Prentarinn - 01.09.2002, Síða 5

Prentarinn - 01.09.2002, Síða 5
önnina, og var það mjög skemmtilegt og krefjandi en verk- efnið sem ég var þátttakandi í var að búa til vefsíðu fyrir Iðnskólann í Reykjavík. Námið sjálft er mjög krefjandi og mæli ég hiklaust með því fyrir alla þá sem hafa gaman af tölvum og hönnun að sækja þetta nám. Ég veit þó ekki hvernig námið er uppbyggt í dag, skóli eins og Margmiðlunarskólinn er alltaf að breyta og betrumbæta námið til að koma til móts við nýjar og breyttar kröfur á markaðnum en það ætti nú ennþá að vera byggt svipað upp.“ - Þú talar um að námið sé dýrt, hvað kostar t.d. ein önn? „Það er mjög mismunandi hvað námið kostar og fer það allt eftir hvaða braut þú velur. En ég held að svona almennt í gegnum skól- ann þá sé talan alltaf eitthvað í kringum hálfa milljón fyrir önn og er þá bara verið að tala um skólagjöldin. Þó svo að þetta sé stór tala þá er hún tiltölulega lægri ef miðað er við lönd eins og England og Bandaríkin en samt sem áður fullstór biti.“ - Er þetta lánshæft nám frá Lín? „Já námið er lánshæft en eins og hjá flestum sem fara út að læra þá er ekki veitt lán fyrir sjálfum skólagjöldunum heldur einungis fyrir uppihaldi meðan á námi stendur. Ég held reyndar að ef farið sé í mastersnám eða sam- bærilegt nám þá sé veitt námslán fyrir skólagjöldum en þar sem ég er í BS-námi þá er einungis veitt lán fyrir uppihaldi." - Þú ert ekki eini Islendingur- inn þarna, er það? „Nei, ótrúlegt en satt, við erum nú nokkur í námi hérna í Queens- land, ég veit um 4 aðra fyrir utan mig og unnustu mína sem eru í námi hérna. Það er líka starfrækt íslendingafélag sem hefur eitt- hvað um 100 félaga, mest allt ís- lendinga sem hafa verið búsettir hérna í nokkuð mörg ár og af- komendur þeirra. Þannig að þó svo maður sé staddur hinum meg- in á hnettinum þá er samt alltaf möguleiki að rekast á íslending. Þó svo að það séu ekki margir Islendingar héma í námi þá er ótrúlegur fjöldi af öðmm Norður- landabúum hérna í námi og þá sérstaklega Norðmönnum og Sví- um.“ - Ertu eitthvað virkur í þessu Islendingafélagi þarna? „Nei, því miður verð ég að segja að mér hefur ekki gefist tími til að mæta á neina samkomu á þeirra vegum, seinasta uppá- koma var núna um daginn þegar haldið var uppá 17. júní en þar sem ég var það einstaklega óheppinn að þurfa að fara í tvö lokapróf þann dag þá gafst mér ekki tími til að mæta. En núna í september mun verða haldið þorrablót að alíslenskum sið og er búið að lofa að boðið verði uppá íslenskt hangikjöt, brennivín og ýmislegt annað góðgæti, þannig að stefnan er nú sett á að mæta á þann viðburð.“ - Segðu okkur frá skólanum og náminu sem þú ert í. „Skólinn sem ég er í heitir Queensland University of Technology og er staðsettur í hjarta Brisbane, en þetta er einn af virtustu háskólunum hérna í Queensland-fylki. Þetta er tiltölu- lega ungur skóli sem býður uppá mjög fjölbreytt háskólanám og er skólinn í mjög nánu samstarfi við atvinnulífið hérna í Astralíu og meðal fyrirtækja sem skólinn á í samstarfi við eru fyrirtæki á borð við Boeing, IBM, Microsoft og fleiri stór nöfn. Það eru yfir 35 þúsund nemendur i skólanum þannig að það getur verið frekar einmanalegt að iabba um háskóla- lóðina en þessi fjöldi skiptist á nokkur háskólasvæði sem eru staðsett víðsvegar um Brisbane. Minn skóli er staðsettur í hjarta Brisbane en það tekur aðeins 5 mínútur að fara niður í miðbæinn. Ég er í þriggja ára BS-námi í tölvunarfræði með sérhæfingu í rafrænum viðskiptum og rafrænni miðlun og er námið mjög spenn- andi og krefjandi. Námið er eins og ég segi 3 ár og skiptist þannig að allir þurfa að taka eitt sameiginlegt ár. Eftir það verður maður að velja hverju maður ætlar að sérhæfa sig í og er hægt að velja um nokkrar mis- munandi brautir, en ef einhver vill kynna sér skólann betur þá er vef- slóðin þessi á heimasíðu skólans http://www.qut.com.au" - Hvað áttu mikið eftir af þessu námi? „Núna er ég að fara að byrja á þriðju önninni af sex. Ég byrjaði á sumarönn en með því að byrja á henni þá get ég klárað þrjár annir á einu ári en það hefur verið frek- ar erfitt og mikil keyrsla. Þannig að ef allt gengur vel áfram þá mun ég ljúka námi 2004.“ - Hvað tekur við hjá þér þegar þessu námi lýkur? „Hvað framtíðin ber í skauti sér hef ég ekki hugmynd um en draumurinn er náttúrulega að klára þetta nám og ná sér í ein- hverskonar framhaldsmenntun. Hvort það verður liérna í Astralíu eða annars staðar veit ég ekki.“ - Ætlið þið að koma heim eða setjast að erlendis? „Ég held nú að á endanum komum við heim til að búa, en meðan við erum ung og getum leyft okkur að skoða heiminn þá held ég að við munum halda áfram að reyna að skoða okkur um. En eins og ég nefndi áður þá er nú planið að klára núverandi nám og síðan annað hvort reyna að finna eitthvert spennandi fram- haldsnám eða vinnu við hæfi en ég held nú að Island sé það land sem ég vil búa á í framtíðinni." - Hvað gerið þið skötuhjúin af ykkur þegar þið eruð ekki í skól- anum? „Við gerðumst svo djörf um daginn og keyptum okkur bil og höfum við verið dugleg að nota hann til að skoða hvað Queenland hefur uppá að bjóða. Við höfum auk þess vanið okkur á að fara alltaf eitthvað í hverri viku enda nóg að skoða héma í kring. Það tekur okkur t.d. ekki nema einn klukkutíma að skjótast niður á strönd, þannig að við höfum verið dugleg að fara þangað unt helgar. Auk þess er Brisbane og um- hverfi mjög lifandi borg og alltaf nóg um að vera, að auki býður skólinn uppá ljölbreytta starfsemi fyrir þá sem hafa áhuga á útivist og sporti og höfum við verið dug- leg við að nota okkur það.“ - Jæja Davíð, þetta fer nú að verða ágætt hjá okkur. Þið viljið kannski nota tækifærið og senda kveðjur heim og segja eitthvað að lokum. „Við biðjum bara að heilsa öll- um og takk fyrir okkur." PRENTARINN ■ 5

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.