Prentarinn - 01.09.2002, Side 19

Prentarinn - 01.09.2002, Side 19
Prenttæknistofnun og Margmiðlunarskólinn í júnímánuði síðastliðnum flutti Prenttæknistofnun starfsemi sína úr Faxafeni 10 að Hallveigarstíg 1. Erum við á fyrstu hæðinni eins og áður en aðeins innar á gangin- um. Nú á haustmánuðum fer námskeiðahald Prenttæknistofn- unar í gang. Haldin verða sex námskeið á haustönn: Apple script, grafísk hönnun fyrir prent- smiði, prentsmíði fyrir grafíska hönnuði, stafræn prentun og myndvinnsla. Eins sjá má eru hér ný og gömul námskeið í bland. Móri (félag áhugamanna um nýj- ungar og tækni í prentiðnaði) mun einnig verða áberandi í vetur. Fundir verða haldnir með reglu- bundnu millibili. I sumar hefur farið fram end- urhönnun á heimasíðu Prent- tæknistofhunar www.pts.is Leitast verður við að koma tæknilegum upplýsingum í auknum rnæli inn á síðuna. Hér hjá Prenttæknistofn- un er þó nokkurt bókasafn sem félagsmenn ættu að reyna að nýta sér. Nokkurs misskilnings gætir meðal fólks, að Prenttæknistofhun hafi sameinast Margmiðlunar- skólanum á sínum tíma. Þetta var aldrei raunin. Prenttæknistofnun hafði aðstöðu hjá Margmiðlunar- skólanum en lifði samt sjálfstæðu lífi. Prenttæknistofnun og Rafiðn- aðarskólinn munu koma að stefnumótun náms í margmiðlun- argreinum í Iðnskólanum í Reykjavík. Námið sem var í Margmiðlun- arskólanum í fyrravetur er um þessar mundir að hefja göngu sína í Iðnskólanum í Reykjavík. Þar hefur verið skipulagt nám sem er nám að loknum fram- haldsskóla. Við erum þess fullviss að Iðnskólinn í Reykjavík muni reka margmiðlunarnámið af mikl- um metnaði og áræði. Þegar skólanefnd Margmiðlun- arskólans varð ljós sú staðreynd að rekstur hans var í miklum vanda var allt gert til að tryggja hag nemenda sem best og sömu- leiðis að sú mikla vinna sem iögð hefur verið í uppbyggingu náms- ins færi ekki forgörðum. Það er því mikið fagnaðarefni að Iðn- skólinn í Reykjavík skyldi taka margmiðlunarnámið að sér. Þar er til staðar mikil þekking og reynsla í skólastarfi og mikill metnaður til að byggja upp framhaldsnám í margmiðlun. Námskeib á haustönn Apple Script forritun Ætlað: Öllum þeim sem áhuga hafa á Apple Script. Apple Script er forritunarmál sem hefur létt Macintosh notend- um lífið. Farið verður í grunnat- riði forritunarmálsins og hvernig það nýtist í verkum í forvinnslu. Quark XPress verður notað sem hjálpartól. Crafísk hönnun fyrir prentsmiöi Ætlað: Öllum prentsmiðum sem vilja bæta við sig hönnunar- og útlitskunnáttu. Þetta námskeið var kennt í fyrsta sinn í fyrra og vakti mikla lukku. Leitast verður við að hafa námskeiðið eins konar „work- shop“ þar sem þátttakendur fá tækifæri til að vinna með leið- beinandanum að verkefnum í grafískri hönnun. Leiðbeinandi er starfandi grafískur hönnuður á auglýsingastofu hér í bæ. Farið verður í: Hönnunartól í helstu for- ritum, svo sem Quark, Photoshop, Freehand og InDesign. Prentsmíöi fyrir grafíska hönnuöi Ætlað: Grafískum hönnuðum sem vinna mikið prenthluti. Farið verður yfir frágang á skjölum til prentunar bæði til prentunar fyrir tímarit og/eða dag- blaða. Fjallað verður um frágang á myndum og uppsetningu á PDF stillingum fyrir Acrobat Distiller og fleira í þeint dúr. Einnig verður farið í grófum dráttum yfir still- ingar á myndum og hvaða víti bera að varast í þessum efnum. Umsjón forrita og stýri- kerfa í prentsmiöjum Ætlað: Þeim sem vilja bæta við sig kunnáttu um stýrikerfi og við- bætur. Tölvukerfi verða sífellt flóknari í grafíska iðnaðinum. Flest forrit keyra með mörgum viðbótum. Eins eru mörg forrit að keyra á tölvum sem ekkert gagn gera. Farið verður í uppsetningu á stýri- kerfum og fleiru. Stafræn prentun Ætlað: Prenturum og öllu áhugafólki um stafræna tækni. Þetta námskeið var haldið í fyrsta sinn í fyrra. Farið yfir helstu tegundir á markaðnum og einnig verður rætt um kosti og galla stafrænnar prentunar. Einnig verður rætt um íhluti og sögu stafrænnar prentunar. Nýjungar verða skoðaðar. Myndvinnsla Ætlað: Fólki í grafískum grein- um sem vill læra undirstöðu í myndvinnslu. Talsvert er orðið síðan Prent- tæknistofnun hefur haldið nám- skeið í myndvinnslu. Þetta nám- skeið er ætlað fólki í prent- og grafískum iðnaði sem vinnur við myndvinnslu eða telur sig þurfa að bæta við sig þekkingu í mynd- vinnslu. Farið verður í mælingar á myndum í Photoshop og hvernig best sé að stilla þær fyrir hin ýmsu prentferli. Einnig verða skemmdar myndir lagfærðar og fleira í þeim dúr. Athugið að þetta er ekki námskeið í litastjórnun heldur er þetta hugsað sem grunn- námskeið í myndvinnslu. JAFNRETTIS MARKMIÐ AÐILD ARFÉLAGA NGU • hrinda í framkvæmd grundvallaratriðinu um sömu laun fyrir sömu eða svipaða vinnu, m.a. í heildarsamningum. • hvetja aðildarfélögin til að leggja sitt af mörkum innan sinna vébanda að koma á jafnrétti með jafnri þátttöku þar sem ákvarðanir eru teknar og í samningsgerð á öllum sviðum, á landsvísu, svæðisbundið og á vinnustöðum. • sinna jafnréttismálunum í allri ákvörðunar- töku, s.k. mainstreaming • uppræta starfsgreinamismunun og allt kynbundið misrétti í atvinnulífinu • framkvæma ævilanga menntun í atvinnu- lífinu • byggja upp og styrkja samstöðu á milli kvenna með upplýsingum og að upplýsa og auka meðvitund • styrkja sjálfstraust kvenna með því að bjóða uppá stjórnunar- og sjálfstraustsnám- skeið fyrir konur • að það fólk sem kosið er í stjórn NGU skuldbindi sig til að vinna að jafnrétti á milli kynjanna • halda aðskildar ráðstefnur um brennandi málefni til að íjalla um jafnréttismál • aðildarfélögin skulu í hagsmunavörslu sinni vinna að samræmingu á milli at- vinnulífsins og fjölskyldulífsins Konur og karlar alast augljóslega upp á mismunandi hátt og læra ólíka hluti. Hin menningarlega karlímynd og kvenímynd er ekki óbreytanlegt ástand, það er undirorpið stöðugum breytingum gegnum mismunandi virk netkerfi. Konur og karlar eru bæði lík og ólík, jafn- framt innbyrðis. Fólk verður samt að geta unnið saman í mismunandi vinnuhópum. Inn- byrðis tjáskipti okkar eru ekki alltaf fullkom- in, en einungis í gegnum þau getum við lært meira hvert um annað og skapað eitthvað nýtt. PRENTARINN ■ 19

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.