Prentarinn - 01.01.1999, Síða 11

Prentarinn - 01.01.1999, Síða 11
Framtíðarsýn Eins og ég hef rakið hér að ofan hefur verið fjárfest geysilega í forvinnslu, bæði búnaði og menntun. En þar með er ekki öll sagan sögð. Framundan eru einnig spennandi tímar. Þróunin síðast- liðin 3 ár hefur verið í áttina til stafrænnar vinnslu. Tölvuvæðing- in er fyrsti hluti þeirrar þróunar en það er einkum þrennt sem þarf að vinna í á næstu 3-5 árum. 1. Stafræn vinnsla prófarka. Eins og staðan er í dag kemst enginn framleiðandi prófarkakerfa fyrir hefur þróað nýja tegund mynda- mótaefnis sem hefur gert það að verkum að stöðugleiki punkta í neti mynda er meiri en áður. Það sem hins vegar snýr að þeim fyrirtækjum sem ætla sér að nota slíka tækni eru fyrst og fremst tveir þættir. Annars vegar verða viðkomandi fyrirtæki að hafa langa reynslu í tölvuvinnslu og hins vegar verður fjöldi mis- taka að vera í lágmarki. I raun má segja að stafrænt Cromalin sé ein af forsendum þess að hægt sé að fjárfesta í CDI af þeirri einföldu ástæðu að Cromalinið er hluti af stafræna ferlinu. flexóvinnslu með tæmar þar sem Digital Cromalin frá Dupont hefur hælana. Dupont hefur þann kost fram yfir aðra að fyrirtækið hefur um langt árabil unnið með fyrirtækjum í flexóiðnaði, m.a. vegna hags- muna sinna á sviði myndamóta. Þetta hefur skilað sér m.a. í betra myndamótaefni, betri Cromalin próförkum og síðan staffænni vinnslu á hvom tveggja. Þetta er einn fárra framleiðenda sem hafa sinnt flexóiðnaðinum. Gunmir R. Guðjónsson prenlari i'ið stjórnborð S lita Jlexoprent- vélarinnar. 2.Plötusetning (direct to plate). Stafræn vinnsla frá skeylingar- tölvum á prentplölur hefur rutt sér til rúms með geysilegum hraða síðastliðin ár. Enn og aft- ur er það BARCO í samvinnu við Dupont sem hefur þróað tækni sem gerir þetta kleift. CDI er skammstöfun fyrir Cyrel Digital Imager. Það er tækið sem BARCO hefur þróað. Frá DRUPA 1995, þar sem þessi tækni var kynnt, hefur áhugi umbúðafyrirtækja aukist hægt og rólega fyrst í stað þar til á síðasta ári að mikil eftirspurn varð eftir þessari tækni. Nú er búið að setja upp um 75 slík tæki í heiminum, flest þeirra í Evrópu. B ARCO er með langstærstan hlut eða um 60-65 af þessum tækjum. Helsti kostur stafrænnar prent- unar er fyrst og fremst gæðaaukn- ing. Hún er það mikil að talað er um byltingu í því efni. Dupont Umhverfismál Ég vil ekki Ijúka þessari grein án þess að minnast aðeins á um- hverfisstefnu Plastprents. Plast var hér fyrr á árum afar óvistvænt og á ennþá stundum erfitt upp- dráttar þrátt fyrir að í dag sé það niðurbrjótanlegt í náttúrunni og brotnar niður í kolefni og vetni. Eftir verður fíngerður salli. Innan fyrirtækisins hefur einnig verið rekin hörð stefna varðandi flokkun á sorpi og öðrum úrgangi. Pappír, afgangsplastefni, filrnur, pappi og tré er flokkað svo eitt- hvað sé nefnt. PRENTARINN 1 1

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.