Prentarinn - 01.09.2002, Síða 13

Prentarinn - 01.09.2002, Síða 13
Verðlaunahafar ó Miðdalsmóti 2002. Frá vinstrí, Albert Elísson, Gttðrún Eiriksdóttir, Guðrún Eyberg, Björk Guðmundsdóttir, Guðný Steinþórs- dóttir, Friðrik L. Gestsson, Theodór Guðmundsson, Ólafur Stolzen- wald, Skapti Haraldsson. MIÐDALSMÓTIÐ 2002 Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna, fór ffam á golfvelli Dalbúa í Miðdal 10. ágúst. Þetta er í sjöunda sinn sem við höldum golfmót í Miðdal og að þessu sinni voru 44 keppendur. Eftir kaffiveitingar var kepp- endum raðað á teiga og hófst mótið kl. 11.00 undir öruggri stjórn formanns Dalbúa, Jóns Þ. Hilmarssonar. Þennan dag voru veðurguðirnir í spariskapinu og buðu upp á sól og blíðu, með smá golu, þannig að keppendur sýndu mikil tilþrif í baráttunni við að koma hvítu kúlunni á sinn stað. En svona til að minna á að stundum rignir í Miðdal setti nið- ur örlitla vætu við grillið. í mótslok var boðið upp á léttar veitingar og tóku þátttakendur hraustlega við eftir skemmtilegan keppnisdag. Keppt var um farandbikar FBM í sjöunda sinn ásamt eignarbikar fyrir fyrsta sæti með forgjöf. Postillon-bikarinn var veittur fyrir fyrsta sæti án forgjafar, eignarbik- ar fyrir fæst pútt og eignarbikar í kvennaflokki. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir að vera næst holu á 5. og 8. braut og fyrir lengsta teighögg á 3. braut. Aðal- stuðningsaðili mótsins var Hvít- list er veitti fjölda verðlauna. Einnig veittu Morgunblaðið og Hjá Guðjónó verðlaun. Færum við þeim bestu þakkir fyrir stuðn- inginn. I. verðlaun með forgjöf og Far- andbikar FBM hlaut Albert Elís- son með 70 högg, í öðru sæti varð Friðrik L. Gestsson með 70 högg og í þriðja sæti varð Sigurð- ur Gunnarsson með 70 högg. Postillon-bikarinn 1. verðlaun án forgjafar vann Albert Elísson með 74 högg, í öðru sæti varð Theodór Guðmundsson með 82 högg og í þriðja sæti varð Olafur Stolzenwald með 86 högg. Kvennabikarinn vann Guðný Steinþórsdóttir á 72 höggum, með forgjöf í öðru sæti varð Guðrún Eiríksdóttir með 73 högg og í þriðja sæti Björk Guðmundsdóttir með 74 högg. Púttmeistari varð að þessu sinni Theodór Guð- mundsson með 24 pútt. Albert El- ísson var með lengsta teighögg á 3. braut og næst holu á 5. braut var Sigurður Þorláksson og á 8. braut Skapti Haraldsson. Viður- kenningu fyrir bestu vallarnýt- ingu fengu þau Guðrún Eyberg og Gunnar Guðjónsson. Auk þess var dregið úr skorkortum. Þannig fengu allir keppendur viðurkenn- ingu fyrir þátttöku. Sjáumst á átt- unda Miðdalsmótinu um miðjan ágúst 2003. Knatistnrmiumót FBM 2002 Knattspyrnumótið fór fram í Víkingsheimilinu, Víkinni laugardaginn 27. apríl sl. Níu lið mættu til leiks. Keppt var í tveimur riðlum og síðan fór fram úrslitakeppni þar sem átta lið kepptu. Eins og áður var baráttan og leikgleðin í hávegum höfð. Leiknir voru 24 leikir og 104 mörk skoruð. Svansprent stóð uppi sem sigurvegari en liðið hefur sigrað á mótinu sex sinnum frá 1992. Yfirdómari mótsins var Omar B. Ólafsson. A-Riðill Ásprent POB-Vörumerking 2-5 PMT-Offset 2-0 Edda-Vörumerking 1-2 Ásprent POB-PMT 1-1 Offset-Edda 0-8 PMT-Vörumerking 0-2 Offset-Ásprent POB 0-5 Edda-PMT 4-0 Vörumerking-Offset 1-0 Ásprent POB-Edda 0-2 B-Riðill Kassagerðin-Plastprent 8-1 Svansprent-Morgunblaðið 3-1 Kassagerðin-Svansprent 1-1 Morgunblaðið-Plastprent 3-3 Morgunblaðið-Kassagerðin 1-2 Plastprent-Svansprent 1-2 A-riðill Stig Mörk 1. Vörumerking 8 10-3 2. Edda 6 15-2 3. Ásprent - POB 3 8-8 4. PMT 3 3-7 5. Offset 0 0-16 B-riðill Stig Mörk 1. Kassagerðin 5 11-3 2. Svansprent 5 6-3 3. Morgunblaðið 1 5-8 4. Plastprent 1 5-13 Átta liða úrslit: Vörumerking-Plastprent 3-2 Edda-Morgunblaðið 1-2 Kassagerðin-PMT 3-2 Svansprent-Ásprent - POB 4-0 Fjögurra liða úrslit Vörumerking-Morgunblaðið 5-2 Svansprent-Kassagerðin 3-0 Þriðja sætið Morgunblaðið-Kassagerðin 1-2 Úrslit Svansprent-Vörumerking 6-3 Til sölu er bústaður í efstu götu í efra hverfi í Miðdal, G-gata 7. Húsið er 42 nf að stærð og með 30 m2 verönd. 12 volta rafmagnskerfi ásamt sólarsellu er í húsinu. Upplýsingar veitir Kristján Gunnarsson í síma 587 1946. Er íoftið of þurrt ? STiULiZlrakatækillevsir vandann IAIMH I N «m. Staiif’arliyl 1A, /10 Iteykjavik island, Sítni: SH7 8890 Fux 567 8090 netfang: rafstjorn(a rafsljorn.is M'H'M’. rafstjont. is ‘Vii&eii tytvxAti&enfri en, oááan fcuf PRENTARINN ■ 13

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.