óumræðilega þegar
ég gerði mér grein fyrir því hvað að mér gekk and-
lega. Ég vissi að ég þurfti minn tíma til að syrgja
eins og allir aðrir.“
Snorri segir að stundum sé erfitt að meta and-
legt ástand fólks í krabbameinsmeðferðum.
„Algengustu geðraskanir sem krabbameinssjúk-
þola og komast í gegnum krabbameinsmeðferð af
fullum þunga. Þó er ekki algengt að fólk hætti í
krabbameinsmeðferð en stundum þarf að draga úr
meðferðinni. Það er engin heilsa án geðheilsu og
ef við horfum á þetta raunsætt þá er þunglyndur
eða kvíðinn krabbameinssjúklingur líklegri til að
þurfa að leita oftar til sjúkrahússins en ella eins og
rannsóknir hafa sýnt fram á. Slæmt andlegt ástand
veldur því að innlagnir verða tíðari og dvalartími
lengri.“
Algengt er að sjúklingurinn dragi sig í hlé og
undan mannlegum samskiptum. Félagslega um-
hverfið á það til að sýna yfirdrifna nærgætni þann-
ig að sjúklingurinn einangrast. Einsemd er jafn
hættuleg heilsunni og reykingar eða hækkuð blóð-
fita. Við sjáum með ýmsum hætti hvað félagslegi
þátturinn skiptir miklu máli. Rannsóknir sýna til
dæmis að giftir krabbameinssjúklingar lifa lengur
en einstæðir krabbameinssjúklingar. Það er engin
tilviljun að það mótast samhjálparhópar krabba-
meinssjúklinga og aðstandenda. Fyrst og fremst
eru þeir til að hindra félagslega einangrun og
miðla gagnlegum upplýsingum. Það er alveg sama
hvað heilbrigðisstarfsfólkið er gott, það getur ekki
miðlað á sama hátt til sjúklingsins hvað það þýðir
í raun og veru að vera með krabbamein. Reynslu-
heimur krabbameinssjúklinga er því dýrmætur,“
segir Snorri og mælir hiklaust með því að fólk leiti
til slíkra samhjálparhópa. „Ég hvet fólk til að sinna
sínum félagslegu þörfum og sé tvímælalaust ávinn-
ing af samhjálparhópum meðal minna sjúklinga.
Sumir eru auðvitað einfarar og það breytist ekkert
við að greinast með krabbamein.
Ég reyni að skoða með fólki hvernig félagsleg
staða þess er og í sameiningu leitum við leiða til að
virkja þá sem ekki eru sterkir félagslega. Það þarf
að huga að svefnmynstri og sjá til þess að fá næga
hvíld. Virkni yfir daginn skiptir miklu máli og að
fólk hafi eitthvað fyrir stafni. Skynsamleg næring
er líka mikilvæg og hreyfing.“
Mælir þú með því að jafnvel mikið veikt fólk hreyfi
sig?
„Já, maður á aldrei að hætta að stuðla að betri
líðan og bættri heilsu. Allt okkar starf snýst um að
hámarka lífsgæði fólks, sama hvar það er í sjúk-
dómsferlinu.
Nú læknast fleiri en áður af krabbameini en þeir
sem ekki læknast lifa við sjúkdóminn miklu lengur
en áður. Fólk er kannski með virkan sjúkdóm í ára-
tugi. Það læknast ekki en lifir áfram. Þess vegna er
gríðarlega mikilvægt að vakað sé yfir heilsutengd-
um lífsgæðum þess.“
Snorri segist hafa þurft hjálp til að komast út
úr læknishlutverkinu þegar hann þurfti sjálfur að
berjast við krabbamein. „Ég fékk framúrskarandi
góða aðhlynningu á Landspítalanum. Ég var upp-
lýstur um allt sem í vændum var. Ég reyndi að
leggja á ráðin með lækninum mínum um að létta
áhyggjum af fjölskyldu minni og styrkja varnir
hennar. Hann tók mér afar vel en hjálpaði mér út
úr læknishlutverkinu og upplýsti fólkið mitt um
sjúkdóminn, fyrirhugaða meðferð og horfur á
lækningu. Það gerði hann frábærlega vel. Ég fékk
að vera það sem ég var – sjúklingur – og það var
einnig léttir.
Snorri segist hafa upplifað sjálfur mikilvægi
þess að ræða við aðra krabbameinssjúklinga. „Ég
hafði gríðarlega mikið gagn af því að tala við tvo
menn sem höfðu greinst með krabbamein í blöðru-
hálskirtli og höfðu reynslu að miðla mér. Annar
Ég tók sjúk-
dómsgreining-
unni verr en
ég hafði sjálfur
átt von á. Það
hjálpaði mér
nákvæmlega
ekkert á þess-
um tímapunkti
að hafa lært
krabbameins-
lækningar og
síðar geðlækn-
ingar.
lingar verða fyrir eru þunglyndi og kvíði. Innan um
alla flóru krabbameinseinkenna og krabbameins-
meðferðar er oft erfitt að greina þessar geðraskan-
ir. Manni þykir kannski eðlilegt að krabbameins-
sjúklingur sé þreyttur og niðurdreginn en áttar sig
ekki á því að bullandi þunglyndi er í uppsiglingu.
Staðan á Íslandi virðist svipuð og hjá nágranna-
þjóðum okkar en nýleg rannsókn á krabbameins-
sjúklingum við göngudeild Landspítalans sýndi að
um 25-50 prósent þeirra þarfnast aðstoðar vegna
geðrænna vandamála.“
Geðheilsa hefur áhrif á krabbameinið
Snorri segir að geðraskanir geti haft óbein áhrif
á sjálft krabbameinið. „Sjúklingur sem er kvíð-
inn eða þunglyndur er ekki eins líklegur til að
Magnús Guðmundsson
1.777.777 kr.
Magnús greindist með hvítblæði
í fyrrasumar og háði hetjulega
baráttu við sjúkdóminn þar til
hann lést 15. mars síðastliðinn.
Vegna krabbameinsmeðferðar
óx mottan hægt á Magnúsi en
markmið hans var að safna
milljón krónum í átakinu. Hann
er enn hæsti keppandinn í
átakinu.
Bjarndís Sjöfn Blandon
565.000 kr.
Bjarndís missti pabba sinn 11.
febrúar síðastliðinn eftir tíu
mánaða baráttu við nýrna-
frumukrabbamein. Pabbi
hennar tók stoltur þátt í átakinu
í fyrra og því skráði Bryndís sig
til leiks í ár.
Bergsveinn A. Rúnarsson
230.000 kr.
Bergsveinn safnar mottu til
stuðnings litla bróður sínum
sem er fjórtán ára og greinidst
með bráðahvítblæði í janúar.
Hann er nú í stífri lyfjameð-
ferð en braggast vel miðað
við aðstæður. Bergsveinn vill
vekja fólk til umhugsunar um
að maður viti aldrei hvenær lífið
tekur óvænta u-beygju.
Hallur Þór Jensson
87.418 kr.
Hallur tekur þátt í átakinu til
minningar um föður sinn sem
lést í fyrrahaust eftir erfiða
baráttu við krabbamein.
Ágúst Sverrir Daníelsson
80.000 kr.
Ágúst safnar mottu til stuðn-
ings frænda konu sinnar en
hann greindist með bráðahvít-
blæði í janúar, aðeins fjórtán
ára að aldri.
Á Íslandi greinast að meðaltali 716 karlar
með krabbamein á ári en 278 deyja að
meðaltali ár hvert úr krabbameini.
Söfnunarátakið Mottumars er einstaklings-
og liðakeppni í áheitasöfnun en þátt-
takendur safna mottum og birta af þeim
myndir á heimasíðu Krabbameinsfélagsins.
Söfnunarféð rennur til Krabbameinsfélags-
ins. Nú er síðasta vika mottmars að hefjast
og síðustu forvöð að styrkja málefnið. Hér
eru þeir fimm sem safnað hafa hæstu upp-
hæðunum í einstaklingskeppninni.
Lokasprettur Mottumars
Snorri Ingimarsson krabbameins- og geðlæknir
Sumt fólk þjáist af áfallastreituröskun og það endur-
upplifir krabbameinið lengi á eftir. Í hverju læknis-
eftirliti er fólk minnt á sjúkdóminn og er kvíðið yfir
því að eitthvað finnist á ný.
Krabbamein og geð-
raskanir fylgjast að
Snorri Ingimarsson er krabbameins- og geðlæknir sem hefur glímt við krabbamein í blöðru-
hálskirtli. Hann segir það áhættuþátt fyrir geðröskun að greinast með krabbamein og hann
þekkir af eigin raun það andlega álag sem fylgir meininu. Þóra Tómasdóttir settist niður með
Snorra og ræddi við hann um baráttu hans við meinið og hugmynd hans um að komið verði á
skimun fyrir geðröskunum meðal nýgreindra krabbameinssjúklinga.
22 mottumars Helgin 25.-27. mars 2011