Prentarinn - 01.09.2002, Page 6

Prentarinn - 01.09.2002, Page 6
Texti og myndir: Jakob V. Gubmundsson Þann 23. apríl s.l. var aldarafmæli Halldórs Laxness minnst víða og af þessu tilefni stóð Bókasam- band íslands fyrir göngu um söguslóðir Halldórs hér í Reykja- vík og var sagnfræðingurinn Guð- jón Friðriksson leiðsögumaður. Fjölmenni var i göngunni, eitt- hvað um 70 manns. Gangan hófst við Laugaveg 32, fæðingarstað Halldórs, en fyrr um morguninn hafði þar verið afhjúpaður minn- ingarsteinn um hann í gangstétt- inni. Síðan var staldrað við þar sem eitthvað markvert tengdist Halldóri, t.d. við Laugarveg 28, en þar bjó hann þegar hann las undir gagnfræðapróf og sextán skáld voru í fjórða bekk, eins og stendur í kvæði Tómasar Guð- mundssonar. Við Vegamótastíg var gerður stuttur stans, en þar var Halldóri komið fyrir hjá skyld- mennum þegar hann var 12 ára og var við nám í teikningu o.fl. barna varð óvænt uppákoma þeg- ar maður úr þeirri íjölskyldu kom út á tröppumar og las ljóð úr „poesibók" sem Halldór skrifaði í 12 ára. Spítalastígur 7 var næsti við- komustaður. Þar bjuggu Hallbjörn Halldórsson prentari og Kristín kona hans áður en þau fluttu á Hverfisgötu 21 árið 1941. Þau áttu heima á efri hæðinni, en þar voru tvær íbúðir og í hinni íbúð- Gunnar Eyjólfsson. „Hallbjarnarstaði“. Þegar gestir komu að Spítalastíg 7 til samveru í „Mjólkurfélaginu", gengu þeir upp tröppur með súlnaporti (sem enn má sjá). Húsbóndinn Hall- björn tók á móti þeim og mælti, að sögn Halldórs: „Þar umdu silf- ursúlur og silfurbogagöng, - og Ögmundur Helgason og Sœmundur Árnason. inni bjó Árni frá Höfðahólum og 3 dætur hans, þær Áslaug, Mar- grét og Steinunn. Oddur á Skag- anum bjó í kjallaranum. Myndir af flestu af þessu fólki eru til hjá FBM. Það var í þessu húsi sem „Mjólkurfélag heilagra“ kom mest við sögu. Halldór kallaði það stundum „Alþýðukof‘ eða Göngumenn við Laugaveg 26. 6 ■ PRENTARINN varið ykkur að detta ekki oní op- inn kjallarann!" („Nærmynd af nóbelsskáldi“, bls. 67.) Á Laufásvegi vakti hópurinn ugg í brjósti öryggisvarða við bandaríska sendiráðið, en þeir tóku ró sína aftur þegar þeir voru fúllvissaðir um að hér væru að- eins á ferð friðsamir bókaunnend- ur að virða fyrir sér húsið númer 25, en hús þetta var í eigu Einars Arnórssonar, föður Ingibjargar móður Einars Laxness. Fjölskylda Halldórs bjó á eífi hæðinni og þar var okkur bent á kvistherbergið sem Halldór hafði sem skrifstofu og þar urðu til ýmsar sögupersón- ur skáldsins, t.d. Ólafur Kárason Ljósvíkingur. Svo var líka stopp- að við hús Þorsteins Erlingssonar skálds, en þar hittust þeir fyrst Halldór og Ragnar í Smára. Að lokinni göngu var göngu- mönnum boðið upp á góðgerðir hjá Félagi bókagerðarmanna að Hverfisgötu 21. Þar voru til sýnis frumútgáfúr af verkum skáldsins áritaðar af honum til Hallbjarnar Halldórssonar prentara og Kristín- ar Guðmundardóttur konu hans, sem þar bjuggu frá 1941 eða frá því prentarar keyptu húsið. Enn- fremur voru þar sýnd nokkur bréf, handrit og skjöl úr safni þeirra hjóna sem nýlega fundust uppi á hanabjálkalofti að Hverfisgötu 21. Gunnar Eyjólfsson leikari sagði gestum frá kynnum sínum af þeim hjónum og Halldóri Kilj- an Laxness og kom þar margt skemmtilegt fram sem ekki hefur verið á allra vitorði hingað til. Þá fór fram afhending Bréfa- safna Hallbjarnar og Kristínar til Landsbókasafns - Háskólabóka- safns. Það var Sæmundur Áma- son, formaður Félags bókagerðar- manna sem afhenti gjöfina en Ögmundur Helgason, forstöðu- maður handritadeildar safnsins, veitti gjöfinni viðtöku. Hér er um að ræða mjög fjölbreytt safn sendibréfa, handrita og ýmissa skjala, sem tengdust þeim hjón- um. Má þar nefha m.a. bréf ffá rithöfundunum Guðmundi G. Hagalín, Halldóri Kiljan Laxness, Þórbergi Þórðarsyni, Kristmanni Guðmundssyni, Sigurði Einars- syni, Jakobi Jóh. Smára, Halldóri Stefánssyni og Theodór Friðriks- syni. Einnig er þarna mikið af bréfum til Hallbjarnar frá ýmsum útlendingum og sem ritstj. Al- þýðublaðsins ýmislegt efni frá bandaríska rithöfundinum Upton Sinclair. Af skjölum má nefha hand- skrifaða skrá yfir kaupendur Al- þýðublaðsins frá 1924 og þó nokkurt safn vísubotna úr sam-

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.