Prentarinn - 01.09.2002, Page 25
í apríl var haldin prentsýningin
IPEX í Birmingham og er sýning-
in haldin ljórða hvert ár. Að þessu
sinni voru heldur færri sýnendur
og mun færri gestir en á síðustu
sýningu, og voru menn að geta
sér til um að atburðirnir í Banda-
ríkjunum 11. september væru or-
sökin, svo og að framleiðendur
hafa lagt óvenju mikið í alda-
mótasýninguna Drupa 2000.
En hvað sem því líður var þessi
sýning að mörgu leyti forvitnileg.
Það má segja að það sé engin
bylting í gangi en þróunin í staf-
rænni prentun er ótrúlega hröð.
Flestir framleiðendur voru að
sýna mikla þróun í stafrænni
prentun og áberandi var hvemig
áhersla var lögð á að vera með
alla framleiðsluna jafnvel í einni
Iínu, þ.e.a.s umbrot, prentun og
bókband. Heidelberg og Roland
framleiða ekki bara prentvélar
heldur tengja þeir gjarnan frá-
gangsvélar við prentvélamar og
sýna alla framleiðsluna í einu.
Heidelberg 102 með rúlluílagi,
prentað af rúllu, sem skorið er í
arkir í ílagið. Þetta íyrirkomulag
vakti mikla athygli vegna þess að
pappír á rúllum er mun ódýrari í
innkaupum.
Roland og Heidelberg eru
langstærstu sýnendurnir á prent-
vélasviði og bar því mest á þeim,
en aðrir voru með mjög áhuga-
verða hluti, t.d. kom verulega á
óvart hvað Konig og Bauer eru
með breiða línu í prentvélum og
var gaman að fylgjast með því
þegar 10 lita vélin var að skipta
um pappír úr 70gr í 300gr nánast
án þess að stoppa.
Mitsubishi er einnig stór prent-
vélaframleiðandi og eru vélar
þeirra einnig mjög áhugaverðar.
10 lita 72x102 Mitsubishi vélin
vakti mikla athygli.
Komori var athyglisverð tyrir
bygginguna, það er 10 lita (und-
ir/yfir), prentað beggja vegna í
beinni línu.
Það má segja að trompið hjá
Roland hafi verið DICO web,
stafræn web-prentvél sem prent-
aði beggja vegna og skilaði brotið
og skorið.
Eins og áður sagði er það staf-
rænt sem áhersla er lögð á og að
tölvuvinnsla fari beint í prentvél.
Einnig er ljósritun á hraðri upp-
leið því sú tækni er að verða betri
og fúllkomnari með hverju ári,
það er vart hægt að greina hvað er
ljósrit og hvað er offset.
A sýningunni er fjöldinn allur
af hugbúnaðarfyrirtækjum sem
eru að kynna hugbúnað sem auð-
veldar alla vinnslu.
Það sem er nýtt i dag gæti verið
úrelt á morgun, því þróunin er
æði hröð.
Heidelberg
Hefur 250 sölu- og umboðs-
skrifstofur í 170 löndum með
7600 sölumönnum og 3800
tæknimönnum. Alls vinna 26000
rnanns þar. Salan hefur tvöfaldast
á síðustu 5 árum (1996-2001).
Starfsemi Heidelberg er á
860.000 fermetrum í Wiesloch.
Mynd: Speedmaster 52 með
stans-uniti
KBA
Köenig og Bauer voru með
glæsilegan stand á sýningunni og
voru með 10 lita Speedmaster
(105) sem aðalnúmer. Einnig voru
þeir með minni vélar og plötu-
skrifara. Þeir voru að auki með
stafrænar prentvélar frá Karat
sem taka arkir uppí 74x52 cm. í
4-5 litum.
Við spurðum út í umboðs- eða
sölufulltrúa KBA á Islandi og þá
var svarið: „Við tölum bara við
manninn með pípuna“ (Örn).
MBL. er eina prentsmiðjan á ís-
Iandi með KBA prentvél!
Roland
Hafa 3000 fermetra svæði með
prent-unitum í Graphic Center í
Offenbach eingöngu til sýningar á
framleiðslu sinni. Minni vélar eru
með stjórnborðið framan á vélinni
til að spara pláss. Hægt er að UV-
lakka með prentun á fullum hraða
15000 pr.t.
IPEX '98
1998 komu tæplega 92000
gestir á sýninguna. Sýningar-
svæðið er ca. 85000 fermetrar og
1200 aðilar frá 34 löndum sýndu
vörur sínar.
Þorkell S. Hilmarsson
Páll R. Pálsson
PRENTARINN ■ 25