Prentarinn - 01.09.2002, Qupperneq 11
NYSVEINAR
Efsta röð f.v.: Þór Theodórsson, Stefan
Roger Swales, Stefán H. Henrýsson,
Hjörtur Skúlason, Ólafur Eggerts Ólafsson og Bn'njar Sverrisson. Miðröð f.v.:
Páll R. Pálsson, Guðmundur K. Guðmundsson og Guðni Freyr Ingvason. Fremsta
röð f.v.: Rósa ívarsdóttir, Ester Þorsteinsdóttir, Sigríður Lund Hermannsdóttir og
Hrafhhildur Ólafsdóttir. Á myndina vantar Sæmund Frey Árnason.
Eftirtaldir aðilar hlutu verðlaun fyrir góða frammistöðu á sveinsprófi:
Rósa ívarsdóttir, prentun, Hjörtur Skúlason, bókband og Sæmundur
Freyr Árnason, prentsmíð.
þess, markaðsstöðu og framtíðar-
áform. Þessi fyrirlestur var mjög
fræðandi og skemmtilegur. Eftir
þetta sýndi hann okkur hina nýju
glæsilegu byggingu sem hýsir
höfðstöðvarnar í Heidelberg, þar
sem arkitektúrinn er stórkostlegur
og fær maður helst þá tilfinningu
að maður sé staddur inni í risa-
stórri prentvél. Næst var forinni
heitið í sýningarsal þar sem vænt-
anlegum kaupendum og gestum
eru sýndar prentvélar, skannar,
rippar, plötuvélar og önnur tæki
sem Heidelberg hefur til sölu. I
þessum sal geta kaupendur fengið
að prófa vélamar og sannreyna
gæði þeirra áður en þeir festa
kaup á þeim. Þarna var fjöldinn
allur af væntanlegum kaupendum
og sölumenn á þönum í kringum
þá, meðal annars fólk frá Italíu og
Ukraínu.
Næst var förinni heitið til
Wieslog sem er borg nokkrum km
fyrir utan Heidelberg og þar er
samsetningarverksmiðja Heidel-
berg-fyrirtækisins á fleiri þúsund
fermetrum og í mörgum bygging-
um. Umfangið á byggingunum er
svo mikið að starfsmennirnir nota
reiðhjól til að koma sér á milli
staða inni í byggingunum. Þar
byrjuðum við á því að snæða í
mötuneytinu og voru þar dúkuð
borð og indælis máltíð sem beið
okkar, í þessu mötuneyti borða
nokkur þúsund manns á degi
hverjum og rann þetta allt áfram
eins og vel smurð vél. Eftir frá-
bæran hádegisverð og skemmti-
legt spjall við Carsten Deutch var
haldið í skoðunarferð um verk-
smiðjurnar, við vorum ferjuð með
rútu á milli bygginga og var erfitt
að meðtaka allt sem fyrir augu
bar. Við fengum að sjá prentvélar
á nærri öllum framleiðslustigum,
allt frá litlum prentvélum til
stórra sérútbúinna prentvéla sem
ætlaðar voru t.d. til miðaprentun-
ar á áfengisflöskur í Ukraínu.
Varahlutalagerinn er mjög stór og
er að mestu tölvustýrður, sann-
kallað völundarhús og er þar tölva
sem sér um að raða hverjum hlut
á sinn stað og færir þá líka eftir
ákveðnu kerfi til að gæta þess að
plássið sé alltaf fullnýtt á hverjum
tíma. í Wieslog starfrækir Heidel-
berg-fýrirtækið einnig iðnskóla
þar sem þeir taka inn nemendur í
vélvirkjun, vélsmíði, rafeinda-
virkjun og fleiri verkgreinum sem
nýst geta í verksmiðjunni. Þar fá
nemarnir samning og tekur námið
að mig minnir 3 ár, nemamir em
þjálfaðir í að smíða prentvélar, og
aðra hluti sem þarf við fram-
leiðslu prentvéla og sáum við
nemendur sem unnu við að smíða
allt frá endurgerð á maskínu
Gutenbergs og upp í það að smíða
hluti í nútímaprentvélar. Með því
að starfrækja þennan skóla tryggir
Heidelberg sér það að eiga alltaf
aðgang að góðu sérhæfðu fagfólki
sem kann vel til verka í verk-
smiðjunni. Rafeindatæknideildin
var líka áhugaverð og er Heidel-
berg í samstarfi við Siemens fyr-
irtækið með framleiðslu á minnis-
spjöldum í ýmsan tölvubúnað,
með þessu verkefni ná þeir út
fullri nýtingu á sínum rafeinda-
virkjum þegar minna er að gera
hjá fyrirtækinu. Það sem vakti
einnig athygli í þessari deild var
að þarna vom flestar konurnar,
því annarsstaðar í verksmiðjunni
voru nær eingöngu karlar. Þetta
var endastöðin í þessari heimsókn
okkar í Heidelbergverksmiðjurnar
sem svo sannarlega var frábær í
alla staði. Leiðsögumaðurinn okk-
ar hann Carsten Deutch var alveg
frábær og gerði allt til þess að
gera daginn frábæran. Eftir þetta
héldum við á stað aftur til Mainz
þar sem ætlunin var að eyða síð-
asta deginum.
Heimsókn í Man Roland
Prentaramir í hópnum tóku
daginn snemma þar sem þeir voru
á leið í heimsókn til Man Roland
verksmiðjanna í Offenback.
Heimsóknin þangað var á óhent-
ugum tíma þar sem Roland menn
voru önnum kafnir að setja upp
sýningu í Bretlandi og metum við
það mikils að þeir gátu tekið við
okkur á annatímum eins og þess-
um. Hann Raine Schafer tók á
móti okkur og hófst heimsóknin í
aðalbyggingunni þar sem var unn-
ið að því að setja upp nýjar vélar
en á meðan Man Roland voru að
setja upp sýningu í Bretlandi vom
þeir einnig að setja upp nýjar
prentvélar heima fyrir. Sýningar-
salirnir þeirra voru því ekki tómir
og þar vom vélar uppi svo sem
Roland 900 sem var eins og
hrikalegur risi á við hinar arkavél-
arnar.
I sýningarsalum voru auk vél-
anna prentverk sem unnin höfðu
verið á vélarnar og gladdi það
augað þegar við sáum þarna
prufuverk sem var prentað fyrir
Litlaprent. Þegar búið var að
skoða sýningarsalina var haldið
upp á þriðju hæð þar sem beið
okkar glæsilegur veitingasalur
með okkar einkaþjóni sem færði
okkur þríréttaða máltíð og drykki
með. Yfir matnum var slegið á
létta strengi og talað um ísland,
Þýskland og að sjálfsögðu um
prentun. Eftir að búið var að fylla
magann all hressilega var haldið
til verksmiðjanna þar sem biðu
okkar heilu færiböndin af prent-
vélum. Þar var gengið um gripina
og þeir skoðaðir, hvemig prent-
vélarnar voru settar saman. Við
fengum nú aðeins að sjá einn
hluta af Man Roiand en þeir eru
með verksmiðjur á fimm stöðum,
Offenback, Augsburg, Plauen,
Mainhausen og Geisenheim auk
þess eru þeir með tækni- og sölu-
deildir um víðan heim. Þannig að
við sáum aðeins toppinn á ísjak-
anum. Eftir góða heimsókn var
haldið aftur til Mainz með aukna
þekkingu og glaðning í fartesk-
inu.
Meira af Cutenberg
Við prentsmiðirnir fórum sem
sagt aftur á Gutenbergsafnið og
fórum þá á verkstæði þar sem
unnið er eftir hefðum Gutenbergs
og allt er handþrykkt, þar fengum
við að búa okkur til síðu úr bók
og handþrykkja, þarna var einnig
ótnílegt magn af letursöfnum og
var gaman að geta handleikið
Textura letur sem var ævagamalt
og skorið út í trékubba og einnig
eldgömul letursöfn út blýi. Þessi
deild í Gutenbergsafninu er mikið
notuð af skólum borgarinnar þar
sem nemendum á öllum aldri er
kynnt saga prentsins og krakkar
fá tækifæri á að spreyta sig á því
að gera veggspjöld og annað á
gamla mátann. Um kvöldið fórum
við síðan út að borða, allur hópur-
inn, á þetta líka fína steikhús í
miðborg Mainz og var það vel
heppnað kvöld í alla staði.
Morguninn eftir var síðan kom-
inn tími til að halda heim eftir vel
heppnaða og skemmtilega ferð.
Hrafnhildur Ólafsdóttir
Ester Þorsteinsdóttir
Guðni Freyr Ingvason
ifij í ‘ —
I P • ■■ir*
PRENTARINN ■ 11